Vikan


Vikan - 31.08.1961, Side 34

Vikan - 31.08.1961, Side 34
Mikið og glæsilegt úrval húsgagna af flestum gerðum. - Vér viljum sérstaklega vekja athygli yðar á hinum léttu og stílhreinu sófasettum vorum sem setja munu nýtízkulegan blæ á hvert heimili. - Verð kr. 9.600.00. Gjörið svo vel og lítið inn. Húsgagnaverzlun Axels Eyjólfssonar Skipholti 7 — Sími 10117 Blóm á heimilinu: Hugleiðingar um blóm eftir Paul V. Michelsen. í Vesturbænuni í Reykjavík búa hjón, og hefur konan mjög gaman af hlómum og verður sér því oft úti um nýja plöntu í gluggana til að auka á hlýleik heimilisins. Bóndinn var aftur á móti oft að skattyrðast við hana yfir öllum þessum blómum. En dag nokkurn, er hann kom heim í hádegismat, fannst honum allt svo kuldalegt og tómlegt, að hann spyr konu sína, hvað valdi, kveðst ekki kunna við sig í stofunni. Konan svarar, að hún hafi bara farið með blómin sín út í sumarrign- inguna. Bauðst þá bóndi strax til að hjálpa henni við að bera þau inn aftur. Þannig er hópur fólks, sem gengur um í lífinu og sér ekki dásemdir blómanna, en saknar þeirra þó, ef þau vantar. Heimili án blóma getur aldrei orðið jafnfagurt og hlýlegt. En það er ekki nauðsynlegt að dreifa blómum um allar stofur, hafið heldur ákveðna reiti fyrir þau; t.d. er mjög fallegt að hafa sér- stakt blómaborð eða stóra grind, þar sem komast mörg blóm sam- an af ólíkum tegundum. Einnig er fallegt að hafa sérstakan blett á gólfinu, þar sem raða má niður mörgum mismunandi tegundum. Maður nýtur þess að horfa yfir og niður á blómin frekar en sjá þau á borði, nema það sé því lægra. Það er hægt að notast við margt til að planta í, eins og t.d. gömlu, brúnu tekatlana. Má i þá planta 2—4 mism. teg. kaktusa eða einu fallega blómstrandi sumarblómi. Þá eru gömiu kop- arkatlarnir og fötin ekki síður smekkleg undir margar tegundir. Auk þess eru koparílátin í tízku þessa stundina. Látið hugmyndaflugið njóta sin, og breytið til með plöntun og tilhögun, ef hægt er, og nóg er úrvalið af blómum á markaðnum. smástríða hvort öðru, og Inez varð aftur hugsað til Don. Það var ekkert undarlegt, þó að hann tæki félagsskap skemmtilegrar ungrar stúlku fram yfir það að vera heima og setja upp hillur í búrinu. Mark- aðurinn mundi standa langt fram eftir kvöldi, — þau gætu verið saman í marga klukkutíma enn þá. Ungfrú Parkins stóð upp. — Þið verðið að hafa mig afsakaða, börn- in góð, en ég sé, að gömul vin- kona mín situr hérna rétt hjá okk- ur, og mig langar til að rabba svolítið við hana. Hún gekk fram gólfið, litil og beinvaxin, og Tony sagði með við- kvæmni í rómnum: — Vesalings gamla frænka mín, hún átti tvi- burasystur, og þær voru alveg ó- aðskiljanlegar, þar til hún dó fyrir tveimur árum. — Það liafði ég enga hugmynd um, sagði Inez með tárin i aug- unum. —- Ilún minnist aldrei á það. Hún er ekki gefin fyrir að rekja raunir sínar, en ég er viss um, að hún saknar Grace mikið og hlýtur að vera liræðilega einmana. Já, það er hún áreiðanlega. Inez varð þungt um hjartaræt- ur, þegar hún minntist hinna hæ- versku tilrauna gömlu konunnar til að vingast við Iiana. — Ég hef oftast nær verið er- lendis og því ekki getað gert mikið fyrir hana, sagði Tony. — Þess vegna fannst mér það líkast krafta- verki, þegar ég uppgötvaði, að þú átttir heima í sama húsi, því að ég treysti engum eins vel og þér til að hafa upplifgandi áhrif á hana í einverunni. — En ég er ekki sama unga stúlkan, sem þú manst eftir, Tony, hugsaði hún. Ég er orðin eigin- gjörn og fráhrindandi persóna í alla staði. — Upphátt sagði hún: — Það er allt i lagi, Tony. Ég lofa þvi, að héðan i frá skal ég gera allt, sem ég get, til að hún verði ekki eins einmana. Gamla konan kom nú aftur að borðinu. — Ættum við ekki að fara út á íþróttasvæðið núna, svo að við komum, áður en mesta ösin byrjar, sagði hún. Skrúðgangan fer víst bráðum að koma aftur. — Jú, það skulum við gera, sagði Inez og tók um handlegg gömlu konunnar. — Hvað langar yður mest til að gera, þegar við komum þangað, ungfrú Parkins? — Allt, góða min, — fara í hringekjuna, reyna skotfimi mina, taka þátt í verðlaunagetrauninni og öllu, sem gaman er að. Tony hló. — Það er auðséð, að þú ætlar þér ekki að inissa af neinu. — Auðvitað ekki. Það er sagt, að gamalt fólk sjái miklu meira eftir því, sem það liefur ekki gert, heldur en þvi sem það hefur gert, - - og ég kæri mig ekki um að sjá eftir neinu. — Við skulum þá að minnsta kosti sjá um, að þér verðið ekki fyrir vonbrigðum í kvöld, sagði Inez. Henni varð nú allt í einu ljóst, að þessi markaður, sem hún hafði verið svo mótfallin, var í rauninni nokkurs konar brú, sem gat hjálpað henni til að finna aftur kátu, lífsglöðu ungu stúlkuna, sem hún hafði verið, áður en hún gift- ist. 1 kvöld mundi ungfrú Parkins 34 VHCAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.