Vikan - 02.04.1964, Síða 4
Að vcra fallcg
og halda
icgurð sinni
er Uyndardómur
hamingiu og velgmgni
Því fyrr, sem þér byrjið a8
ieggja rækt við að yngja upp
húðina, því erfiðara verður
að gizka á aldur yðar
siðar meir.
PLACENTA CREM inniheldur
náttúruleg efni, sem hörundið
drekkur í sig og hafa yngjandi
áhrif á húðina.
PLACENTA CREM er borið á húðina eftir hreinsun. Ögn af kreminu,
á stærð við baun, er núið á milli fingurgómanna og klappað
léttilega inn í húðina á andlitinu. —
FÆST í SNYRTIVÖRUVERZL. - ÍSL. LEIÐARVÍSIR MEÐ HVERRI TÚBU.
H. A. TULINIUS - Heildverzlun
Einstefnuakstur, ha? ...
Elsku bezti Póstur!
Baltasar er fyrirtaks teiknari,
og ég hefi haft mjög gaman af
að sjá ýmsar teikningar hans hjá
ykkur. En segið mér eitt: Er
hann einasti teiknarinn, sem
hægt er að fá til að teikna mynd-
ir við sögurnar ykkar?
Það væri mikil tilbreyting í að
sjá einhverntíma teikningar eftir
fleiri listamenn, því að það eyk-
ur á fjölbreytnina og gefur manni
betra mat á því, sem vel er gert.
Halldór S.
-------Við erum þér sammála,
Halldór, að Baltasar er góður.
En það er þannig ástatt með okk-
ar litla samfélag, að teiknarar
eru svo fáir, að menn verða strax
leiðir á þeim. Það eru kannske
5—10 teiknarar, sem geta teikn-
að góðar myndir með sögum og
slíku, og flestir þeirra eða allir
hafa tciknað meira og minna fyr-
ir okkur. En það kemur alltaf
að því sama, að tilbreytnina vant-
ar. Við höfum jafnvel leitað til
annarra landa til að fá teiknara,
en þar eru slíkir hlutir svo dýr-
ir að það er ekki á okkar færi.
Heilsufar Cliffs...
Kæri Póstur!
Við erum hérna tvær stúlkur,
sem erum í stökustu vandræðum.
Svo er mál með vexti að jafn-
öldrur okkar eru búnar að fá þá
flugu í kollinn að Cliff Richard
sé með blóðtappa og liggi fyrir
dauðanum. Þær segjast hafa les-
ið þetta í blaði en það l)lað höf-
um við ekki fundið. Segðu okkur
nú, kæri póstur, er eitthvað til
í þessu? Tvær hugljúfar.
S.s. Vonumst eftir svari fljótlega.
-------Þetta er aðeins sýnishom
af fjölda bréfa, sem okkur hafa
borizt vegna heilsufars Cliffs Ric-
hards. Sumir hafa jafnvel heyrt,
að liann sé dauður. Það er varla
rétt, því ef svo væri, hefði það
varía farið leynt. Hitt getur svo
vel verið, að hann sé eitthvað
krankur, en ekki þarf hann að
liggja fyrir dauðanum, jafnvel
þótt hann hefði fengið blóðtappa.
Hitt viljum við taka skýrt fram,
að VIKAN treystir sér ekki til
að gefa nákvæmar upplýsingar
um andlega eða líkamtega heilsu
dægurstjama úti í heimi — frem-
ur en heimilsföng þeirra.
Yandamál
með skippundið...
Vikan!
í dálkum yðar Pósturinn 9.
tbl. er Valdimar Guðmundssyni
gefið svar við fyrirspurn hans:
„Kit, mál, karfa . . .“
Þar segir um skippundið: Ef
það er nýr fiskur úr sjó (slægður
og hausaður) þá er skippundið
50 kíló. Ég hefi aldrei heyrt get-
ið um aðra þyngd á skippundi
en 160 kg. (áður 320 pund).
Það var talið að 800 pund af
slægðum fiski þyrfti í skippund
af fullverkuðum fiski, og 500
pund af blautsöltuðum fiski í
1 skippund fullverkað.
Tonn er nú sjálfsagt 1000 kg.
um hvaða vörutegund, sem um
er að ræða.
Svona hefir mér nú skilizt
þetta. Eða mun þetta ekki vera
rétt?
Virðingarfyllst,
Páll Einarsson.
— — — Þakka þér fyrir Páll.
Vafalaust er þetta alveg 'rétt.
Þeir hafa bara ekki vitað betur
hjá L.Í.Ú., þar sem þessar upp-
lýsingar vom fengnar.
Eða kannske að það séu til
mörg rétt svör við þessum spurn-
ingum . . .? Ekki skyldi mig
undra það, og gaman væri að fá
fleiri til að gefa okkur „rétt
svör“.
Hvernig væri nú annars að taka
bara upp á því að nota okkar
gamla og góða tonn og kíló á
þetta alls saman? Væri það
óframkvæmanlegt?
Kolvitlaus ...
Kæra Vika!
Mikið værir þú góð, ef þú
vildir birta fyrir mig textana
(ensku), Oh no og For you,
Ricky Nelson syngur þann síðar-
nefnda en ég veit ekki hver syng-
ur hinn. Ég þakka þér svo fyrir-
fram fyrir birtinguna og bíð í
ofvæni eftir að fá þá birta í Póst-
inum.
Ein kolvitlaus.
--------Kæra kolvitlausa- Ég
vil ekki birta textana, má ekki
birta textana, get ekki birt text-
ana, kann ekki textana, hef ekki
textana, fæ ekki textana og ef
ég held svona áfram, þá verð ég
líka kolvitlaus.