Vikan


Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 32

Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 32
ZiNUSSI Algjörlega sjálfvirk þvottavél með suðu. Tekur 5 kíló af þurrum þvotti. HOIvliMMIM 3 og 4 hellna elda- vélar með sérlega góðum ofni. Góðir greiðsluskilmálar. VIK II 4 Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ©Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Gættu þess að vera ekki of herskár í samskiptum þínum við aðra. Þriðjudagur og miðvikudagur gætu fært þér mikil tækifæri en auðvitað verðurðu að leggja þitt að mörkum og nota skynsemina. Þú munt lenda í skemmtilegum félagsskap um helgina. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú verður mjög vel upplagður þessa dagana og flest sem þú snertir á gengur eins og í sögu. Gættu þess að standa ávallt í skilum, líka hvað snertir smáatriðin. Þú færð gott tækifæri til að treysta grundvöll starfs þíns og auka hróður þinn. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú verður fyrir einhverjum leiðindum, sem krefj- K ▼ ast þess að þú standir þig. Hroðvirkni er ókostur, 'wíVaV gættu í eigin barm og athugaðu hvort þú ert sekur um slíkt. Forðastu skjótræði, þú hefur nógan tíma til að undirbúa málin betur. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Vikan leggur blessun sína yfir alla starfsemi þína, heima og heiman. Ýmislegt sem hefur dregizt á langinn með að framkvæma, gengur nú eins og af sjálfu sér. Það væri skynsamlegt af þér, að kjósa einveruna fram yfir félagslífið í bili. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): ©Þú ert í dálítið erfiðri aðstöðu, það er togað í þig út tveim áttum og erfitt að greina úr hvorri átt- inni er togað fastar. Það eina, sem ráðlegt er fyrir þig er að gefa sem minnst færi á þér. Verðu góð- um tíma til íhugunar og lærðu af fenginni reynzlu. Meyjí'.rmcrkið (24. ágúst — 23. september): 0Þú færð mikið að starfa þessa viku og ef til vill meira en nóg. Gættu þess því að enginn misnoti vér vinnugleði þína. Þú gætir átt í dálitlum erfið- leikum í einkalífinu, gagnrýndu persónu sem und- anfarið hefur reynt að hafa áhrif á skoðanir þínar. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Dagarnir verða mjög hversdagslegir framan af vik- unni, en í vikulokin rofar til svo um munar. Stofn- un ein, sem þú ert í sambandi við gerir þér gott tilboð. Útgjöldin verða eitthvað meiri en þ.ú bjóst við, en það bjargaðist allt saman. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Allt mun leika í lyndi og hlutirnir koma án minnstu fyrirhafnar upp 1 hendurnar á þér. Þú verður mjög hamingjusamur í einkalífinu og ástvinir þínir munu vera mjög samstilltir. Gamlir félagar þínir hafa samband við þig. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Þú gerir eitthvað, óviljandi að mestu leyti, sem undrast yfir en er þó jákvætt fyrir þig. Vikan % 1 ™ verður lík og undanfarið. Þú færð heimsókn af persónu, sem þú hefur mjög gaman af að hitta, auk þess sem hún kemur með góðar fréttir. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú færð sönnur fyrir því að víða er pottur brot- inn, en sem betur fer snertir þetta þig ekki mikið ‘ cn ^emur ser vel UPP á seinni tímann. Einhverjir reyna að hindra þig í fyrirætlunum þínum, þú ættir að hlusta á rök þeirra. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Vertu bjarsýnni en undanfarna daga, því það fleyt- ir þér talsvert á leið. Óskir hjartans munu ná fram að ganga, leggðu þig allan fram og njóttu líðandi stundar þvi þetta á eftir að verða þér minnisstætt. Þú átt góðar stundir á heimili vina þinna. OFiskamerkið (20. janúar — 20. marz): Veittu meiri athygli persónu, sem þú hefur snið- gengið og vart metið viðlits, án þess þó að nokkr- ar ástæður séu fyrir hendi. Þessi persóna gæti orðið þér ómetanlegur félagi og ráðunautur. Reglubræð- ur þínir vænta mikils af þér, en gættu þín. Snorrabraut 44 Simi 16242. 22 — VIKAN 14. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.