Vikan - 02.04.1964, Qupperneq 5
Hvað á félagið að
gera...?
Kæri Póstur!
Nú er ég í dálitlum vafa, og
langar mig til þess að biðja þig
um að hjálpa mér. Við erum
búin að stofna félag og eru í því
sex stelpur og tveir drengir, sem
eru varameðlimir. Við erum öll
tíu ára gömul. Okkur langar svo
til þess að gera eitthvað til gagns
og skemmtunar en vitum samt
ekki enn hvað við eigum að gera.
Og ætla ég nú að biðja þig um að
gefa okkur eitthvað gott ráð. Ég
ætla að biðja þig um að birta
þetta póstur minn, og gerðu það
sem fyrst af því okkur liggur á.
Með kærri kveðju og þökk fyr-
ir gott lestrarefni.
Foringi félagsins.
--------Þakka þér fyrir bréfið,
ungf'rú félagsforingi, það var
gaman að fá svona bréf, —- en
það er ekki eins gaman að svara
því.
Sannleikurinn er sá, að það
er svo geysimargt, sem þið gætuð
gert, að því er ekki hægt að lýsa
hér í póstinum. En ég skal samt
gefa þér gott ráð.
Hafðu samband við hann Jón
Pálsson — eða biddu pabba eða
mömmu að gera það — og skýrðu
málið fyrir honum. Ef ég þekki
Jón rétt, þá hefur hann ánægju
af að hjálpa ykkur og gerir það
fljótlega. Slíkt kann líklcga eng-
inn betur hér á landi en hann.
Jón Pálsson á heima að Kambs-
veg 17 og hefur síma 33051.
Mjölpokavandræði...
Kæri Póstur!
Um daginn ók ég inn Skúla-
götu á eftir mjölbíl, og þegar ég
var á móts við J. Þorláksson &
Norðmann datt einn pokinn af
mjölbílnum. Ég nam þegar stað-
ar og flautaði, en mjölbíllinn hélt
leiðar sinnar. Ég tók mjölpok-
ann og setti hann í skottið hjá
mér, en þegar ég var búinn að
því, var mjölbíllinn horfinn. Ég
sló í inn Skúlagötu, en sá ekki
tangur né tetur af honum meir.
Og nú er það spurningin? Hvað
á ég að gera við mjölið? Ég held
þetta sé einhvers konar hæsna-
fóður.
Með fyrirfram þökk.
X-9.
-----— Ef þú átt ekki sjálfur
hænsnabú, myndi ég ráðleggja
þér að finna eitt slíkt, hafa upp
á eigandanum, opna skottið og
gefa honum pokann.
Nú þarf að skrifa
þeim...
Kæri Póstur!
Við erum hér tvær, sem lang-
ar til að spyrja þig hvort þú
getir ekki gefið okkur upp
heimilisfang „The Beatles".
Með fyrirfram þökk.
Tvær „Beatles“-óðar.
■—------Næstum annað hvert
bréf, sem við fáum um þessar
mundir, er í sambandi við brezku
brjálæðingana ,,The Beat!es“.
Það einasta sem við vitum
hérna um heimilsfang Bítlanna
er það, að þeir munu upprunnir
frá Liverpool í Skotlandi, og
ekki yrði ég hissa þótt nóg væri
að skrifa á umslagið: The Beat-
les — Liverpool.
Endirinn með...
Kæri Póstur!
Ég þakka þér fyrir margt gott
á umliðnum árum og reyndar
enn. Vikan er manni alltaf til
ánægju, þótt misjafnlega séu
blöðin góð. Þið eruð alltaf að
koma með eitthvað nýtt, manni
til ánægju, nú síðast þessar
myndafrásagnir af kvikmyndum.
Það er ansi gaman að geta í dreif-
býlinu fylgzt svolítið með því,
sem þið þarna fyrir sunnan fáið
að sjá. En þið verðið bara líka
að segja manni, hvernig mynd-
irnar enda, annað er ómark. Svo
langar mig að biðja ykkur að
koma með meira af stuttum og
skemmtilegum smásögum, mér
finnst orðið of lítið af þeim. Svo
óska ég blaðinu alls góðs í fram-
tíðinni.
Húsfreyja í Árnessýslu.
--------Þökkum lofið og ábend-
ingarnar. Varðandi kvikmynda-
sögu-endana er það að segja, að
oft er myndin þannig, að það
eyðileggur ánægju áhorfandans
að vita endinn fyrirfram, og þess
vegna höfðum við þennan hátt á.
Við skulum við tækifæri reyna
að gera þér tii hæfis með smá-
sögurnar, en gleymdu því ekki,
að það er oft erfitt að velja og
hafna, svo öllum líki — það á
líka við um okkur.
Ávaxtið spariíé yðar í ISnaðarbankanum. Á þann hátt stuðlið
þér að eflingu iðnaðarins í landinu og þar með að atvinnu-
öryggi yðár.
Athygli skal vakin á því, að sparisjóðs- og hlaupareiknings-
deildir bankans eru opnar til afgreiðslu kl. 17-19 á föstu-
dögum auk venjulegs afgreiðslutíma.
T
IÐNAÐARBANKI
ÍSLANDS HF.
LÆKJARGÖTU 10-SÍMI 2 0 5 8 0