Vikan - 05.10.1961, Blaðsíða 39
stal peningunum, en henni hafi
síöan verið stolið frá honum. Sá,
sem það gerði, hefur svo lagt hana
i umslag og stungið henni síðan
inn i leynihólfið.
— Eruð þér að drótta þvi að
mér ... Mortimer reiddist.
— Já, i hreinskilni sagt. Ég er
að drótta því að yður. Ég get lika
frætt ýður á þvi, að þeir hjá Scot-
land Yard hafa komizt að raun
uin, að Spike hafi verið myrtur.
Hann var morfinisti, og fyrst i stað
töldu þeir, að hann hefði tekið of
stóran skammt. Morfinsdælan lá
hjá rúmi hans, en hún var þurr að
innan, svo það er langt, siðan hún
hefur verið notuð, en Holson var
skömmu látinn, þegar hann fannst.
Hann hefur ekki ráðið sér bana,
hvorki fyrir slysni né af ráðnum
huga. liann hefur verið myrtur ...
Fulltrúinn horfði stöðugt á Mort-
imer, á meðan hann sagði frá
þessu. Svo þagði hann við andar-
tak, rétt eins og hann byggist við
því, að Mortimer hefði eitthvað til
málanna að leggja, en þegar það
reyndist ekki, tók hann enn til
máls.
— Þegar ég átti tal við mál-
færslumanninn, sagði hann mér að
þér hefðuð verið staddur i Lund-
únum þennan dag, ... daginn, sem
Holson var myrtur.
— Það getur vel verið. En hvers
vegna segið þér það á þennan hátt?
stamaði Mortimer.
— Ég er einungis að fullvissa
mig um staðreyndir.
— Einmitt það? Þér eruð furðu-
djarfur. — Þér dróttið þvi að mér
að ég hafi gerzt sekur um morð,
án þess að þér hafið minnsta snefil
af sönnunum fyrir þeirri aðdrótt-
un. Sannleikurinn er sá, að þér
finnið ekki lausn gátunnar, og
grípið svo til þessa óyndisúrræðis.
Mortimer varð að vísu að viður-
kenna, að liann væri kominn i
harðri klípu en hann hafði búizt
við, en því fór fjarri, að hann ör-
vænti. Lögreglan gat að vísu dreg-
ið hann fyrir dómstólana, en eng-
inn kviðdómur mundi dæma hann
sekan eftir svo litilfjörlegum líkum.
Forbes opnaði nú skjalatösku
sina, d.ró upp litla minnisbók, blað-
aði í henni og rétti hana siðan að
Mortimer. — Lesið það, sem er
skrifað þarna á síðuna, sagði hann.
MoiHimer sá, að þetta var minn-
isbók Spikes Holsons. í dálkreit
morðdagsins liafði hann skrifað:
„Mortimer kemur í dag. Getur
reynzt hættulegur viðfangs.“ Og
neðst á siðuna var skrifað skjálf-
andi hendi með blýanti, svo dauft,
að það varð varla greint: „Myrtur.“
— Hvað,... hvað á þetta að
þýða? Hvers vegna eruð þér að
sýna mér þetta? spurði Mortimer,
náfölur i andliti.
Holson hafði þá ekki verið dauð-
ur, þegar hann livarf frá honum.
Hann hafði verið með nægilega
miklu lifsmarki til þess að geta
skrifað þetta eina orð,. .. Þetta
liræðilega orð, sem hann vissi, að
mundi duga gegn veganda sínum.
Mortimer rak upp öskur og stökk
á dyr.
Yfirlögregluþjónninn, sem beið
fyrir utan dyrnar, lagði sterklega
hrammana á axlir honum og stöðv-
aði liann.
— Það er hyggilegast fyrir yður
að meðganga, sagði Forhes kulda-
lega.
Mortimer lét fallast niður i stól.
þar sat hann eins og sært dýr,
sem bíður helstungunnar.
— Já, ég myrti Spike Holson,
stundi hann. Það er þýðingarlaust
fyrir mig að neita því nú . . . Svo
rétti hann nokkuð úr sér og bætti
við:
—En þið verðið að játa, að það
var kænlega undirbúið. Það mun-
aið engu, að það reyndist fullkom-
inn glæpur, það verðið þér að við-
urkenna, fulltrúi.
Það viðurkenndi fulltrúinn líka,
þegar þeir undirbjuggu skýrslurn-
ar nokkru siðar, hann og yfirlög-
regluþjónninn.
— \Já, það var kænlega undir-
búið. Ég hafði Mortimer að visu
strax grunaðan, en mér var ekki
nokkur leið að finna sannanir
gegn honuin. Þess vegna ákvað ég
að tefla á tæpasta vað i þeirri von,
að taugar hans biluðu.
Yfirlögrögluþjónninn klóraði sér
bak við eyrað. — Þér verðið að
afsaka, fulltrúi, en ég skil ekki al-
mennilega, hvað þér eruð að fara.
Ég hélt, að þér hefðuð verið búinn
að komast yfir sannanirnar, áður
en hann meðgekk ...
— Nei, — ónei. Þér hafið ]ió
varla trúað því, að Spike Holson
liafi skrifað þetta i minnisbókina?
Yfyrlögregluþjóninn hallaði sér
aftur á bak i stólnum og brosti
gleitt. — Nú fer ég að skilja. Hol-
son hefur ekki.. .
— Vitanlega hafði liann ekki
skrifað staf undir þessa dagsetn-
ingu. Það gerði ég sjálfur. Sam-
vizkukvöl Mortimers sá um hitt. ..
★
PRE
SRIÐJAN
HILNIR
RAUÐI ÞRÁÐURINN
í viðskiptum yðar
er viðleitnin til
fyrirtækisins og veit|i
yðar þá þjónustu og
efla og auka framgang
um Ieið viðskiptavinum
■rirgreiðslu sem unnt er.
HILNIR hf
Samkeppnin á m
og krefst þess að
vart þeim þáttum
á einhvern hátt
HILNIR
Vönduð vinr
gögnum fyrirti
vitni, um leið 0|
og örvar á þann
HILNIR hf
I
Vér höfum
andi mæli
svo sem: Pre
búða, ásamt
gögnum ými
Jafnframt
vinum voruni
beiningar, se
andi.
HILNIR hi
rkaðnum verður æ meiri
taðið sé á verði gagn-
iðskiptalífsins er snerta
fegurðarsmekk fólksins.
á öllurn prentuðum
ísins ber því fagurt
það vekur á sér athygli
átt viðskiptin í hvívetna.
m árabii unnið í sívax-
hvers kyns prentverki
tun bóka, blaða og um-
krifstofu- og verzlunar-
a tegunda.
í veitum vér viðskipta-
alla þá aðstoð og leið-
með þarf þar að lút-
1
Skipholti
Sími 35320.
VIKAN
39