Vikan - 16.11.1961, Qupperneq 39
öxstutt saga:
Ftflgdi sjálfum sér
til grsfsr
Þa?S gerðist í einni og sömu andrá, ingjusamt. En hann átti ástkonu
að moldin hrundi af reku prests- á laun, Jeanette Gauthier, sem var
ins niður á líkkistuna, og tárvot annálnð fyrir fegurð og yndis-
augu syrgjandi ekkjunnar mættu þokka.
augnatilliti Louis Durand, þvert yf-
ir opna gröfina. Hann sá hvernig
hún varð stjörf af ótta og greip
hendi fyrir munn sér, eins og liún
vildi kæfa niður vein. En monsjör
Durand brosti glaðklakkalega til
hennar.
Það var útilokað, að nokkur
manneskja önnur gæti borið kennsl
á hann í þessu dulargervi — dökk
gleraugu og falskt alskegg, sem
hann hafði prýtt með ásjónu sína.
Hann hafði hikað lengi við áður
en hann tók ákvörðun sina. Það
var ástríða hans gagnvart öllu, sem
bar keim af spennu og æsingu, er
loks réði úrslitum. Það var yndis-
legt vorveður, og hann ákvað að
verða viðstaddur jarðarförina.
Enda þótt — þetta var nefnilega
hans eigin jarðarför!
Monsjör Louis Durand var auð-
ugur verksmiðjueigandi í Lyon.
Fyrirtæki hans blómgaðist stöðugt,
hjónaband hans virtist mjög ham-
hægur, enda algengt að hann yrði
mönnum að bana í brunahitunum
á þessum slóðum. Hann rannsakaði
vandlega allt i sambandi við sjúk-
dóminn, einkum allar aðferðir til
að framkalla „gervisólsting“, og
Framhald á bls. 42.
Og svo fór allt að ganga á aftur-
fótunum varðandi fyrirtæki hans —
kreppan skall á eins og reiðarslag,
og dag noklcurn var hinn atkvæða-
mikli verksmiðjueigandi horfinn úr
borginni Lyon. Það var látið í veðri
vaka opinbcrlega, að hann væri á
verzlunarferðalagi, sem ekki var
nema sennilegt. En hann var venju
fremur lengi fjarverandi að þessu
sinni, og það var ekki heldur ein-
kennilegt, þar sem hann var á leið-
inni til Alzir, og Jeanette Gauthier,
ástmey hans, var með í förinni.
Þau hjúin settust að i litla þorp-
inu, Tizi Quzon, og tóku þegar í
stað að búa sig undir framtíðina.
Þau álitu tryggt, að enginn bæri
kennsl á þau þarna, og væri þvi
engin hætta á að það yrði uppvist
að Jeanette væri ekki hin rétta
eiginkona Durands. Og dag nokk-
urn taldi Durand tíma til þess kom-
inn að hefjast handa um framkvæmd
lokaatriðsins í áætlun þeirra hjú-
anna — hann skrapp til Alzírborg-
ar og líftryggði sig fyrir 160,000
franka.
Nú var aðeins eftir að finna upp
einhverja „eðlilega" dánarorsök, og
Durand uppgötvaði brátt, að þar
mundi sólstingurinn einkar hand-
Sparið og kaupið ENGLISH ELEOTRIC’
AMERÍSK HAGKVÆMNI — ENSK GÆÐI. Sjálfvirku þvottavélamar og þurrkararnir eru byggð eftir amerískum sérleyfum.
Liberator þvottavélin er alger-
lega sjálfvirk og skilar þvottin-
um hreinum og undnum.
Liberator tauþurrkarinn sldlar
þvottinum mjúkum og þurrum.
ENGLISH ELECTRIC þvottavélamar
með kefla tauvindunni hafa sannað
fjölda ára góða reynslu.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Berið saman verðin á ENGLISH
ELECTRIC vélunum og öðrum
vélum og þér munuð komast
að raun um að þér sparið mörg
þúsund krónur.
Laugavegi 178
Sími 38000
VIKAN 39