Vikan - 14.03.1963, Blaðsíða 2
í fullri alvöru:
i
ÚTKOMAN VERÐUR ALLTAF
MARGFALT BETRI MEÐ PERLU
Þegar (aér hafið einu sinni þvegið með PERLU komizt þér að
raun um, hve þvotturinn getur orðið hvítur og hreinn.
PERLA hefur sérstakan eiginleika, sem gerir (evottinn mjallhvítan
og gefur honum nýjan, skínandi blae, sem hvergi á sinn líka.
PERLA er mjög notadrjúg. PERLA fer sérstaklega vel með þvott-
inn og PERLA léttir ýður störfin.
Kaupið PERLU í dag og gleymið ekki, að með PERLU fáið þér
hvítari þvott, með minna erfiði.
—----------------------------------------->
ma
BÍLAR OG
ÆTTARBÖND
Skömmu eftir áramótin urðu heit-
ar umræður í Borgarstjórninni út
af vagnakaupum SVR. Þar kom
fram hörð gagnrýni á það, að ekki
skyldi vera fleiri gerðir strætisvagna
í gangi hér í borginni en Volvo og
Mercedes Benz. Var bent á ýms
ættarbönd í því sambandi: Geir
Hallgrímsson borgarstjóri er einn
af eigendum Ræsis, sem hefur um-
boð fyrir Mercedes Benz og Gunnar
Ásgeirsson, bróðir Eiríks forstjóra
SVR, hefur umboðið fyrir Volvo.
Gagnrýnismenn bentu á það, að
til er a. m. k. ein gerð enn, sem
vel kæmi til álita, og sú gerð væri
meira að segja ódýrari en þessar
tvær. Var þar átt við Leyland, en
líklega eru engin ættartengsl milli
hans og SVR.
Um Leyland er það að segja, að
á árunum eftir 1950 komu hingað
nokkrir bílar af þeirri gerð. Þeim
þótti þá í ýmsum atriðum tæknilega
ábótavant, og er það kannski skilj-
anlegt, þegar haft er í huga, að
þessi gerð er framleidd í Bretlandi,
og Bretar eru ekki sérlega ginn-
keyptir fyrir nýjungum, sem ekki
hafa verið reyndar til hlítar. Líklega
er enn hægt að segja það um Ley-
landinn, að hann er ekki eins
,,moderne“ og hinar tvær gerðirnar,
sem nefndar hafa verið, en hitt er
líka víst, að þessir bílar eru smíð-
aðir með það fyrir augum að endast
og þola misjafna meðferð, og verk-
smiðjurnar vanda vel til hvers ein-
asta bíls. Leylandinn hefur enn-
fremur upp á að bjóða alla þá stærð-
arflokka, sem Strætisvagnar Reykja-
víkur nota nú.
Bæði Volvo og Scania Vabis
—■ Scania Vabis hefur aldrei verið
reyndur hér sem strætisvagn —
skipta mikið við þessar verksmiðj-
ur með einstaka hluta í sína bíla.
Sjálfskiptingin, sem er í nýjustu
Volvobílum SVR er t. d. frá Ley-
land, og Scania Vabis hefur notað
mótora frá Leyland í sína fram-
leiðslu. Manni gæti því virzt eðli-
legt, að bílaútgerðarmenn hér færu
að veita þessum brezka bíl nokkra
athygli.
En vitaskuld á SVR nokkrar
málsbætur. Volvo og Mercedes
Benz hafa reynzt vel við reykvísk-
ar aðstæður, og það er kostnaðar-
Framhald á bls. 49.
2
VIKAN 11. tbl.