Vikan


Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 10

Vikan - 02.04.1964, Blaðsíða 10
Og hvað er það svo, sem herrarnir horía fyrst og mest á, á þessari mynd? Auðvit- að fæturnir, eins og eðlilegt er, enda eru þeir klæddir i Evu Dclfion nylon kvensokka, „made in Iceland — ally for export11! JQ — VIKAN 14, tbl. VIKAN skýrði frá því fyrir nokkru, að tekizt hefði að sanna vísinda- lega, hvernig karimaður horfir á fallega stúlku. Niðurstaðan var sú, að fyrst horfir hann á brjóst- in í eina sekúndu, síðan á fæturna í heilar átta sekúndur. Þar næst rennir hann augunum aftur upp og við og skoðar lendarnar í fimm sekúndur, augun í tvær og hálfa og hárið í hálfa sekúndu. Samtals hefur hann horft á þessa fal- legu stúlku í 17 sekúndur, en af þeim tíma hefur hann eytt næstum helming — átta sekúndum — til að skoða fæturna. Og ef hann hefur meiri tíma til umráða, er hann viss með að bæta við þessar átta, sem hann hafði þegar eytt í að skoða ganglimina. Þetta kannast flestir karlmenn við, þótt þeir vilji kannske ekki viðurkenna það opinberlega, og stúlkurnar vita þetta ekki síður. Það má því ganga út frá því sem vísu, að fallegir kvenmannsfætur hafi eins mik- Vélin hefur lokið við að spinna einn sokk, og gusar honum út úr sér ofan í plast- fötu. Afköst vélarinnar eru færð á skýrslu, sem fest er við vélina. <1 Ingi Þorsteinsson framkvæmdastjóri og Ragnar Sigfússon verksmiðjustjóri skoða framleiðsluna, — og virðast vera ánægðir.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.