Vikan - 05.10.1961, Qupperneq 23
Marie Laforét er umtalaðasta
stjarnan í Frakklandi núna. Hún
er ekki nema nítján ára og er
spáð glæsilegri framtíð. í Frakk-
landi segja þeir að hún verði
jafnfræg B. B. áður en langt um
líður, en þræði aðeins aðrar göt-
ur. Marie er falleg stúlka með ó-
tilhaft hár, dreymandi augu og
I hefur rómantískt andlitsfall,
þar að auki er hún sögð einstak-
lega aðlaðandi. Hún hefur
spánskt blóð í æðum og hafði
upphaflega hugsað sér að verða
kennslukona. En örlögin gripu
inn í, Alexandra systir hennar,
sem er leikkona var að koma
fram í útvarpsþætti og Marie fór
með henni. Kvikmyndastjórinn
Raymond Rouleau koin auga á
hana þar og hvatti hana til að
taka þátt í útsendingunni og með
þeim árangri, að hún vann mik-
inn sigur.
Leikstjórinn René Clément
^flýtti sér að gefa henni aðalhlut-
verkið í myndinni „Heit sól“ þar
sem liún sýndi óvenjulega góðan
leik ásamt Alain Delon og Maur-
ice Ronet. Marie Laforét er mjög fjölhæf og hefur sérstaklega góða söng og
hljómlistarhæfileika. Hún hýr til skemmtileg og margbrotin lög á gítar, sem hún
gleymir svo jafnóðum aftur. Hún hefur lofað vinum sínum að kaupa segulband,
þannig að lögin gleymist ekki. M'arie hefur lofað sjálfri sér því að taka ekki nema
fyrsta flokks hlutverkum í framtíðinni. Hingað til hefur hún leikið unglinga í
kvikmyndum, en nú vonast lnin eftir að fá virðulegri hlutverk. Hún hefur þegar
leikið í þremur myndum og þær eru: Heit sól, „Saint Tropez Blues“ og Stúlkan
með gylltu augun.
Einn hinna ungu og frumlegu leikstjóra i Frakklandi Louis Malle, sem meðal
annars stjórnaði myndinni Elskendurnir, varð svo hrifinn af Marie, að hann gerði
mynd af henni í fullri líkamsstærð og sendi henni ásamt rósavendi.
Hér á eftir fer efnisþráðurinn úr mynd hennar, „Saint Tropez Blues.“ \Saint
Tropez er undurfallegt fiskiþorp, sem liggur við Rivieruna á milli Nice og Toulon.
Fyrr á tímum lokkaði það til sín listamenn, nú er það æskian, sem flykkist þangajð
i sumarfrium. Á þessum stað var liin margumtalaða mynd B. B. „Og guð skapaði
konuna“ tekin og einnig myndin „Sumarstúlka“ með Pa
.scale Petit.
Anne Marie Brémont (Marie Laforét) er ungur kven-
Stúdent úr góðri fjölskyldu, sem dvelur í París og les
samvizkusamlega undir próf, en foreldrarnir dvelja allt
árið um kring úti á landi. Jean-Paul Capelier (Jacques
Higelin), vel þekktur á búlunum í St. Germain des Prés,
býður Anne Marie að fara með honum í bíl sínum til
St. Tropez og vera þar í A'iku. Á leiðinni taka þau upp
í geðugan ungan mann, Jacques Bargeron (Pierre Mic-
liael). Þegar á áfangastað kemur kynnir Jean Paul hana
fyrir mörgu skemmtilegu fólki meðal annarra málaran-
Framhald á bls. 42.
I skák, sem telfd var af Jónefnd-
um skákmönnum í London kom upp
þessi staða. Hvítur lék síðast BhG og
hótaði máti með Dg7. Svartur svar-
aði með Hf8—e8 og leppaði hvítu
drottninguna hvítum til mikillar
skelfingar svo að hann gafst upp.
En þess í stað hefði hann getað
unnið skákina glæsilega í nokkrum
leikjum.
Hann gat leikið 2. Bxf7! Kxf7,
3. Hflt Kg8, 4. Hf8t!! Hxf8, 5. Dg7
mát. Af þessu má læra að aldrei á
að gefa skák fyrr en í fulla hnefana.
Bernstein — Kotov
Hvítur leikur og vinnur.
