Vikan


Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 16

Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 16
UNDIR 4 AUGU Effir QK. að orð hefur legið á einu veitingahúsi höf- uðstaðarins nú um nokkra hríð, að karl- menn sem væru að leita sér að rekkjufélaga yfir nóttina, gætu vandræðalaust fundið hann (hana) þar, ef þeir hefðu þúsund krónur við höndina, sem þeir gætu glatt rekkjufélagann með um leið. Svo ítrekaðar eru þessar sög- ur orðnar, að ef þær eru all- ar uppspuni einn, þá er meira skáldað í höfuðstaðnum en marga grunar. Talað er um ákveðin sæti, sem þessar stúlk- ur sitja jafnan á, og er kall- aður „þúsund króna bekkur- inn“, og sagt er að þessar greiðviknu stúlkur séu jafn- vel farnar að klæðast nokk- urskonar einkennisbúning, svo að menn þurfi ekkert að fara í grafgötur með það að þeir séu á réttum bekk og tali við rétta stúlku. Einkennisbúningurinn er ... nei, annars. Það er ekki rétt að þær fái ókeypis auglýs- ingar hérna. Slíkar auglýsing- ar kosta þúsund krónur. Ef þeim finnst karlmenn of lengi að koma sér til að ræða viðskipti, taka þær gjarnan af skarið og hefja raunhæf- ar viðræður. Kunningi minn einn kom þarna fyrir nokkru, og vissi þá ekkert um þessi mál, en fékk sér í glas og tyllti sér á þægilegan bekk rétt hjá barnum, við hliðina á einkar snoturri stúlku. Þau tóku brátt tal saman og fór vel á með þeim, en ekki báru kynferðismál á góma, þar til stúlkan færði sig allt í einu nær honum á bekknum, lagði hné sitt að hans og þrýsti vel á eftir um leið og hún sagði undurblítt: „Eigum við að koma að ólátast?" onum leizt vel á það, og hann fullyrðir að það hafi verið skemmtileg- ustu ólæti, sem hann hefur lent í. Sagt er að þessar stúlkur séu yfirleitt kurteisar og til- litssamar, enda margar hverj- ar aldar upp á „góðum heimil- um“. Sögð er sú saga um ann- an herramann, sem ekki var eins utanveltu í þessum mál- um og ólátabelgurinn. Hann fór vitandi vits að bekknum og settist þar hjá einni ein- kennisklæddri, og ekki leið á löngu þar til þau höfðu kom- ið sér saman um næturstað. Þau bjuggust því til brott- ferðar hið bráðasta, og herr- ann tók fatamiða stúlkunnar til að ná í kápuna hennar. Hún bað hann þá að afsaka augnablik á meðan hún skryppi frá. „Allt í Iagi“, sagði hann, „hvert ferðu?“ „Ég ætla bara að tala við kærastann minn, — hann er hérna inni.“ „Kærastann þinn... ? Ertu vitlaus . . . ætlarðu að láta hann vita af þessu?“ „Já, það er allt í lagi. Hann veit af þessu. Við erum nefni- iega að safna okkur fyrir íbúð“. g úr því að við erum farin að ræða um svona hluti, er kannske ekki úr vegi að ég segi ykkur eina í viðbót, sem ég get þó ekki sannað. Það var maður, sem varð yfirleitt ekki gott til kvenna, því hann var ekki beint lag- legur, og svo horaður og renglulegur að hörmung var að sjá. Hann vildi samt ekki gef- ast upp, og einhverju sinni var hann staddur í fyrr- greindu veitingahúsi, og fór að stíga í vænginn við mynd- arlega stúlku, sem þó var sýnilega búin að slíta barna- skónum, og vel það. Það fór vel á með þeim, og lauk kvöldinu þar með því að hann fékk að fylgja henni heim. Hún bauð honum svo inn upp á drykk, og áður en Iangt um leið vísaði hún hon- um til svefnherbergis síns og sagði honum að afklæðast og leggjast í rekkjuna. Hann varð allshugar feginn að fá svona þægilegan nætur- stað og myndarlegan rekkju- naut, og snaraði sér úr fötun- um þegar hún hafði farið aft- ur út og lokað á eftir sér. Hann var komin upp í og beið í ofvæni eftir næsta at- riði, þegar hurðin opnaðist skyndilega og konan kom al- klædd inn, með þrjá litla stráka á eftir sér. Hún gekk að rúminu, svifti sænginni ofan af manninum, og benti strákunum á hann um leið og hún sagði: „Þarna sjáið þið bara strák- ar, svona verðið þið ef þið gegnið ekki og takið inn lýsi . . .“ Ég fékk að sitja í hjá vini minum um daginn, frá Hafn- arfirði til Reykjavíkur. Á und- an okkur ók stór og mikill vörubíll, sem aldrei vildi hleypa okkur framúr. í hvert skipti, sem vinur minn reyndi að komast fram hjá honum, þá annaðhvort beygði hann inn á veginn, eða jók ferðina þangað til aðrir bílar komu á móti, og ekki var hægt að taka fram úr. Loks komumst við til bæj- arins, og vörubíllinn stoppaði við Miklatorg, og vinur minn ók upp að hliðinni á honum á hinni akgreininni. Hann opnaði gluggann og kíkti upp til vörubílstjórans. „Og hvað svo . . . ?“ urraði vörubílstjórinn. „0-ekkert“, svaraði vinur minn, „ég veit HVAÐ þú ert — mig langar bara til að sjá hvernig þeir líta út“. * Sú saga er sögð að vega- vinnuflokkur við Mý- vatn, liafi verið sárt leikinn af mýbitinu, og kvörtuðu menn mikið yfir því. Verkstjórinn var fæddur og uppalinn þar í sveitinni, og þótti lítið til þess koma, sagði að þetta væri ekkert nema skræfuskapur. Aldrei gerði mýið honum neitt mein. Það var deilt um þetta fram og aftur, þar til verkstjórinn sagðist skyldi sanna þeim þetta. Þeir mættu binda sig allsnakinn við staur á meðan þeir færu heim í tjald til að borða hádegisverð, og síðan mættu þeir skoða sig til að sannfærast um það að hann hefði hvergi verið stunginn. Þessari deilu lauk með því, að þessu boði var tekið, verk- stjórinn klæddi sig úr hverri spjör og leyfði þeim að binda sig fastan við staur, og síðan fóru mennirnir að borða. Það leið ekki á löngu þar til þeir heyrðu óglöggt að hann fór að kalla. Þeir létu það eiga sig, og hugsuðu gott til glóðarinnar, að nú fengi hann aldeilis að finna fyrir mýbitinu. En svo ágerðust köllin, og þeir heyrðu greinilegan ang- istartón í hrópunum, svo þeim leizt ekki á blikuna og fóru að rannsaka málið. „Hvað er að?“ hrópuðu þeir, þegar þeir voru að komast til hans. „Rekið þið helvítis kvígu- kálfinn þama í burtu, hann heldur að ég sé mamma sín!“ — VIKAN 14. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.