Vikan


Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 20

Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 20
Framhaldssagan LEVNDAROÖMUR TURNSINS Það fró hrollur um Marian og hún leit aftur fram á veginn. Sums staðar var hann nægilega breiður, en aðrir kaflar hans voru það mjóir, að þeir hlutu að vekja ótta hjá lofthræddu fólki. En hún varð að hálda áfram. Hún mátti til að litast um inni í turninum. Hann dró hana að sér með ómótstæðilegu afli. Hún gekk niður þrepin á klöpp- ina og beygði inn á stíginn. Hún varaðist að líta niður í flæðar- málið og reyndi að horfa stöðugt á stíginn framundan. Marian reyndi að hugsa um eitthvað sem gæfi henni öryggi, og skyndilega varð henni Ijóst, að hún var farin að hugsa um Alan Chard. Hún hugsaði um sólbrúnt andlit hans og sterkar hendurnar, sem höfðu lyft henni upp í bátinn. Nú fann hún bezt hve mikið hún laðaðist að hon- um. — Hjálpaðu mér núna, Alan, hvíslaði hún, og síðasti spölur- inn varð henni nú auðveldari. Þetta hafði aðeins tekið stutta stund. Tveggja mínútna áköf taugaspenna og þá var hún kom- inn á öruggan stað — í bili. Hún dró andann djúpt og gekk í kring- um bygginguna þar til hún fann dyr, sem sneru að sjónum. Yfir þeim voru tveir litlir gluggar, grafnir djúpt inn í múrvegginn. Við enda stígsins stóð lag'Jcgur Mávur stóð á bjargbrúninni maður með bros á vör og beið rétt hjá og starði á hana. Allt e^ir henni. í einu opnaði hann gogginn, gargaði hátt og flaug út á haf- ið. Hún stóð ein eftir, ekkert sjáanlegt í kringum hana annað en himinn og haf og svo ein- manalegur turninn. Aftur fór um hana hrollur. Hvað mundi hún finna á þessum undarlega stað? Hennii; fannst sem Joe frændi stæði við hlið henni þegar hún lyfti slánni og ýtti þungri eikarhurðinni inn. Fyrstu viðbrögð hennar voru vonbrigði. Bogalagað herbergið var tómst, nema nokkrir kassar stóðu upp við einn vegginn. Við annan vegg var eitthvað, sem líktist steinbekk, og þykkt ryk var yfir öllu. Hún gekk innar og sá þá járnstiga bak við dyrn- ar. Hann lá upp á aðra hæð, þar 2Q — VIKAN 14. tbl. EFTIR TRACY ORDE 3. HLUTI Frændi Marian dó og arfleiddi hana óvænt að öllum eignum sín- um, en frændfólkið, sem hugsaði um hann undir það síðasta fékk ekki neitt. Marian fer að vitja eigna sinna og fær góðar mót- tökur. Hún fer að vitja um hum- argildrur með frændanum Paul og hefði drukknað í þeirri ferð, hefði ekki Alan Chard rithöfund borið að henni til bjargar. Eftir þetta finnst henni dauði frænd- ans tortryggilegur og Paul sömu- Iisiðis. Hún kemst að því, að hann skuldar stcrfé vegna veðreiða- brasks, en að lienni frágenginni, er Paul og fólk hans næst erfðum eftir gamla manninn. Ákveðin í að leysa gátuna laumast Mari- an til að skoða gamla turninn á bergbrúninni, þar sem frændi hennar dvaldi löngum stundum og hrapaði síðast til bana. sem litlu gluggarnir voru undir hvolfþakinu. Þar kom hún í einkennilega vistlegt herbergi, þrátt fyrir rykið, sem þakti þar allt. Á hvít- um veggjunum héngu stjörnu- kort og myndir af landslagi á tunglinu. Dökkt, kringlótt teppi þakti gólfið og á því stóð hæg- indastóll og fallegt gamalt skatt- hol. Bækur voru alls staðar, en hún sá engan stjörnukíki. Það eina, sem virtist vera eftir af honum, var stöpullinn, sem hægt var að snúa í hring og stóð í miðju herberginu. Hún gekk að skattholinu. Henni féll illa, að þurfa að snerta nokkuð af því sem Joe frændi

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.