Lausn: 1. f4—f5t eöxfð
2. Dd2xh6tl! g7xh6
3. IIa8—g8 mát.
ölSum áttum
Nitján ára gamall aðdáandi Adams Faith skrif-
aði honum bréf fyrir nokkru síðan. Og það var
ekkert venjulegt bréf. Unga stúlkan skrifaði
hvorki meira né minna en 250 siður, — um
Adam og þýðingu platna hans fyrir sig, einnig
var dálítið minnzt á fjölskyldu hans. Það
hafði tekið hana sex mánuði að skrifa bréfið.
Elvis Presley er orðinn mikill fjölskyldu-
vinur hjá Pat Boone. Þeim söngvurunum kem-
ur prýðilega saman og dæturnar fjórar sjá ekki
sólina fyrir Presley.
Hljótt hefur verið um Frankie Laine upp á
síðkastið. En nú hefur hann sungið nokkur sí-
gild amerísk lög inn á plötu. Þau eru m. a.:
High Noon, Navajo Trail og Cool Water. Kann-
ski ryður hann sér aftur til rúms með þessari
plötu.
Og nýjustu fregnir frá Englandi herma, að
vinsældir Helen Shapiro vaxi stöðugt. Hún er
tíður gestur í sjónvarpinu og plötur hennar
renna út.
1 hverri viku eru gefnar út tvö til þrjú
hundruð nýjar plötur í Bandaríkjunum og að-
eins lítill hluti þeirra er spilaður I útvarpi eða
sjónvarpi. Þar er „plötubusinessinn“ gróðavæn-
legasta leiðin í „Showbusiness" eins og annars
staðar.
Danny Kay, sagði konu sinni dag nokkurn,
að hann ætlaði til rakarans. Það liðu fleiri
timar og hann kom ekki til baka. Konan
hringdi að lokum til rakarans og fékk þær upp-
lýsingar, að hann hefði ekki verið þar. Rétt á
eftir kom Danny heim. Hann hafði flogið frá
Los Angeles til Las Vegas til að fá klippingu.
Nýjastc tómstundaiðja hans er nefnilega flug.
Eartha Kitt, sem gift er enska iðjuhöldinum
William McDonald, á nú von á sínu fyrsta
barni.
Louis Prima og Keely Smith, hin vinsælu
sönghjón, hafa byggt sér hús i Las Vegas — í
kinverskum stil.
Tónskáldið Richard Rodger (Oklahoma,
South Pacific, Annie Get your Gun) og rit-
höfundurinn Alan Lerner (My Fair Lady,
Brigadoo) hafa í huga að gera söngleik um líf
Madame Gabrielle Chanel. Það er álitið að
gott efni leynist í ævisögu þessarar frönsku
ilmvatns og tizkudrottningu.
1 Hollywood hefur verið gerður fjöldi af
myndum um líf söngvara og hljómlistarmanna
og nú er röðin komin að píanóleikaranum,
George Shearing Þetta hefur áður verið í bí-
gerð, en á að gera alvöru úr því.
i-f
J0C-(A.
/ r
Meðan ennþá yr hægt að tina einhver blóm
ætluðum við að koma liér með skemmtilega
hugmynd, falleít og lientugt bókamerki. Það
sem þarf er þurrkað smáblóm, dálitill filmu-
bútur, þið eigið sjálfsagt ónýta filmu eða ein-
hver vina ykkar.
Til að ná negativinu af er filman lögð dá-
litla stund í volgt vatn. Himnan mýkist þá
upp og auðvclt verður að fjarlægja hana með
naglabursta. Síðan er filman látin þorna.
Blómið er hægt að þurrka fljótlega með
því að leggja það á milli þerriblaða og
otrjúka yfir með volgu straujárni, athugið
að blómið verði ekki brúnt. Nú er hægt að
lialda áfram á tvo mismunandi vegu. Annað
hvort er blómið lagt beint á milli filmurenn-
inganna, en þá verður það að hafa stífan
stilk, svo það brotni ekki. Eða blómið
er límt á þunnan pappa og síðan lagt á milli
filmurenninganna.
Þegar búið er að koma blóminu fyrir, er
filman klippt í mátulega lengd og svo er
sai.mað sainan með þykkum þræði, í fallegum
lit, ,4tir götunum utan með filmunni. Hafið
þráðinn langan svo þið sleppið við að hnýta.
Efst látið þið þráðinn bara ná þvert yfir. Þið
gangið svo frá saumnum með dúsk.
