Vikan - 17.01.1963, Side 4
BEZTU KAUPIN í DAG ERU í
COMMER COB
VÉLARSTÆRÐ 1390 C.C. — 43. 5 — 43. 5 Hp. V/4200 snúninga.
Þér fáið rúmgóðan 4 manna bíl, sem með einu
handtaki má breyta í sendiferðabeifreið (350 kg).
Gott útsýni - Bjartur - Sparneytin og síðast en
ekki sízt sérlega ódýr.
Bíiar til á lager. - Sýningarbíll á staðnum.
Rdftffikni b.f.
Laugaveg I68
Símar 20 410 og 20 411.
. . . Ýkjur
Vika min.
Það er þetta með hann mág minn:
hann ýkir svo voðalega, að ég er
yfir höfuð liætt að trúa honum.
Hann getur ekki sagt neitt án þess
að ýkja það a. m. k. til helminga.
Ég hef reynt að henda hcnyim á
þetta, en hann vill ekki heyra á það
minnzt. líg held, að þetta sé orðið
svo vanalegt að hann trúi þessum
ýkjum sjálfur. Er þetta ekki sjúk-
legt, Vika min? Hvernig get ég vanið
liann af þessum fjára?
Dúddí.
--------Ekki geri ég nú ráð
fyrir að þessar ýkjur í honum
mági þínum geri mikið mein, en
satt er það: það er dálítið hvim-
leitt að hlusta á slíkt dægrin löng.
Sjálf ættir þú að vera farin að
venjas þessum ýkjum, þannig að
þú getur komizt nálægt sannleik-
anum með því að draga vissan
skammt frá. Þetta er svo algeng-
ur kvilli, að það tekur því naum-
ast að vera að minnast á hann.
Bezta meðalið gegn slíku er yfir-
leitt að gjalda líku líkt: nú skalt
þú aldrei segja honum mági þín-
um neitt án þess að ýkja óskap-
lega — þannig að jafnvel honum
blöskri.
. . . Svar
Kæra Vika.
Okkur langar til að rökræða við
þessa merkilegu sveitafrú, er tók
svo stórt upp i sig i 49. tbl. Hún
rengir þennan 13 ára dreng, sem
skrifaði í 43. tbl., þar sem hann
segir, að sér finnist hann fá lágt
kaup. Það finnst okkur líka, har sem
við erum ekki nema einu ári eldri,
en fengum þó 1500 krónur á mán-
uði, en á hans aldri fengum við
1000 krónur á mánuði. Og svo rengir
hún hann um vinnutimann. Um
þetta getur hún ekkert sagt, því að
það fer mikið eftir því, hvað húið
er stórt. Við unnum minnst 13 tíma
á sólarhring, og svo voru þar þó
ekki nema 15 kýr, og þar að auki
var óþurrkatíð, en hvað sem tíðin
var vond var alltaf nóg að gera i
sveitinni. Þá ætti 13 ára drengur
að geta unnið fyrir a. m. k. 800
krónuin á mánuði.
Svo segir hún, að ef „barn“, sem
vinni í Reykjavik, fái 1000 krónur
á mánuði, verði það að borga 900
krónur heim, en hún skal athuga
það, sú góða kona, að unglingar á
þessum aldri eiga ekkert að horga
heim.
Svo viijum við að endingu segja,
að skynsamlegast hefði verið fyrir
hana að spara blekið og bréfsefnið,
vegna þess hvað dýrt það er í kaup-
félaginu.
Tveir borgarbúar.
. . . Neo-Dadaismi
„Athuguli maðurinn“ á Akureyri
ætlar ekki að gera það endasleppt
— Iiann skrifar okkur og skrifar,
og alltaf undir fyrirsögninni
„Handaskil"--------ég ætla einu
sinni enn að leyfa lesandanum að
spreyta sig á hans myrka stíl. Ég
er orðinn dauðhræddur um, að ég
sjái hara alls ekki handa minna skil
og hér sé einhver ógurlegur spelc-
ingur á ferðinni, verðandi Nóbel-
skáld og hvaðeina. Hér kemur síð-
asta ritverk spekingsins:
Ég heíd það sé engum vafa hund-
ið né neinum ofraun að átta sig á,
pf hann reynir af fremsta megni
að sjá handa sinna og liugar skil,
hvert ég er að fara. Ég er á leið
frá vöggu til grafar, með viðkomu
á margvislegum stöðum. Einn af
þeim cr Vikan. Annar er Akureyri.
