Vikan


Vikan - 31.08.1961, Page 15

Vikan - 31.08.1961, Page 15
 Danskt einbýlishús, byggt á einni hæð, án upphækkunar eða nokkurra bragða til að gera það „reisulegt. væri líklega enn betra með fjall að baki. það er engu að síður svipfallegt og húsið, sem sést á meðfylgjandi mynd, sýnir mjög vel, hvernig þessi stíll getur orðið, þegar hann er beztur. Húsið er svipfallegt, þakskeggið gefur þvi traustan svip án þess að vera yfirdrifið, og það er líkt og hluti af náttúrunni. Þó gæti ég trúað, að það færi enn betur í fjallalandslagi eða jafnvel í hrauni. íslendingar hafa reynt að til- einka sér þennan stíl, en ekki kom- izt yfir það enn, að reisnin hljóti að byggjast á hæð. Mér hefur fundizt bera sérstaklega mikið á þessu i þorpum úti á landsbyggð- inni. Sæmilega góð hús hafa verið skemmd með því að steypa undir þau háan sökkul, án þess að nauð- syn bæri til, og siðan er háum „hatti“ tyllt ofan á. Þetta kemur yfirleitt ekki að sök, sé um stór hús að ræða, en sé flatarmálið talsvert undir 100 fermetrum, verð- ur hæðarhlutfallið allt of mikið á móti breiddinni. Varla þarf að taka það fram, að litlar glugga- borur á forhliðum þessara húsa eru hrein misþyrming við stílinn. Ástæðan fyrir „hattinum“ er skiljanleg og eðlileg. Við getum ekki haft þökin jafnhallalítil og víða annars staðar í heiminum, þar sem úrkoma er mörgum sinn- um minni. Látum það vera, þótt einn veggur hússins sé eitthvað hækkaður, til þess að nauðsynleg- um halla verði við komið. Það þyrfti ekki að raska hlutföllum stilsins til muna, væri ekki gerður metra hár sökkull undir, sem venjulega er alveg óþarfur, nema byggt sé í halla. Gerið ykkur í hugarlund gömlu bæina íslenzku með burstum helm- ingi breiðari en tíðkaðist, en jafn- háum — eða helmingi hærri burst- um og jafnbreiðum og tiðkaðist. Þar með væri stíllinn fokinn út í veður og vind og einungis skripa- mynd eftir. Þannig er það um þenna „bungalow“-stil, sem við höfum reynt að tileinka okkur til þess að fylgjast með. Vegna þess að byggjendur skortir tilfinningu fyr- ir stil, hafa komð út úr viðleitn- inni eins konar hænsnakofaeftir- likingar. Við erum mjög háð veðurfarinu um byggingar og útlit þeirra. Þess Framhald á bls. 35. Húsin sett saman í hjarngeilunum. búnu eru byggingarnar, sem gerðar eru úr sterkum stálflekum, settar saman niðri i geilunum og tengdar viðum göngum,sem gerð eru á sama bátt, en loks moka snjóýtur ismulningnum að og yfir allt sam- nn. og smám saman sekkur svo öll stöðin dýpra og dýpra niður i jökulinn. Svo fullkomin er þessi rann- sóknarstöð á Marie Byrds landi, að litið kjarnorkuver, sem reist hefur verið í sambandi við hana, sér henni í'yrir rafmagni til ljóss og hita og allrar orku. Vísinda- mennirnir geta meira að segja ræktað grænmeti þarna undir jöklinum! Og i rauninni er þar öllu fremur um sináborg að ræða en einstaka rannsóknarstöð. Frá þessum aðsetursstað fara vísindamennirnir svo í skcmmri og leingri leiðangra um heimskauts- landið, ekki þó á hundasleðum og skíðum eins o glioald Amund- sen og garpar hans, heldur eru sleðar þeirra dregnir af litlum, en kraftmiklum beltisdráttarvélum, svo að þeir geta haft meðferðis öll nauðsynleg tæki til rannsókna sinna, auk vista og tjalda. Vitað er, að heimskautslandið er auðugt að ýmsum málmum, en þrátt fyrir alla tæknina verður þess vist samt nokkur hið, að unnt reynist að grafa þá úr jörðu. En. vísindamennirnir hafa við nóg að glima samt. Þeim þætti til dæmis ekki ófróðlegt að komast að raun um, hvernig á því stendur, að stöðuvatn nokkurt, sem fundizt hefur uudir isþekjunni á þessum slóðum, er heitt við botninn, — 22 gráður á Celsius. Og dýralífið þar syðra er ekki siður merkilegt rannsóknarefni. Það þótti áður sannað, að keisara- álkurnar leituðu jafnan sömu varp- staða. Visindamennirnir banda- risku tóku fimm slíkar álkur, merktu þær vel og vandlega og fluttu þær síðan í flugvél þvert yfir heimskautslandið, þar sem þeir skildu þær eftir. En þegar varptiminn hófst næsta ár, voru þær komnar „heim“ aftur, allar fimm, 2500 mílna leið yfir haf og jökulbreiður! Hraðbréf — í orðsins Það er nokkuð siðan Bandarikja- meiin tóku að „útvarpa“ veður- kortum milli veðurathugunar- stöðva, þannig að sérstök móttöku- tæki skiluðu sæmilega greinilegu afriti. Fyrir tveimur árum tók eitt af stærstu flutningaskipafé- lögum Sviþjóðar að senda farmönn- um á skipum sinum „dagblaðið“ um borð með svipuðum tækjum, Framhald á bls. 42. MttCAM 15

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.