Vikan


Vikan - 17.05.1962, Qupperneq 17

Vikan - 17.05.1962, Qupperneq 17
vart nazismanum og varð, ásamt bókabrennunum, eitt af því fyrsta sem gaf þjóðum annarra landa nokkra vísbendingu um hið sanna eðli nazismans, eins og það birtist síðar meir. Að þessu tvennu undanskildu má telja hina einstæðu sigurför naz- ismans á Þýzkalandi, frá því árið 1933 og þangað til i styrjaldarbyrjun, óvefengjanlega sönnun þess hvílíkum völdum er unnt að ná fyrir atbeina hins óskammfeilnasta, en um leið skipulagðasta áróð- urs, með því að taka alla nútimatækni á viðkom- andi sviði í þjónustu hans — og hefði hégómagirnd Hitlers, valdagræðgi óg oftrú hans á óskeikulleika sinn, ekki orðið til að villa honum sýn og hafna ráðleggingum Goebbels, er ekki að vita nema hann, eða þá arftaki hans, væri nú einvaldsherra yfir allri Mið-Evrópu — eða að minnsta kosti það. Goebbels gerði sér frá upphafi fulla grein fyrir áróðursgildi kvikmyndanna og leikhúsanna. Eftir að hann var setztur i ráðherrastólinn, lét hann það ekki lengi dragast að boða helztu framámenn kvik- myndaframleiðslunnar á sinn fund, þar sem hann hélt Ianga ræðu og lýsti því hvilikt hlutverk hinir nýju valdhafar ætluðu kvikmyndunum, og því brautargengi, sem þeim mundi veitt. Og i sept- embermánuði kom Goebbels á stofn sérstakri kvikmyndaeftirlitsdeild, „Reichsfilmkammer", inn- an ráðuneyti síns, sem meðal annars hafði með höndum endurskipulagningu allrar kvikmynda- framleiðslu undir yfirsjón Goebbels. Annars leið ekki á löngu áður en Goebbels lét og til sín taka í sambandi við kvikmyndir og leik- hús — og sannar það ekki hvað sizt hve allt ná- kvæmt og þaulhugsað skipulag getur gripið víða inn i gang málanna. Samkvæmt frjósemiskenningu þeirra nazistanna, taldi Goebbels sér það skylt að láta sem mest til sfn taka við framleiðslu á „úrvals- arium“, með þeim árangri að Magda, eiginkona hans fæddi honum barn allt að því einu sinni á ári hverju — auk þess sern henni leystist höfn oftar en einu sinni. Aftur á móti var útbreiðslumála- ráðherrann svo freknr til fjörsins, að hann eirði illa því bindindi, sem þannig var á hann lagt lengsb J il vinstri: Hnípin þjóð í vanda. Goebbels stend- ur við hlið foringjans og er sá eini, se.n er ekkert áhyggjufullur. f miðju: Goebbels öskrar á lýðinn. Til hægri: Tékkneska leikkonan, Lida Baarova, sem var ástmey Goebbels um tíma. Nú hefur hann orðið sérstakt áróðursráðu- neyti í Berlín og lífið leikur við hann. En hann verður sífellt að sanna yfirburði sína og karlmennsku og einn liður í því er að sigra konur og geta sem flest börn. loka öllum verzlunum þeirra daglangt með an hluta ársins. Auk þess var honum alltaf mjög í mun að sannfæra sjálfan sig og aðra um karl- mennsku sina og hæfileika til að ná valdi á konum, þrátt fyrir það — eða réttara sagt, einmitt fyrir það hversu bæklaður og væskilslegur hann var. Þótti þvi ungum og glæsilegum leikkonum það brátt vænlegast til listræns frama í kvikmyndum og á leiksviði, að vera útbreiðslumálaráðherranum innan handar og gera honum bindindið sem bæri- legast — og þótt einkennilegt kunni að virðast, var ekki að sjá að eiginkona hans hefði neitt við þá mannúðarstarfsemi þeirra að athuga á meðan allt slikt takmarkaðist við hjartagæzkuna og list- rænan metnað eingöngu. Eða þangað til tékkneska leikkonan og fegurðardisin, Lida Baarova kom i spilið, en frá því verður sagt síðar. Fyrst verður að minnast nokkuð á afstöðu Goebbels til atburða þeirra, sem kenndir hafa verið við nótt „hinna löngu hnifa“ blóðbaðið sem átti sér stað nóttina milli 29. og 30. júní 1934. Eins og áður er frá sagt, hafði fyrrverandi yfirboðari Goebbels, Gregor Strasser, dregið sig í hlé frá lireyfingunni árið áður, þar sem honum féll ekki framvinda málanna og einveldi Hitlers innan flokksins. Annar háttsettur foringi innan hreyf- ingarinnar, Ernst Röhm, upphafsmaður og skipu- leggjari SA-sveitanna, hallaðist mjög á sömu sveif og Strasser, en sem foringi nefndra sveita var hann svo voldugur i flokknum, að hann hefði getað tekið þar öll völd í sinar hendur, ef hann hefði G, L um of. Goebbels hafði alltaf verið sömu skoðunar og þeir Strasser og Röhm — að svo miklu leyti, sem unnt er að tala um skoðanir í sambandi hann h-,fi h^'JÍ'7TV T “T'"’"1 au, Vlð hann ~ að sú áiivörðun Hitlers væri varhuga- nokkru millibili, vinna skemmdarverk á at vinnutækjum þeirra og eignum, og dæma þá síðan til að greiða skaðabætur fyrir tjónið, þar eð þeir ættu sjálfir alla sök á slíku at- ferli. Að sjálfsögðu var Gyðingum vikið úr öllum opinberum stöðum og embættum, og aðstaða mennta- og' listamanna af þeim kyn- stofni gerð slik, að þeim var ókleift að vinna að hugðarefnum sinum. Hópmorð á Gyðing- um hófust þó ekki fyrr en síðar. Telja má að eitthvert snjallasta áróðurs- bragð Goebbels hafi verið það, er hann „stal“ 1. mai frá verkalýðshreyfingunni og þeim vinstrisinnuðu, og gerði hann að hátíðar- og baráttudegi þýzkra nazista, enda sá hann svo um að öll sviðsetning þeirra hátíðahalda væri svo stórfengleg, að annað eins hefur ekki sézt — ekki einu sinni á Rauða torginu Annað áróðursbragð misheppnaðist aftur „ móti gersamlega, hafði meira að segja þver- öfug áhrif við það, sem til var ætlazt og olli nazismanum miklum óvinsældum erlend- is. Það var bókabrennan mikla á Franz- Joseps torgi, og öll sviðsetningin i sambandi við þann ógeðslega atburð, bæði þar og í mörgum þýzkum háskólaborgum, þar sem bókabálin voru tendruð að skipan hans þann 10. maí. Raunar mun hann hafa séð það brátt sjálfur, að þar hafði hann stigið alvar- legt víxlspor, þvi að hann skipaði blöðunum að stilla frásögnunum af bókabrennunum injög í hóf. Þá varð ríkisþingshússbruninn vibent áróðursbragð; má kannski segja að á VIKAN 17

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.