Vikan


Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 39

Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 39
SPILAFÝSN Framhald af bls. 17. O, jú, hún hafði svo sem hugs- að út í það. — Þar að auki vinn ég alltaf eitthvað öðru hverju, þannig að það verður þó alltaf nokkurra króna gróði, hélt hann áfram. ■— Við höfum því ekki tapað neinu á þessu, skyldi ég trúa. — Svo þú heldur það? Hve mikið heldurðu að þú hafir unn- ið í öll þessi ár, Dóri? Hann ók sér og dró við sig svarið. — Nú, ég hef nú ekki haldið nákvæman reikning yfir það, en . . . — Nei, en það hef ég gert, sagði hún hvasst. -— Ég hef skrif- að hvern einasta eyri, sem þú hefur lagt í þetta í tíu ár og hvað þú hefur unnið. Hefurðu áhuga á að heyra það? Henni var nú ekki farið að verða um sel, en úr þessu var ekki hægt að snúa við. Halldór var farinn að verða órólegur, konan hans var svo undarleg í dag, það var varla að hann þekkti hana. Gat það hugsazt að hún hefði drukkið, hún var eitthvað svo æst? Nei, það var útilokað! — Hefurðu áhuga á því? end- urtók hún titrandi röddu. Hann yppti öxlum. — Jæja, komdu þá með það, það verður varla verra en að það hafi svona um það bil jafnað sig upp! Lára dró græna reikningsbók upp úr skúffunni sinni, fletti henni og leit á hann áður en hún byrjaði að lesa tölurnar. — Síðan við giftum okkur, Dóri, hefurðu eytt í þetta krónum 121.843,50, en unnið krónur 13.195,37. Áttarðu þig á þessum tölum? Halldór var náfölur og þögull. — Hugsaðu þér bara, hvað við hefðum getað gert við þessa pen- inga núna, Dóri minn góður! Ja . . . jú, stamaði hann rám- ur. Hann settist og þurrkaði svit- ann af enninu. — En getur þetta verið satt? Það er . . . hræði- legt . . . Lára varð óumræðilega fegin að hann skyldi sýna þessa iðrun. Þá varð þó endirinn þrátt fyrir allt góður. -— Ef ég hefði haft nokkra glóru, hefði ég aldrei veðjað með öllum þessum peningum, sem þú lézt mig hafa, hélt hún áfram. — Þú hefur sannarlega rétt fyrir þér, sannarlega rétt, taut- aði hann án þess að líta upp. — Ég hefði átt að setja þá í bankann, sagði hún. -— Já, einmitt, já. — Hvað mundirðu segja, Dóri, ef ég hefði gert það? Hann hló kjánalega. — Ég hefði orðið mállaus! Halldór Jónsson varð mállaus. Konan hans kastaði allt í einu bankabók á borðið fyrir framan Reynslan sannar, að PENOL skólapenninn er óreið- anlegasti skólapenninn, sem nú er völ á. Hann er einkar sterkur, og nýja blekkerfið tryggir, að blekið þornar ekki, þótt penninn liggi ónotaður. Hann tekur við sér um leið og hann snertir pappír- inn — ómetanlegur kostur í daglegri notkun. PENOL sjálfblekungurinn er framleiddur með hinum eftirsótta, sveigjanlega penna. PENOL sjálfblekungurinn er með nýju blek- kerfi - PENOL-EVERSHARP. PENOL sjálfblekungurinn er framleiddur úr óbrjótanlegu undraefni: „DELRIN". PENOL sjálfblekungurinn er þægilegur í hendi, fallegur í útliti og viðurkenndur af skriftarkennurum. 15352 df brogtf... tllvalin tœkifterisgjöf * Það er ávallt bezt að skrifa með sjálfblekungi. Kaupið því PENOL sjálfblekunginn strax í dag. Hann kostar 153,50 með Parker Quink blekfyllingu, og fæst í öllum bókaverzlunum Innkaupa- sambands bóksala. VXKAN 14. tbl. 39

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.