Vikan - 05.10.1961, Page 11
HOFUÐBORGIN OKKAR
í vor sem leið birtist grein um ísland í bandariska viku-
ritinu Saturday Evening Post. Höfundur fór lofsamlegum
orðum um íslendinga, landslag á íslandi og veðurfar, og
i heild má segja, að greinin hafi verið mjög sanngjöm.
Hann minntist líka á Reykjavik og taldi hana miiína sig
á einstaka þorp á Nýja-Englandi um kvöldmatarleytið. Nú
vitum við ekki, hvernig þorp á Nýja-Englandi líta út, hvorki
um kvöldmatarleytið né í annan tíma, en ráða má af frá-
sögninni, að manninum hafi þótt Reykjavik helzti grámusku-
leg. Það er ekki hægt annað en taka undir með honum';
höfuðborgin okkar er ekki sérlega glæsileg á köflum, og
mætti rita um það margar þykkar bækur. Hér eru tvær
svipmyndir úr höfuðborginni okkar, sem tala sínu máli.
Annars vegar eru kappreiðar hjá Hestamannafélaginu Fáki
á skeiðvellinum við Elliðaár. Slagviðri er, eins og stundum
kemur fyrir á Suðurlandi, jafnvel þótt sunnudagar sé og
menn í sínu fínasta pússi. Völlurinn er fyrir löngu orðinn
eitt svað, og kláragreyin vaða djúpt i hann á sprettinum
og skvetta forinni yfir fáa, en áhugasama áhorfendur.
Veðreiðar eru yfirleitt hinar glæsilegustu samkomur er-
lendis. Þar safnast saman svokallað „flnt fólk“ og sýnir
sig i fötum eftir nýjustu tizku. Það þykir alveg sérstaklega
spennandi að fara á Derby; þar ríkir glaðvær stemning
í fallegu umhverfi. Þegar hugsað er til þess, er ekki liægt
annað en brosa að slagveðursreiðinni á Elliðaárvelli.
Hin myndin er af miðbænum, og hún kemur mönnum
líklega svolítið ókunnuglega fyrir sjónir. Vegna hvers er
Esjan svona? Af hverju er allt svona samþjappað, og hvaðan
hefur myndin verið tekin? Þvi er fljótsvarað. Myndin er
tekin úr turni Þjóðminjasafnsins, og ljósmyndarinn notaði
sterka aðdráttarlinsu. Það er út af fyrir sig ekkert merki-
legt. En hitt er merkilegt, að miðhluti höfuðborgarinnar
skuli að mestu leyti vera svo óhrjáleg hrófatildur og blikk-
skúrar.
,x.
í ’ r H "
n # 2 «‘ • ís m m
»tf ff« :; III
” 2 ^ t? #s«
i'Sir?'" ■ fij
llt