Vikan - 05.10.1961, Qupperneq 3
Unglingaverð...
Kæra Vika min!
.... Viltu svo koma kvörtun á
framfæri um aðgöngumiSana að
„völlunum“. Fyrir börn kostar mið-
inn kr. 5, og þegar maður er orðinn
12 ára þarf maður að borga 25 til
30 krónur. Af hverju ekki að hafa
unglinga-aðgöngumiða á 10 og 15
krónur? ....
Tvær, sem hafa áhuga á knatt-
spyrnu.
Hjálpfús lesandi...
Kæra Vika.
í 34. tbl. var beðið um að útvega
stykki í Ada þvottavél. Ég vildi
gjarnan láta þig fá heimilsfang fyrir
Ada-vélar, því að ég á Ada-vél og
fékk ekki neitt stykki í hana nema
hjá verksmiðjunni í Englandi. Ég
sendi þér þetta heimilisfang, ef ske
kynni að „Frú úti á landi“ gæti haft
gagn af.
Lesandi Vikunnar úr Hafnar-
firði.
ADA (HALIFAX) LTD.
JOHNSON ST
HALIFAX YORKSHIRE
England.
Nú er hann búinn að
hremma mig . . .
Kæri Póstur.
Getur þú ekki leyst úr vandamáli,
sem er farið að taka á taugarnar í
mér. Ég er ung kona og búin að
vera gift í — ár og á ágætan eigin-
mann, og við elskum enn hvort
annað. En síðustu mánuðina hefur
borið dálítið á því, að maðurinn
villi ekki að ég dansi vangadans,
þegar ég fer á böll. Ég hef ekki gert
það hingað til, en nú á nokkrum
böilum hef ég dansað vangadans við
strák, sem ég er hrifin af. Ég er
engin gála og lief alltaf verið frekar
stillt. Mér finnst þetta ósköp sak-
laust, og því skyldi ég ekki mega
það, eins og allar aðrar stelpur á
mínum aldri. Ég er sextán ára og
finnst ég ekki vera neitt smábarn
lengur. Mamma skammar mig ekki,
því hún er alltaf góð við mig, en
ég finn, að henni þykir þetta miður.
Ég vil ekki særa hana, og ég vil
heldur ekki láta hana fara með mig
eins og smábarn. Hvað á ég að
gera?
Ein i vanda.
--------Það tjóar ekki að benda
á, að þetta geri allar telpur á
þínum aldri. „Allar telpur á þín-
um aldri“ gætu nú einu sinni
haft rangt fyrir sér — enda þótt
ég sjái ekki að þetta sé neinn
stórglæpur í þetta sinn. Það er
erfitt að gera bæði þér og
mömmu þinni til hæfis, og ég sé
ekki anað en önnur ykkar verði
að láta í minni pokann, og finnst
mér ekkert að því, þótt það yrði
mamma þín, úr því það er svona
saklaust, eins og þú segir.
Hvernig er það annars — fer hún
mamma þín alltaf með þér á þessi
böll?
Öll bréfin. . .
Kæri Póstur.
Hvernig stendur á þvi að Vik-
unni berast svona mörg bréf viku-
lega? Eru öll þessi bréf frá les-
Útgefandí: VIIÍAN II.F.
Rilstjóri:
Gísli Sigurðsson (ábm.)
Auglýsingagtjóri:
Jóhannes Jörundssoti.
Framkvœmdaatjóri:
Hiimar A. Kristjánsson.
Eitstjórn og auglýsingar: Skipholtl
33. Slmar: 35320, 35321, 35322. Póst-
hólf 149. AfgreiBsla og drelfing:
BlaBadreifing, Miklubraut 15, siml
36720. Drelflngarstjóri: Óskar Karls-
son. VerS 1 lausasölu kr. 15. Askrift-
arverð er 200 kr. érsþriöjungslega,
grelðlst fyrirfram. Prentun: Hilmlr
h.f. Myndamót: Eaígraf h.f.
/ næsfa blaði verður m.a.:
* Danskur menntahroki og íslenzk handrit. Blaðamaður frá
Vikunni ræðir við Bjarna M. Gíslason í Ry á Jótlandi.
* Flökkustúlkan. — Smásaga þýdd úr esperantó eftir Ronald
Mc Donald.
* Morðinginn. — Sakamálasaga.
* Alltaf eitthvað nýtt. — Þátturinn um hús og húsbúnað fjallar
að þessu sinni um húsgögn og ýmsar nýjungar, sem hafa skotið
upp kollinum hérlendis og erlendis að undanförnu.
* Kvikmyndasagan: Skæruliðar næturinnar. Annar hluti.
* Kwame, Kwame, frelsari vor kemur. Síðari hluti greinar
Stuart Alsop urn Afríku. Dagur Þorieifsson þýddi.
* Vikan og heimiljkð. — Fjórar síður fyrir húsmæður.
* Skrifað stendur. Morkileg grein um það efni, hvort takmarR-
anir barnseigna séu ókristilegar. Aðsent bréf, sem Dr. Matthías
Jónasson svarar.
