Vikan - 05.10.1961, Side 31
LCT4-IK'I*:®
bátnum og Borgfirðingarnir að
flytja þá um borð í herskipiS. Tóku
þeir siðan til snæðings, áður en þeir
lögðu af stað.
HANDTAKAN.
Það er af foringjunum að segja,
að þeir héldu áfram eftir sleða-
slóðinni upp S'veif og yfir fjallið,
niður i Göngudal utan Gönguskarðs
og þaðan niður í Njarðvík innan við
Göngudalinn.
Þegar þeir komu í svonefndar
Grjótbrekkur neðarlega í Grjótfjalli,
urðu fyrir þeim 3 menn, sem sátu
þar við farangur, er lá á gilbarmi.
Forinjgarnir heilsuðu þeim með
Hitlerskveðju. En hinir tóku ekki
undir hana. Hleypti þá yfirforing-
inn skoti af skammbyssu sinni upp
i loftið og skipaði þeim að koma með
sér. Réttu hinir þá upp hendurnar
og fóru með þeim umyrðalaust.
Um klukkan 7 um morguninn var
barið að dyrum i Njarðvik, áður en
fólk reis úr rekkjum. Þau hjónin,
Pétur Pétursson póstur og Guðrún
Jónsdóttir flýttu sér á fætur. Var þó
búið að berja í annað sinn áður en
upp var lokið.
Var þar kominn ameriski foring-
inn með skammbyssu í hendi og
vildi ná til Borgarfjarðar í sima.
Var'hann blautur úr snjónum og
móður af göngu. Ekki tókst að ná
í neina stöð svo snemma, fyrr en
Borgarfjörður gegndi laust fyrir
klukkan 8. Foringinn sagði, að
annar foringi væri þar niðri á tún-
inu og gætti þriggja fanga, er þeir
hefðu tekið þar nokkru innar í vík-
inni.
Var honum þá boðið kaffi og þáði
hann það fegrnsamlega fyrir sína
hönd og hins foringjans, en fang-
arnir mættu hvorki koma inn né
þiggja neinar góðgerðir.
Frú Guðrún varð þá fyrir svörum
og mælti:
— Þeir eru menn eins og við og
fái ég ekki að gera þeim gott lika,
fær enginn góðgerðir hjá mér.
Foringinn gaf þá eftir, að fang-
llinar formfögru og
klassísku Weslock hurð-
arskrár, eiga miklum og
vaxandi vinsældum að
fagna. Þær sameina 3
höfuðkosti framleiðsl-
unnar, eru vandaðar,
fallegar og öruggar.
HÞintdnssoii ft (•.
Tryggvagötu 10.
Sölustaðir í Reykjavík:
J. B. PJETURSSON,
Ægisgötu 4.
BYGGENGAVÖRUR hf.,
Laugavegi 178.
Allir ntan hættu. A—V eiga 60 f bút. Suður gefur.
A K-8'-7
y D-7-5-4
+ Á-G-7-4
* 10-8
A D-G-10 N 3-2
V 10-9 ¥ G-8-2
♦ K-10-2 V A ♦ D-9-6-5-3
* K-D-G-6-3 S * Á-9-5
A Á-9-6-5-4
V Á-K-6-3
♦ 8
* 7-4-2
Suður Vestur Norður Austur
1 spaði 2 lauf 2 spaðar 3 lauf
3 spaðar pass 4 spaðar pass
pass pass
Útspil spaðadrottning.
Spilið í dag er úr rúbertubridge,
og i því kemur fyrir spilatækni, sem
kölluð pr „öfugur blindur“ eða
„dummy reversal.“ Það er yfirleitt
skoðun bridgefræðinga, að betra sé,
að trompliturinn skiptist 4—4 milli
handanna en 5—3. í spilinu að ofan
var 5—3 trompliturinn þó það miklu
betri, að n—s voru heppnir að
minnast aldrei á hjartalitinn, því
að liggi hjörtun 4—1, tapast 4 hjörtu
alltaf, en 4 spaðar þurfa ekki að
tapast, þótt spaðarnir liggi 4—1.
Þar eð báðir litirnir „brotna“, er
spilið mjög einfalt með allri annarri
útkomu en troonpi. Þá getur sagn-
hafi einfaldlega trorapað eitt lauf til
þess að fá tíunda slaginn.
En eftir trocnpútspilið varð suður
að spila mjög vel til þess að vinna.
Hann drap á. ásinn hjeima og spilaði
tigli. Ásinn í borði átti slaginn, enn
kom ligull, sem var trompaður. Nú
spilaði sagnhafi sig inn á tromp-
kóng í borði og spilaði meiri tigli
og trompi. Þá kom lágt hjarta drep-
ið á drottninguna í borði, og síð-
asti tigullinn var trompaður með
síðasta trompinu. Vörnin fær því
aldrei nema tvo á lauf og einn á
tromp.
Ástæðan fyrir því, að n—s spiluðu
frekar 4 spaða en 4 hjörtu, var sú,
að suðri fundust sín spil of veik
til þess að bjóða upp á nýjan lit á
þriðja sagnstigi. Hann var við þvi
búinn, að norður mundi segja pass á
þrjá spaða, og ánægður með að spila
bútinn. Hefði suður sagt hjartalit-
inn, þá hefði norður áreiðanlega
stokkið í fjögur hjörtu, sem eru i
þessu tilfelli jafngóður samningur,
þar eð hjörtun liggja tvö og þrjú. ★
ÁSTARSÖGUR,
ÆVINTÝRASÖGUR
og fleira skemmtilegt
lesefni
ALLT MJÖG ÓDÝRT!
Nokkur eintök eru enn óseld af
hinum geysivinsælu sögum Laug-
ardagsritsins og Vikuritsins og
fást nú fyrir helming verðs og
minna gegn póstkröfu. Höfum
fengið meira af nýjum, ódýrum
bókum. Sögur þær er nú fást
eru:
□ Heitt blóð .. nú aðeins kr. 16
□ Vilji örlaganna — — 20
□ Ógift eiginkona — — 18
□ Ólgublóð — — 16
□ Barátta læknisins — — 18
□ Babs hin ósigrandi — — 12
□ Morðið í skóginum — — 12
□ Leyndard. rauða hússins — 15
□ Ég sleppi þér aldrei — — 15
□ Riddari ástarinnar — — 24
□ Lífsgleði njóttu — — 24
□ Ólíkir erfingjar — — 24
□ Sjóræningjakonan Fu
(í bandi) — — 50
Vinsamlegast sendið mér undir-
rituðum 1 póstkröfu bækur þær,
sem ég hef merkt við hér að ofan.
NAFN
Heimilisfang
HOLTSGÖTU 31. REYKJAVÍK.
VIKAN 31