Vikan - 02.04.1964, Síða 32
ZiNUSSI
Algjörlega sjálfvirk
þvottavél með suðu.
Tekur 5 kíló af
þurrum þvotti.
HOIvliMMIM
3 og 4 hellna elda-
vélar með sérlega
góðum ofni.
Góðir
greiðsluskilmálar.
VIK
II
4
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
©Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Gættu þess að vera ekki of herskár í samskiptum
þínum við aðra. Þriðjudagur og miðvikudagur gætu
fært þér mikil tækifæri en auðvitað verðurðu að
leggja þitt að mörkum og nota skynsemina. Þú
munt lenda í skemmtilegum félagsskap um helgina.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú verður mjög vel upplagður þessa dagana og
flest sem þú snertir á gengur eins og í sögu. Gættu
þess að standa ávallt í skilum, líka hvað snertir
smáatriðin. Þú færð gott tækifæri til að treysta
grundvöll starfs þíns og auka hróður þinn.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú verður fyrir einhverjum leiðindum, sem krefj-
K ▼ ast þess að þú standir þig. Hroðvirkni er ókostur,
'wíVaV gættu í eigin barm og athugaðu hvort þú ert sekur
um slíkt. Forðastu skjótræði, þú hefur nógan tíma
til að undirbúa málin betur.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Vikan leggur blessun sína yfir alla starfsemi þína,
heima og heiman. Ýmislegt sem hefur dregizt á
langinn með að framkvæma, gengur nú eins og af
sjálfu sér. Það væri skynsamlegt af þér, að kjósa
einveruna fram yfir félagslífið í bili.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
©Þú ert í dálítið erfiðri aðstöðu, það er togað í þig
út tveim áttum og erfitt að greina úr hvorri átt-
inni er togað fastar. Það eina, sem ráðlegt er fyrir
þig er að gefa sem minnst færi á þér. Verðu góð-
um tíma til íhugunar og lærðu af fenginni reynzlu.
Meyjí'.rmcrkið (24. ágúst — 23. september):
0Þú færð mikið að starfa þessa viku og ef til vill
meira en nóg. Gættu þess því að enginn misnoti
vér vinnugleði þína. Þú gætir átt í dálitlum erfið-
leikum í einkalífinu, gagnrýndu persónu sem und-
anfarið hefur reynt að hafa áhrif á skoðanir þínar.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Dagarnir verða mjög hversdagslegir framan af vik-
unni, en í vikulokin rofar til svo um munar. Stofn-
un ein, sem þú ert í sambandi við gerir þér gott
tilboð. Útgjöldin verða eitthvað meiri en þ.ú bjóst
við, en það bjargaðist allt saman.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Allt mun leika í lyndi og hlutirnir koma án minnstu
fyrirhafnar upp 1 hendurnar á þér. Þú verður mjög
hamingjusamur í einkalífinu og ástvinir þínir munu
vera mjög samstilltir. Gamlir félagar þínir hafa
samband við þig.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Þú gerir eitthvað, óviljandi að mestu leyti, sem
undrast yfir en er þó jákvætt fyrir þig. Vikan
% 1 ™ verður lík og undanfarið. Þú færð heimsókn af
persónu, sem þú hefur mjög gaman af að hitta,
auk þess sem hún kemur með góðar fréttir.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú færð sönnur fyrir því að víða er pottur brot-
inn, en sem betur fer snertir þetta þig ekki mikið
‘ cn ^emur ser vel UPP á seinni tímann. Einhverjir
reyna að hindra þig í fyrirætlunum þínum, þú
ættir að hlusta á rök þeirra.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Vertu bjarsýnni en undanfarna daga, því það fleyt-
ir þér talsvert á leið. Óskir hjartans munu ná fram
að ganga, leggðu þig allan fram og njóttu líðandi
stundar þvi þetta á eftir að verða þér minnisstætt.
Þú átt góðar stundir á heimili vina þinna.
OFiskamerkið (20. janúar — 20. marz):
Veittu meiri athygli persónu, sem þú hefur snið-
gengið og vart metið viðlits, án þess þó að nokkr-
ar ástæður séu fyrir hendi. Þessi persóna gæti orðið
þér ómetanlegur félagi og ráðunautur. Reglubræð-
ur þínir vænta mikils af þér, en gættu þín.
Snorrabraut 44
Simi 16242.
22 — VIKAN 14. tbl.