Vikan - 05.10.1961, Side 25
Dr. Matthias Jónasson:
Fyrir þúsundum ára skráði einhver,
að framandi blóði
skyldi eigi veita viðtöku.
Nú fyrir skömmu dó hann vegna þess
að foreldrar þess voru
af sérstökum trúarflokki sem ekki
getur sætt sig við blóðgjöf
því „skrifað stendur" —
Handrita - Bjarni
Allir Islendingar vita, hvern við er
átt með þessari yfirskrift, og væri
hún þýdd á dönsku og föðurheitið
(Gíslason) sett i staðinn fyrir for-
nafnið, mundu Danir og jafnvel íbú-
ar allra Norðurlanda vita, hvern átt
er við, — Bjarna M. Gíslason rithöf-
und. Barátta hans fyrir heimflutningi
íslenzku handritanna hefur staðið svo
lengi og haft svo víðtæk áhrif, að
það er ekki hægt að ræða handrita-
málið, án þess að nafn hans sé á
einhvern hátt tengt við það. Hann
hefur skrifað merkar bækur um mál-
ið og gengið i berhögg við danska
prófessora og fræðimenn í ræðum
og ritum. Allir þeir Danir, sem hafa
fylgt okkur að málum, hafa stutt sig
við söguleg fræðirit hans og talið
hann sjálfskipaðan forystumann í
broddi þeirrar fylkingar, sem barðist
fyrir heimflutningi handritanna. 1
rauninni er Bjarni sá maður, sem
fann þá einustu leið, sem fær var
til lausnar málinu. Fram til hans
dags höfðum við Islendingar reynt
að ná handritunum frá Dönum með
þvi að bera málstað okkar undir
danska fræðimenn. Eíndirinn varð að Handrita-Bjarni 13 ára.
minnsta kosti alltaf sá, að kröfur frá
Islands hendi voru af dönsku stjórn-
inni bornar undir þá, en fræðimenn
danska háskólans reyndust okkur
alltaf andvigir. Bjarni sá, að sliku
þrefi var gagnslaust að halda til
streitu, og ákvað þess vegna að bera
málstað Islands undir dönsku þjóð-
ina sjálfa með því að skýra málstað
Islands fyrir henni á opinberum vett-
Hér er Bjarni 18 ára. Hann fór
utan til Danmerkur 1934.
Bjarni er kvæntur danskri konu,
Inger, og þau búa í bænum Ry
á Jótlandi. Hér er Inger ásamt
einu af þremur börnum þeirra.
VIKAN 25
vangi í ræðum og ritum. Hann fékk
alla lýðskólahreyfingu Dana til fylgis
við sig, og smám saman stækkaði
flokkur íslandsvinanna svo mikið, að
dönsku stjórnmálaflokkarnir gátu
ekki lengur látið málið fram hjá sér
fara. Og endirinn varð sá, að þjóðar-
viljinn reyndist sterkari en þröngsýnn
áróður vísindamannanna. 110 danskir
stjórnmálamenn samþykktu heim-
flutning handritanna gegn 39. Ætl-
unin var að senda handritin hingað
til lands 17. júní, en formanni íhalds-
flokksins tókst að koma í veg fyrir
það, að frumvarpið yrði afgreitt sem
lög, fyrst um sinn. En samkvæmt
grundvallarlögum Dana, gengur
frumvarpið um skilun handritanna i
gildi, eftir að nýjar kosningar hafa
farið fram. Biðin eftir handritunum
í þetta sinn verður því vonandi ekki
jafnvonlaus og langdræg og áður
Bjarni M. Gíslason á bókasafni
sínu.
fyrr.
Margir hafa unnið að þessu máli,
og aðrir þykjast hafa verið þar mik-
ið á varðbergi. En þegar handritin
koma til Islands, fer ekki hjá því,
að nafn Bjarna M. Gíslasonar verður
tengt við hinn mikla sögulega sigur
íslands á þessu sviði. Bjarni mundi
Framhald á bls. 32.