Vikan - 02.04.1964, Síða 2
Prófraun íslenzks iðnaðar. Fyrstu nylonsokkarnir komnir á markaðinn.
t;vu sokkar eru m. a.
með sóla úr Helanca crepþræöi,
sem gerir þá sterkari, mýkri
og hlýrri. Þeir eru framleiddir í
nýjustu tízkulitum og snið þeirra,
sérstaklega lagað eftir fætinum.
C/V LXsokkarerunetofnir
og fylgir þeim ábyrgðarseðill.
Reynið eitt par og þér munuð
sannfærast um gæði þeirra.
t/ V Ll nylonsokkar eru
framleiddir úr ítölskum DELFION
nylonþræði í fullkomnustu vélum,
sem til eru á heimsmarkaðinum.
nylonsokkar fást
Erlendir sérfræðingar munu annast
eftirlit með framleiðslunni, sem he-
fur staðist gæðamat INTERNA-
TIONAL COMITÉ D’ELEGANCE
DU BAS sem FIRST QUALITY.
í flestum verzlunum
Akranesi
JgJIJ
§§l|i| f JÖd r';ýwví NVLON fci*s 'ferv YAKN eva
í fullri alvöru:
UM VIRÐINGU
ALNNGIS
Hvenær hefur ungur drengur
heyrzt tala um það, að hann ætli
að verða alþingismaður, þegar
hann verður stór? Líklega aldrei.
Ungir drengir ætla að verða flug-
menn, smiðir, bílstjórar, lista-
menn og yfirleitt allt annað en
alþingismenn. Þessi skoðun
ungra drengja er í fullu samræmi
við það álit, sem Alþingi hefur
meðai þjóðarinnar. Þetta er þó ,
ekkert einsdæmi hér; nýlega sá
ég í víðlesnu dönsku blaði skoð-
anakönnun um virðingu og álit
hinna ýmsu þjóðfélagsstétta.
Ríkisdagsmenn voru þar mjög
neðarlega. Löggjafarsamkoma ís-
lendinga er 1034 ára gömul og
hin elzta í heiminum að því að
sagt er. Alþingi ætti af þeirri
ástæðu einni að vera virðuleg-
asta stofnun landsins; ungir
drengir ættu að Iíta á það sem
háleitt markmið og keppikefli
að verða meðlimir í þessari
gömlu löggjafarsamkomu. En því
miður, það eru einhversstaðar i
maðkar í mysunni.
Á Alþingi er ráðið framúr mál-
efnum þjóðarinnar. Samt koma
sárafáir áheyrendur á þingpalla,
jafnvel þó rætt sé um stórmál,
enda mundi það líklega auka
virðingu fólks að mun fyrir Al-
þingi, ef enginn fengi að hlusta
á umræður. Þá sæist það ekki,
þegar einstaka þingmenn flytja
frumvörp og tala fyrir nálega
tómu húsi, en þeir fáu, sem
nenna að sitja í sætum sínum, j
grúfa sig niður í dagblöðin. Yfir '
sölum Alþingis er yfirbragð
kæruleysis og áhugaleysis. En
eins og áður er sagt: Sárafáir ,
koma á pallana og það er mjög
heppilegt.
Fyrir kosningar gerist það
jafnan, að efnt er til eldhússum-
ræðna. Þá komast þingmenn
tæplega hjá því að lenda inni í
stofum landsmanna með mælsku
sína og hugsjónir. Á þessum um-
ræðum hefur virðing Alþingis
beðið mesta hnekki. Hugmyndin
með eldhússumræður er í sjálfu
sér mjög góð og það ætti raunar
Framhald á bls. 51.