Vikan hefir ef til vill gaman al'
því að fá fréttir frá Akureyri. Ég
ber því að dyrum hjá henni, þrjú
liögg að gömlum sið, og hún hýður
mér inn til að þiggja kaffi o.a se-gja
fréttir. Er mér þá efst í huga að
ræða það sem ég veit neyðarlegast
gerzt liafa í sambandi við andlegt
líf hérna fyrir norðan og sem ég
liefi haft mesta skemmtun af —
í laumi auðvitað. Hingað til! En nú
er ég kominn til að segja fréttir,
og Jiær hljóða þannig: Hið eilifa
almenna andleysi á Akureyri varð
skoplegt í andlitinu, þegar Helgi
Sæm, einn af okkar íslenzkustu
sjeníuin, gerði grín að því í langri
hlaðagrein I sumar. Andleysið tók
það allt svo alvarlega, einkanlega
af því að Helgi stóð uppi á kirkju-
tröppunum, þegar liann meðtók
andann um andleysið. Ég veit ekki,
hvort það er til nokkurs að vara
fákana við Helga Sæm, l)ví að J)ó
að hann sé hrekkjóttur, eru hrekk-
irnir sannir hjá manngreyinu. Og
dobbeltheimskan er svo fölsk og
lygin, að' hún trúir engum nema
sjálfri sér. Ekki er ég að segja, að
Helgi Sæm sé engill, þótt liann sé
skýr maður, enda eru englar ekki
hrekkjóttir í orðum og skoðunum,
til hátíðabrigða. Enda tefldi ég hon-
um þá ekki gegn heimskunni, allra
sízt dobbeltheimsku. En ef Vikan
gæti nú orðið að engli af því að
skilja grín Helga Sæm um Akureyr-
inga, þegar ég er búinn að skýra
málið' í þessum pistli og liinum,
sem á undan eru gengnir, þá liafa
allir, sem nefndir hafa verið til
liessa máls, fyrr og síðar, ekki til
einskis lifað. Að svo mæltu sný ég
mér að l)ví að moka snjóinn úr
kirkjutröppunum. Ég hefi gert það
tugum og hundruðum sinnum og
alltaf séð þaðan hið sama og Helgi
Sæm — þótt ég setji það fram á
annan Iiátt. Þannig eru handahlaup
lífsins.
Akureyri, 17. des. 1962.
Athuguli maðurinn.
-------Eins og ég segi: mað-
urinn er kannski spekingur mik-
ill, postuli nýrrar stefnu, verð-
andi leiðtogi íslands og kannski
heimsins. Ég er kannski svona
vitlaus, en mér finnst maðurinn
bara vera með munn- eða öllu
heldur rit- . . . svolítið, sem ég
þori ekki að birta á prenti, af
því að það er svo mikil ullabjakk.
. . . Vanhirða
Kæri Póstur.
Vinur minn einn, sem dvalizt
hefur erlendis i tvö ár, benti mér
um daginn á liryggilega staðreynd,
og finnst mér ærin ástæða til að
minnast á hana á prenti og vona
því, að þú birtir þetta bréf mitt.
Þessi vinur minn sagði sem svo,
að allir eða allflestir þeir veitinga-
staðir, kaffistofur o. þ. h„ sem ný-
búið hafði verið að opna, þegar
hann fór utan, hæru nú, eftir aðeins
tvö ár, með sér sorgleg merki van-
hirðu og sóðaskapar.
Ég fór að hugsa um þetta betur,
og ég verð' að segja, að ég er honum
fyllilega sammála. Það er lagður
gifurlegur kostnaður i að koma upp
dýrindis kaffistofum, veitingahús-
um og þvilíku, og er unun að því
að koma þangað svona fyrst í stað.
En eigendurnir eru svo fiknir í að
græða peninga, að þeir tima ekki
að sjá af svo sem tveimur dögum
á ári til lagfæringa. Áklæði trosna
upp, brunablettir koma á borð,
veggir verða útataðir, og svona
mætti lengi telja. Þessir ágætu eig-
endur átta sig bara ekld á því, að
með þessu hirðuleysi eru þeir sízt
af öllu að græða peninga. Staðirnir
yrðu langtum eftirsóknarverðari, ef
snyrtilega væri um þá gengið og
þeim haldið sómasamlega við. Um
leið og ekki er snyrtilegt um að
lítast á stöðum sem þessum, finnst
gestum ekki ástæða til að ganga
snyrtilega um. Ég ætlast ekki til
þess að allir eigendur kaffihúsa og
veitingahúsa, sem geta tekið þetta
til sin, spretti nú upp til handa og
fóta og breyti betur, en és vona
þó, að þetta bréf mitt verði um-
talsefni og leiði þannig eitthvað
gott af sér.
Með þökk fyrir allt gamalt og
gott og svo birtinguna.
Hlöðver.
. . . Smurt á
Póstur góður.
Ég er einn af þeim, sem sækja
veitingahús að staðaldri, og mætti
margt um okkar góðu hús segja, og
ýmislegt ekki fallegt — og það er
einmitt eitt af þessu ófallega, sem
mig langar til að minnast á i þessu
bréfi minu.
