Vikan - 12.10.1961, Qupperneq 29
//©*#Ukftui
harðplast á borð
og veggi úr skraut-
lega mynstruðu
gerviefni í fjöl-
breyttum litum,
eða einlitar.
Yfir gljáflöt plötunnar er límd gagnsæ hlifð-
arhimna, sem ekki er tekin burt fyrr en
gengið hefur verið frá plötunni, þar sem
henni er ætlaður staður.
Þessi himna ver gljáflötin öllum rispum og
skemmdum í flutningum, geymslu og í hönd-
um smiðanna.
iicrmajuzi
hefur því sína miklu kosti, bæði fyrir selj-
anda og kaupanda.
[f?M\ Sighvatur Einarsson & Co.
írfTÍI Skipholt 15 - Símar 24133 og 24137
II
'hUPnar
HrútsvierTcið (21. marz—20. apr.): Þú munt
skemmta þér mikið í vikunni og á nokkurn ann-
an hátt en undanfarið, og er Það vel. Þú kynnist
manni, sem mun heilla þig í fyrstu, en brátt
muntu komast að því, að hann er ekki allur þar
sem hann er séður og hvergi fallinn til þess að verða kunn-
ingi þinn. Föstudagurinn er mesti heilladagur vikunnar.
Nautsmerkiö (21. apr.—21. maí): Það hefur borið
talsvert á afbrýðisemi í fari þinu í síðustú viku,
og ekki kannski að ástæðulausu frá þinum bæjar-
dyrum séð. En nú muntu komast að því að þú
hefur haft þessa persónu fyrir rangri sök. Á
fimmtudag eða föstudag kemur eitthvað fyrir, sem þú
hefur lengi beðið eftir, en áttir alls ekki von á svona
snemma. Einhver deila ris upp á vinnustað.
______ TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Þú skalt fara
varlega með peningana í vikunni, einkum skaltu
varast að leggja út í fyrirtækið, sem kunningi
einn stingur upp á við þig. Það er enn ekki tíma-
bært Þú hefur vanrækt eitt skyldustarf þitt síð-
ustu vikur, og nú verður þú að láta hendur standa fram úr
ermur, ef ekki á að fara illa. Heillatala 8.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Einhver gam-
all vinur þinn kemur talsvert við sögu þina í
Þessari viku og gerir þér ómetanlegan greiða.
Þetta getur orðið til þess að þið farið að umgang-
ast hvor annan meir en áður. Einhver fjölskyldu-
meðlimur veidur þér nokkrum vonbrigðum, en liklega
gerir þú of mikið úr þessu öllu.
Tjjónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þú skalt reyna að
hegða þér ekki í þessari viku eins og í vikunni
sem leið. því að þá var hegðun þín þér oft til
skammar. Þú reynir ekki nýjar leiðir nú orðið
og tekur þvi engum framförum. Reyndu að kynn-
ast nýjum vinum, sem þú getur eitthvað iært af. Helgin
verður dálítið óvenjuleg og allt öðruvisi en þú hafðir gert
ráð fyrir. Heilaltala 11.
Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Þetta verður
einkar ánægjuleg vika og þú munt fyllast aukinni
trú á lífið. Einhver, sem þú hafðir áður ekki
met'ð mikils, kemur nú talsvert við sögu, og þú
munt komast að því, að þið eigið margt sameigin-
legt. Þessi persóna gæti orðið þér góður vinur. Liklega
stendur einhver vinur þinn ekki við loforð.
VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Eitthvað, sem
þú segir í síma eða skrifar, verður tekið illa upp
og fært þér á verri veg, og er hætt við því, að
þetta eigi eftir að draga einhvern dilk á eftir
sér. Einn félagi þinn getur orðið til þess að rétta
hlut þinn. Sunnudagurinn er óvenjulegur dagur, en varastu
samt að falla í slæma gildru þann dag.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú ferð líklega
í ferðalag í vikunni, og þótt það verði ekki langt,
skiptir það hag Þinn talsvert miklu. Þú hefur
ekki komið fram við ástvin þinn af nægilegri
einlægni undanfarið, og hætt er þvi við að hann
Sýndu honum fullkomna hreinskilni •— ellegar
orðið til þess að hann fari að fjarlægjast þig
Bogmannsmerkiö (23. nóv.—21. des.): Þú hegðar
þér nánast sagt kjánalega á vinnustað í þessari
viku og verður þú gagnrýndur fyrir, og það áttu
sannarlega skilið. Láttu þetta aldrei koma fyrir
aftur ,því að í annað sinn getur þetta orðið mun
alvarlega. Á mánudag kemur gestur í heimsókn til þín, og
biður þig bónar. Reyndu að verða við því.
GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Líklega þrjózk-
ast þú við að gera það, sem yfirboðari þinn segir
þér i vikunni, og verður það til þess að varpa
einhverjum skugga á vikuna. Annars verður vik-
an yfirleitt skemmtileg. Um helgina rætist gömul
ósk þin, en þrátt fyrir það, verður þú fyrir einhverjum von-
brigðum i sambandi við það. Heillalitur grænt.
BVatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Þú munt
taka miklum framförum í vikunni, og líklega er
það einu áhugamáli þínu að þakka. Þú ferð í
samkvæmi, sem verður mjög skemmtilegt, enda
þótt leiðinlegt atvik komi fyrir undir lokin. Það
veldur þér eitthvað áhyggjum þessa dagana, og veiztu bezt
sjálfur, hvernig á að ráða bót á því.
Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Þú gerir allt
of miklar kröfur til eins vinar þíns, og líklega
stafar það af því að Þú hefur einhverja minni-
máttarkennd gagnvart honum, þótt engin ástæða
sé svo sem til þess. Föstudagurinn verður alls
ekki eins og þú og vinur þinn bjuggust við. Þú gleymir
einhverju í vikunni, og verður það til þess að þú missir af
skemmtilegu tækifæri.
<rv
vj
finni það.
gæti það