Vikan - 15.08.1963, Qupperneq 31
Hér áður fyr hefðu
menn álitið það miður
góðan fyrirboða, hvern-
ig veðrið umhverfðist
einmitt daginn, sem hin
nýja kirkja í Skálholti
var vígð. Nú eru menn
orðnir svo skynsamir að
þeir hugsa ekki um
fyrirboða, reiði guðanna
eða neitt slíkt, heldur
bölva bara veðrinu á
gamla og góða íslenzka
vísu, og láta við það
sitja.
Einna verst fór veðr-
ið með kvenfélögin fyr-
ir austan, sem fengu
þetta gullna tækifæri
upp í hendurnar ,til að
vinna sér inn dálitla
fjárupphæð. Það var
búist við 20—30 þús-
und manns á staðinn,
og allar ráðstafanir
gerðar til að fæða þann
hóp með flatbrauðum,
pylsum og tyggigúmmí
eftir þörfum.
Veðrið gerði það að
verkum að 4—5 þúsund
manns voru á staðnum
þegar mest var, og jafn-
vel það fólk hafði troð-
ið bíla sína út af mat-
föngum og lagði varla
í það að lilaupa eftir
karamellum í þessum
kulda. Árangurinn varð
sá að sagt er að flat-
kökur með kæfu verði
stanzlaust á borðum
þar eystra næstu tvö
árin, þegar tekizt hefur
að koma niður öllum
pylsubrauðunum, sem
verða látin ganga fyrir.
Fréttum við að piltur
af einum bæ hefði kom-
ið heim með þúsund
pylsubrauð eftir hátíð-
ina
Um það eru allir
sammála, að kirkjan sé
ein hin fegursta á
landi hér, og á Hörð-
ur Bjamason sérstakan
heiður og lof skilið
fyrir sinn þátt í því.
Emil Jónsson, kirkjumálaráð-
herra og frú, berjast móti
rokinu.
Forðum fuku hausar af fs-
lendingum við Skálholt. Nú
fuku hattar erlendra sendi-
herra ...
STÖR-
MENNI
í
STORMI