Vikan


Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 36

Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 36
f að hún gæti verið bendluð við neitt þesshóttar. Hún gekk út og inn ó heimili sendiherrans og sendiróðs- skrifstofunum, sem voru í sama húsi. Þar tæmdi hún papírskörfurn- ar á hverju kvöldi þegar hún gerði hreint — en færði Bruecker allt, sem í þeim var að finna. Svo gerðist það að grunur féll á Bruecker sjálfan. Ung stúlka, sem hann hafði átt vingott við, kvað hann hafa trúað sér fyrir því, að hann léti stjórnast af fégirnd fyrst og fremst og tæki því, sem bezt byðist. Varð hún uppvís að því, að stela leyniskjölum úr vörzlum hans og selja Þjóðverjum og var dæmd í fimm ára fangelsi fyrir vikið. Af öllu þessu féll svo sterkur grunur á Bruecker, að ekki mátti hann hafa neitt samband við mad- dömu Bastian framar. Var henni nú gert að færa Hubert Henry majór, starfsmanni í gagnnjósna- deildinni, allt sem til félli úr pappírs- körfunum. ESTERHAZY GREIFI OG MAJÓRINN, SEM Á HANN TRÚÐI. Þannig var þá umhorfs, þegar franski greifinn, Ferdinand Walsin Esterhazy majór, færði þýzka her- málaráðunautinum, Schwarzkoppen allmörg hernaðarleg skjöl, þann 1. september, 1894. Svo er að sjá sem Esterhazy hafi að þessu sinni gleymt að afhenda með skjölunum lista yfir þau, sem hann hafði gert. Hið svokallaða „bordereau". Þetta hefur aldrei verið upplýst fyllilega, en senni- lega hefur hann uppgötvað gleymsku sína nokkru síðar, snúið aftur og stungið listanum inn á milli póstbréfa hermálaráðunautar- ins. Gagnnjósnarinn Bruecker, sá er fallinn var í ónáð, sat um hvert tækifæri að vinna aftur það traust, er vinkonan sæla hafði af honum haft. Þann 26. september gerðist hann jafnvel svo fífldjarfur í örvænt- ingu sinni, að hann gekk rakleitt inn í anddyri þýzku sendiráðsbygg- ingarinnar, rakst þar á póstbréf Schwarzkoppens, stakk þar á sig plaggi nokkru og gekk á brott. Plagg þetta var skjalalistinn, „bord- ereau"-ið, sem síðar varð mikil- vægasta „sönnunargagnið" gegn Alfreð Dreyfus. Þóttist Bruecker hafa vel unnið og afhenti plaggið þegar í gagnnjósnadeildinni. Þeim í upplýsingaþjónustunni hafði verið það Ijóst í full þrjú ár, að njósnari nokkur var starfandi á vegum þýzka sendiráðsins, sem hafði aðgang að skjölum franska herforingjaráðsins. Og það var Hubert Henry majór, sem tekið hafði að sér að koma upp um hann. Henry var eini herráðsforinginn, sem unnið hafði sig upp úr röðum óbreyttra hermanna. Hann hafði sýnt dirfsku mikla og hreysti í styrj- öldum, bæði í nýlendunum og á meginlandi álfunnar og verið út- valinn sem meðlimur í hina háu samkundu til tákns um viðurkenn- ingu þeirrar hugsjónar, að lýð- ræði skyldi gilda — einnig innan hersins. Þrátt fyrir allt varð hann þó aldrei aðnjótandi fullrar viður- kenningar af hálfu samstarfsmanna sinna. Voru þó margir þeirra honum lægri að tign, en meiri ættar, og litu því niður á hann, og hlaut hann því að viðurkenna það fyrir sjálf- um sér, og ekki sársaukalaust, að víða voru honum lokaðar dyr sem því aðeins mundu Ijúkast upp fyrir honum, að hann fæddist aftur, og þá af ættmeira foreldri. Og þó að starfsfélagar hans gætu komið glaðklakkalega fram við hann á vinnustað, hurfu þeir honum að starfi loknu inn I þann heim, sem var þeirra, en gat aldrei orðið hans. AUÐUNNIÐ HERFANG. Þegar Esterhazy greifi þóttist hafa þörf fyrir að eiga vikagóðan vin í annarri skrifstofu, varð Henry honum auðunnið herfang. Ester- hazy var borinn yfirstéttarmaður, Henry hafði orðið að vinna sig upp metorðastigann. Esterhazy var fæddur í París, en kynjaður úr Ung- verjalandi, af frægri aðalsætt þar ■í landi. Faðir hans hafði tekið þátt f Krímstríðinu sem franskur her- foringi. Hafði greifinn misst foreldra sína ungur, og alizt upp að miklu leyti í heimavistarskólum austur- ríska hersins, þeim er opnir stóðu ungum mönnum af miklum ættum. Sem hermaður hafði Esterhazy unnið sér frægð og frama, og hlot- ið heiðursmerki fyrir hreysti og hugdirfsku í styrjöldinni 1870. Af mannkostum hans fór aftur á móti minni saga, og stéttarbræðrum hans, herforingjunum, varð tíðrætt um undarlegar fjárreiður hans. Hann hafði kvænzt auðugri konu af mikilsvirtum frönskum aðalsætt- ur, en sóað öllum heimanmundi hennar, sem ekki var neitt smá- ræði. Seinna hafði hann gerzt með- eigandi í fínu hóruhúsi, sem sótt var af æðri stéttar mönnum, og auk þess haft mikið fé út úr Rotschild baróni, á þeim forsendum að hann væri hagsmunamálum Gyðinga sér- lega hlynntur — en var um leið náinn kunningi ritstjóra andgyð- ingamálgagnsins „La Libre Parole". En Henry majór var algerlega blindur á báðum augum gagnvart göllum Esterhazy greifa. Bauð greifinn honum að eta og drekka með sér, og beitti mjög glæsibrag sínum og íburði í lifnaðarháttum til að ná virðingu hans og trúnaði. Um þetta leyti var Esterhazy greifi herfylkisstjóri í Rúðuborg, hafði hann einsett sér að verða meðlim- ur í herforingjaráðinu, en vissi þar engan líklegan sér til fylgis, ann- an en Henry majór. Henry majór þótti það hins vegar ólýsanlegur heiður, að greifi, kynborinn Eester- hazy, skyldi leita til hans um að- stoð. Æðsti maður gagnnjósnadeildar- innar, Sandherr ofursti, var frá Lorraine, ákaflega tortrygginn I garð allra erlendra manna og hat- aði allt, sem hafði einhvern þýzk- an keim. Esterhazy-ættin var alltof alþjóðleg til þess að hún félli hon- um í geð, og gerðist hann því al- gerlega mótfallinn, að Esterhazy greifi yrði kjörinn til að taka sæti í herráðinu. Greifinn gafst þó ekki upp í fyrstu lotu, en hélt áfram að tryggja sér vináttu og fylgi Henrys majórs, sem hann kynnti meðal annars fyrir vini sínum, Drumont, ritstjóra hins andgyðing- lega málgagns, „La Libre Parole". Það nálgaðist kaldhæðni örlag- anna, að Henry majór, sem hafði tekizt á hendur það hlutverk, að koma upp um njósnara Þjóðverja gg — VIKAN 14. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.