4—8 marengskökur, 2—3 blöð af matarlími, 75 g
súkkulaði, 1—2 matsk. kakó, 2 d. vatn, 1 eggja-
rauða, 1 matsk. sykur, 1 dl rjómi 5—6 möndlur.
Matarlímið er lagt í kalt vatn, smástund. Súkku-
laðið brotið í smástykki og sett saman við kakó-
ið og vatnið í lítinn pott, sem settur er yfir vægan
hita, þangað til allt er soðið. Það verður að hræra
í blöndunni, þar sem hún brennur auðveldlega við.
Matarlímið er tekið úr vatninu og sett saman við
sjóðandi súkkulaðið. Sykrinum og eggjarauðunni
er blandað saman og súkkulaðiblöndunni bætt út í.
Dálitlu af blöndunni er hellt i skál, þar ofan á
eru marengskökur rifnar, og svo er því sem eftir
er af blöndunni hellt yfir, þegar hún er farin að
kólna aðeins. Þegar þetta er orðið kalt er það
skreytt með þeyttum rjóma og brytjuðum möndl-
um. *
Æskan heldur alltaf jafnmikið upp á rock
og hér er ein nýjasta rockplatan, sem nefnist
„The Viscounts Rock“. Kvintettinn, sem spilar
er amerískur og nefnist The Viscounts. Þetta er
sex laga plata og lögin eru „Viscount Rock,“
„Along The Navajo Trail,“ „Hight Train,“
„Chug-a-Lung,“ og „When The Saints Come
Marching In“. Tvö næstsiðustu lögin eru eftir
The Viscounts sjálfa. Þetta er mjög skemmtileg
plata og eins og stendur á henni. Frá upphafi
til enda, gegnum sex lög, halda þeir uppi takt-
inum og fótur hlustandans stöðvast ekki. Plat-
an fæst í hljómplötudeild Fálkans og kostar
130.00 kr. +
Skemmtikraftar hvíla sig á marg-
víslegan hátt í hléum og sumir þeirra
geta alls ekki „slappað af.“ Bn lang-
flestir haga sér á sígildan hátt, reykja
og drekka kaffibolla eða tala við
framleiðendurna og tæknisérfræðing-
ana.
Þegar rocksöngvarinn, Neil Sedaka,
kom í fyrsta skipti fram í sjónvarpi
kom hann öllum á óvart í hvildar-
tíma með því að setjast við flygilinn
og spila Chopin og að hann þar að
auki spilaði einstaklega vel gerði
undrunina ekki minni.
Neil Sedaka er fæddur í Brooklyn
fyrir nítján árum og hann er einn af
vinsælustu söngvurum og dægurlaga-
höfundum Ameríku. Þegar sem smá-
skólastrákur söng hann með dans-
hljómsveit þegar hann mátti vera að
og bjó til dægurlög, sem bekkjar-
bróðir, hans, Howard Greenfield gerði
texta við. Þeir voru svo heppnir að
mörg lög þeirra voru tekin af þekkt-
um söngvurum eða hljómsveitum eins
og t.d. lagið „Stupid Cupid“, sem
Connie Francis söng, lag sem var efst
á amerískum og enskum vinsældalist-
um í fleiri vikur.
1 dag hefur Neil búið til meira en
350 lög. 1 fyrstu söng hann lög sín
inn á segulband og sendi þau siðan
til útgefandanna. Þannig uppgötvað-
ist hann sem söngvari, þó hann hafi
aldrei lært neitt til þess. Honum var
boðinn samningur við RCA og árang-
urinn af honum varð fjöldi metsölu-
laga eins og „I Go Ape,“ „The Diary“,
Fallin' “ og „No Vacancy" svo að
nokkur séu nefnd.
Það er langt bil á milli rocks og
sígildrar hljómlistar, en það er ekki
langt hjá Neil Sedaka. Hinn heims-
frægi píanósnillingur, Arthur Rubin-
stein var i dómnefnd, þegar Neil að-
eins sextán ára, reyndi sig í sam-
keppni sem pianóleikari og spilaði si-
gilda hljómlist. Hann sigraði glæsi-
lega og var látinn spila í útvarp á
hljómleikum.
Það, að Neil Sedaka stundar hljóm-
listarnám á hinum fræga skóla „Juill-
ard School of Music“ gefur í skyn al-
hliða hæfileika og vegna þessara
sjaldgæfu fjölhæfni virðist frama-
braut hans vera tryggð langt fram í
tímann.