Vikan - 05.10.1961, Síða 27
II
4
’bUPn ap
HrútsmerkiS (21. marz—20. apr.): Þetta verður
í alla staði skemmtilegasta vika, og Þú munt lifa
góðu og áhyggjulausu lífi. Vinur þinn gerir þér
ómetanlegan greiða í sambandi við eitthvað, sem
þú og annar vinur þinn hafið haft á prjónunum
undanfarið. Vertu ekki svona tortrygginn í garð eins með-
lims fjölskyldunnar. Hann á það ekki skilið.
Nautsmerkiö (21. apr.—2Í. maí): Þú ættir ekki
að leggja of hart að þér í vikunni, því að engin
ástæða er til Þess Þessa dagana. Mál, sem valdið
hefur þér talsverðum áhyggjum undanfarið,
leysist nú á skemmtilegan hátt. Þú ferð eitthvað
út á sunnudaginn, og þá muntu lenda í einkennilegu ævin-
týri. Þessi nýi vinur þinn er ekki allur þar sem hann er
séður. Heillatala 14.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Þú ert held-
ur fljótfær þessa dagana og ræðst í hluti, sem þér
virðist afar einfaldir, en sannleikurinn er sá, að
það sem þú tekur þér fyrir hendur í vikunni
þarfnast skynsamlegrar yfirvegunar. Þessi vika
verður mjög óvenjuleg fyrir ungt fólk, og ekki ber á öðru
en Amor eigi einhvern þátt í því.
KrabbamerkiÖ (22. júní—23. júli): Þú virðist allt
Hof sérhlífinn þessa dagana og þér finnst allt upp
á móti þér, en sannleikurinn er sá, að þú virðist
bara hafa gaman af þvi að kvelja sjálfan þig.
Úr þessu verður að bæta hið snarasta, því að ell-
egar gætirðu lagzt i þunglyndi. Vinur þinn kemur með góða
uppástungu og þú skalt umfram allt fara að orðum hans.
Ljónsmerkiö (24. júli—23 ág.): Þér verður mjög
litið úr verki þessa dagana, vegna þess að þú
virðist ekki kunna að einbeita þér að því, sem
ástæða er til að leggja áherzlu á. Á vinnustað
gerist eitthvað, sem veldur þér einhverjum
úhyggjum, en úr því rætist fyrr en varir. Það hefur tals-
vert borið á öfund i fari þínu undanfarið.
Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Stefnumót í
vikunni getur haft mikil áhrif á gerðir þínar
næstu viku. Þú skalt skella skollaeyrum við
þeirri sögu, sem þú heyrir um vin þinn og reyna
að sýna mönnum fram á hið sanna. Þér verður
oftlega komið á óvart í vikunni og það yfirleitt gleðilega
— líklega er bezti dagurinn miðvikudagur.
Vogarmerkiö (24. sept—23. okt.): Þú munt eiga
við nokkur vandamál að striða í vikunni, en lík-
lega muntu sleppa skammlaust frá þeim flest-
um, ef þú gefur þér tima til þess að yfirvega
málin. Þú virðist of vanafastur og álítur gamlan
vana hið eina rétta. Þú verður að temja Þér meiri fjöl-
breytni í lifnaðarháttum.
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Þú skalt um-
fram allt varast að dæma náungann í vikunni,
því að með Því gætir þú einmitt dæmt sjálfan
þig. Hafðu augun vel opin á fimmtudaginn. Þá
gerist eitthvað sem skiptir framtíð þína miklu, og
illa getur farið, ef þú hegðar þér ekki skynsamlega. Gamalt
loforð, sem þú gafst vini þínum, rifjast nú upp fyrir þér.
Bogmannsmerkiö (23. nóv.—21. des.): Þér sinn-
ast eitthvað við einn vin þinn í vikunni, en þið
eruð allt of góðir vinir og tilefnið smávægilegt,
til Þess að verða reiðir hvor öðrum lengi. Þú
hefur ekki verið nógu hreinskilinn við ástvin
þinn undanfarið. Úr því verður þú að bæta hið snarasta. Þú
ferð i ókunnugt hús um helgina, og þar ríður á að koma
fram af háttvísi. Heillatala 5.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þetta verður
einstaklega Þægileg vika, og þótt ekki gerist
ýkjamargt merkilegt, munt þú lifa góðu lifi og
áhyggjulausu. Allt, sem bú skrifar í vikunni getur
skipt framtíð þína miklu. Þú skalt fara varlega
með peninga í vikunni, því að i næstu viku muntu þarfnast
meiri peninga en þú átt Þessa dagana.
VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.): Þér bjóðast
tvö stór tækifæri í vikunni, en ekki er þér ráð-
legt að notfæra þér nema annað þeirra. Hugsaðu
vel málið — liklega er þér hyggilegast að notfæra
þér þaö tækifærið, sem í fyrstunni virðist ógirni-
legra. Á vinnustað kemur fyrir leiðinlegt atvik, og átt þú
að einhverju leyti sök á Því. Heillatala 4.
FiskamerkiÖ (20. feb.—20. marz): Þú tekur veiga-
mikla ákvörðun í þessari viku, og er þér hollast
að yfirvega þetta vel, áður en þú leggur út í
neitt. Þú skalt vera heima við í vikunni til þess
að ljúka þessu verkefni, sem þú hefur með hönd-
um, því að í næstu viku getur það orðið um seinan. Fimmtu-
dagur skiptir konur mjög miklu. Heillatala 7.
m