Vikan


Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 41

Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 41
bland af heimili hans og prent- smiðjunni. Hann var að þrykkja af. Hann var með langan spalta í höndunum. Eða var það ekki spalti? Var það konan hans og barnið? Hann vissi það ekki, en hann mátti ekki missa spaltann. Allt stóð og féll með því, að hann héldi honum. Hann sá þrykkingapressuna langt í burtu og það var fullt af fólki í salnum. Þetta var allt stelpan. Græn- ar stretbuxurnar og græn og hvít peysan, sem strengdi vöffin yfir þrýstin en ekki of stór brjóstin. Þetta voru hundrað stelpur, en þó aðeins þessi eina. Hún teygði út tvöhundruð hendur og hló hundrað munnum. Tvö hundruð augu glömp- uðu við honum yfir fingrunum þús- und, sem gripu í satsinn. Þetta voru ekki lengur blýlínur, þetta var kon- an hans og hún hélt á litla drengn- um í fanginu. Hann ríghélt utan um þau bæði og ruddist gegnum þessar hendur, þessa munna, þessi augu og þessa fingur. Loksins náði hann að þrykkingapressunni og sparkaði og barði og klóraði til þess að halda konunni og barninu, hann varð að þrykkja þau af. Loks hafðist það, stelpan eina og hundr- að rak upp háan, hæðnislegan og lítilsvirðandi hlátur, um leið og hún sleppti konunni og barninu, sem samstundis urðu aftur að glitrandi blýlínum. Hann lagði satsinn í pressuna og bjó sig undir að þrykkja af. Það var tekið í öxlina á honum. Hann barðist nokkra stund við að halda svefninum og draumunum, en vakan bar hvort tveggja ofur- liði. Hann lauk upp augunum. Það var stúlkan, sem hélt í öxlina á honum. Blá augun voru stór, og Ijóst hárið féll úfið niður með vöng- unum. Hún var komin úr stretsbux- unum og var aðeins í litlum, hvít- um buxum og þunnri, Ijósblárri peysu, sem var ekki nema hálf hneppt að henni. — Hvað er að þér? spurði stúlk- an. - Að? — Þú lézt svo illa. Barðist um. — Mig dreymdi víst eitthvað. — Ekki hefur það verið gott. — Vakti ég þig? — Ég var ekki sofnuð. — Hvað er klukkan? — Hálf sex. — Af hverju svafstu ekki? — Ég fór út að ganga. Ég fór up á fellið hér fyrir ofan og svo- lítið um dalinn. Það er fallegt, þegar sólin er að koma upp. Og allir sofandi. Hún reyndi að tylla sér fyrir framan hann, en þar var lítið rúm. Fáklæði hennar angraði hann. — Ætlarðu ekki að reyna að sofa? — Ég hélt, að þér liði illa í draumnum. — Já. Þakka þér fyrir. Nú er það búið. Hann gerði sér upp geispa. — Ætlarðu ekki að vera svolít- ið skemmtilegur? A J . J . j . j . J . J . J \ v . J . j . J\ j\ J . J\ J . j . >. >. J\ j . >. J . J\ J\ j . J\ j\ j . j . J . J . j < Ji J i Ji J t J s. J i J i J< J i J i J i J i J s. J< J i J\ J L J V. J \ J\ J\ J i A M J\ J< J\ J \ J< Ji J< J\ J \ J\ j\ J i J< J< J< J < Ji J \ J i J i J\ J< J< J< J< J< J i J L J < J < J V J i J< J< J< J i J i J i J< J i J i J i J s. J\ J\ J< J i J< J< J s J s J< J S J\ J< J< J s J < J< J s >s J s. J< J s. J < J< J< J< J< J i J< >s. J s. J i >s. J i J i J\ J< J< J< J< J i J i Fallegir sokkar sem fara vel og endast lengi ISABELLA eru gerðir úr vandaSasta PERLON þræSi, sem völ er á. Nú eru fáanlegar 2 fegundír af ÍSABELLA tSABELLA ÍSAB ELLA Grace Monika hinir alþekktu saumlausu smámöskva sokkar, sem kunnir eru fyrir endingu, góða lögun og fallegt út- lit. ný tegund af fínum sokk- um með sérstakri, vand- aðri tá-gerð með góðri teygju, en engan saum undir iljum. Almennt útsöluverð: Kr. 36,00. Kr. 40,00. ÍSABELLA lækkar sokkareikninginn - eru meira viröi en þeir kosta ÁBYRGÐ er tekin á ÍSABELLA sokkum. Ef í Ijós kemur að sokkar séu gallaðir, áður en þeir eru teknir í notkun, verður nýtt par látið í stað- inn fyrir hvert par sem gallað er, ef umslagið fylgir. ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO. H.F. VIKAN 14, tbl. —

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.