Þegar ég er vel efnaður — sem
kemur stöku sinnum fyrir — leyfi
ég mér oft að fara út að borða og
sitja siðan í góðum hópi við sumbl
á eftir. Ekki svo að skilja, að ég
sé nein fyllibytta, en mér þykir
vissulega gott að finna á mér breyt-
ingu. Ég veit ekki, hvort ég virðist
fyllri en ég í rauninni er, en ég
hef þráfaldlega rekið mig á það,
að þegar ég ætla að fara að gera
upp reikninginn, hafa þjónarnir
smurt fullmiklu á hann: bætt við
eins og tveimur, þremur sjússum
o. þ. h. Stöku sinnum hef ég verið'
svo lánsamur að geta hankað kauða
á þessu — en til þessa hef ég ekki
gert úr þessu neitt stórmál. Ég held
samt, að þessir þjónar séu óheiðar-
legar undantekningar ((vona það),
en undantekningin á bara ekki að
líðast. Það er argasta hneyksli, að
þjónar á opinberum veitingahúsum
leyfi sér að nota sér ölvímu gesta
til að plata út úr þeim ærinn skild-
ing, sem auðvitað rennur í eigin
vasa þjónanna. Um leið og einn
þjónn verður uppvís að slíku, á
skilyrðislaust að reka liann og engar
refjar.
Ég hef verið að ræða þetta við
fólk úti um hvippinn og hvappinn,
og ótrúlega margir hafa sörnu sögu
að segja.
Það væri nógu gaman ef einhver
fengist til þess að taka nokkrar
stikkprufur. Skrambi er ég lirædd-
ur um, að margur þjónninn slyppi
ekki með andlitið eftir slíkar pruf-
ur. iG. B.
-------Þessu skal látið ósvar-
að hér að þessu sinni, en fróð-
legt væri að heyra, hvort fleiri
hafa orðið fyrir þessu sama.
. . . Farin að grána
Iværi Póstur.
Ég er ung kona, ekki nema rétt
um þrítugt, cn ég á mér eitt voða-
legt vandamál: ég er farin að grána.
Mér finnst allir horfa á mig, alls
staðar finnst mér þetta bitna á mér.
Litla systir er meira að segja farin
að kalla mig „kerlinguna“. Ég hef
alltaf verið á móti hárlitun, því að
bæði finnst mér hún óeðliíeg, og
auk þess fer hún víst illa með
liárið.
Nú les maður stundum um meðul
í blöðum og tímaritum, sem eiga
bæði að lækna skalla og kalla aft-
ur fram liinn upphaflega, eðlilega
háralit. Getur þú bent mér á nokk-
uð slíkt?
Með kærri kveðju. S. L.
—------Sjálfum finnst mér oft
mjög aðlaðandi að sjá konur á
þínum aldri, sem farnar eru að
grána örlítið. Það gefur þeim oft
einhverja reisn. En ef þetta er
svona á sinninu á þér, finnst
mér, að þú ættir ekki að hika
við að lita á þér hárið — þetta
gerir orðið önnur hver mann-
eskja, og hin nýju hárlitunarefni
fara ekki nærri eins illa með
hárið (einkum hárskol/ og áður
var raunin. Það hefur enn ekki
verið fundið upp neitt allsherj-
armeðal til að lækna skalla og
endurlífga háralit, þótt markað-
urinn sé yfirfullur af alls kyns
blöndum. Sumar þessar blöndur
geta kannski orðið nokkrum
einstaklingum að liði, en einhlítt
er þetta aldrei. Þú skalt fara
varlega í að kaupa þér slíkar
blöndur.
GERBÉRA
HvaS er Gerbéra? Gerbéra er blóm, sem upprunnið er frá Austur-
löndum. Var það fyrst innflutt til Frakklands árið 1889, ári eftir
að það fannst í gullnámu í Transvaal. Blómið Gerbéra hefur
ótrúlega mörg og fögur litbrygði og hefur ætíð frá því það
fannst, verið stolt allra blómaunnenda. ORLANE í París hefur
nú valið tvö litbrygði Gerbérablómsins sem tízkuliti fyrir hina
glæsilegu konu 1962. Litirnir eru: OR MAIS & OR ROSE.
ORROSE: er sérstaklega ætlaður fyrir andlitsbjartar og ljós-
eygðar konur.
ORMAIS: er sérstaklega ætlaður fyrir konur dekkri yfirlitum
og dökkeygðar.
Gerbéra línan samanstendur af:
Varalit, naglalakki, make up (Créme Vestale), steinpúðri (Royale
Laelia), Lausu púðri (Poudre de Beauty), allt í OR MAIS eða
OR ROSE tónum.
ORLANE
PARIS
Oculus Regnboginn
Stella Tíbrá