* Það er ekki saraa hvernig það er gert. Læknirinn gefur góð
ráð í sambandi við líkamleg störf.
* Vikan og tæknin, hjónakornin, í fullri alvöru eftir Drómund,
myndasögur, pósturinn, bridge, Æskan og lífið, framhaldssag-
an, verðlaunakrossgáta, draumaráðningar eftir Þór Baldurs,
Ungfrú Yndisfríð og síðast en ekki sízt stjörnuspáin, sem
enginn má láta framhjá sér fara.
minn nennir ekki að halda sér til.
Ég meina ekki að ég vilji hafa hann
penpíulegan, en þegar hann er hætt-
ur að raka sig nema svo sem þriðja
hvern dag, þá finnst mér nóg kom-
ið — það er eins og hann hugsi sem
svo: Nú er hann búinn að hremma
mig, og þá þarf agnið ekki að vera
eins girnilegt lengur. Mér finnst
þetta óréttlátt gagnvart mér. Hvað
finnst þér að ég ætti að gera? Hvað
á ég að segja honum?
Ein í öngum sínum.
--------Segðu honum nákvæm-
lega það, sem þú segir f bréfinu
hér að ofan. Ef það dugar ekki,
getur þú reynt að ganga tjásulega
til fara í svo sem tvo þrjá daga.
Það þola karlmenn ekki og lík-
lega verður það til þess að hann
fer að breyta betur.
Yangadans...
Kæra Vika.
Mig langar til að biðja þig að
hjálpa mér og gefa mér góð ráð.
Svo er mál með vexti, að mamma
endum? Ég skil ekki, hvað fólk vill
með því að skrifa sum þessi bréf.
Eru lesendur blaðsins haldnir ó-
stöðvandi skriffinnskulosta?
Fjalar.
Ég veit það ekki, en þú? . . .
VIKAN, Reykjavík.
Ég leyfi mér að bera fram þakkir
fyrir grein, sem ég las í Vikunni og
hét „Þrældómur í metnaðarskyni“.
Hún var um menn sem byggja
stærra en þeir hafa efni á og binda
sér óviðráðanlegan bagga. Ég las
hana þrisvar og kann hana utan-
bókar vegna þess að mér þótti hún
mjög góð og hvert orð sannleikur.
Komið þið með meira af svona efni
fyrir alla muni.
Svo var það svolítið annað, sem
ég vildi minnast á við Vikuna. Sem
bryti á Laugarvalni hef ég haft
talsverð kynni af íþróttamönnum
og það er einn alvarlegur Ijóður á
þeirra ráði, sem mér finnst, að
þeir þyrftu að losna við. Þeir koma
stundum hingað að Laugarvatni, en
þeim finnst alltaf, að þeir eigi að
fá allt fyrir ekki neitt. Af hverju
geta þeir ekki borgað fyrir sig eins
og aðrir menn? Ég get ekki skilið,
að íþróttamenn þurfi frekar að
biðja um ölmusu en aðrir. Þetta segi
ég ekki af því ég sé á móti iþrótt-
um, heldur vegna þess að þær verða
að vera reknar á einhverjum skyn-
samlegum grundvelli.
Eysteinn Jóhannsson.
bryti Laugarvatni.
Kæri póstur.
Þið birtuð einu sinni í Vikunni
mjög athyglisverða grein um hina
yfirlætislausu ökuníðinga, það er að
segja mennina sem „eiga götuna,“
og aka með þeim hraða, sem þeim
sýnist. Mig minnir að það hafi ver-
ið varpað fram þeirri spurningu,
hvort ekki væri rétt að hafa lág-
markshraða á einstaka vegum og
götum. Hafið þið nokkuð heyrt, að
þetta væri á döfinni? Ég er einn
af þeim, sem hefði mikinn áhuga
fyrir því að það kæmist á.
Jakob Jónsson.
Silfurtúni.
Við höfum ekki heyrt, að það
sé á döfinni að koma í veg fyrir
að menn geti ekið eins og þeim
sýnist á þröngum tvístefnugötum
og þar með stóraukið hættu á
umferðaslysunV- Hinsvegar höf-
um við ekki haft tal af lögreglu-
stjóra um þetta mál og það kann
vel að vera með einhverjar að-
gerðir síu í undirbúningi. Við
minntumst á þetta seinna,
Getur það verið , . .
Kæra Vika mín!
Ég er gasalega hrifin af strák,
sein ég hef nokkrum sinnum séð,
en ég hef bara aldrei talað við liann.
Heldurðu að þetta sé bara vitleysa
1 mér, eða getur maður verið ást-
fanginn i manni, sem inaður hefur
aldrei talað við?
Hvernig er skriftin?
Malla.
--------Það getur vel verið að
þú sért pínulítið skotinn í þess-
um strák — en hræddur er ég umi,
að langt sé enn í hjónabandið.
Hvernig væri að reyna að tala
við hann og kynnast honum? —
Ég þekki yngismey, sem er af-
skaplega skotin í Ijósmynd . . .
Skriftin er snotur, en dálítið
„karakter“laus.
vikaní 3