Vikan - 02.04.1964, Qupperneq 6
.
n i| 11 iijWJl W Jn \ ■ JinpPMlitr BffHBMIgfiBg
mm\\\
-£> Flugumferðastjórnin sendir flugmönn-
unum síffustu öryggisskipunina.
■O Úr flustjórnarmiffstöff — þaffan
er flugumferffinni stjórnaff með
fjarskiptum.
-O- GCA-flugumferðarstjórinn fylgist meff stöffu flug-
vélarinnar, bæffi í hæð og frá hliff, á tveim radar-
skyggnum.
Ef þú ert lífhræddur, þá skaltu
búa í flugvél, því það er líklega
öruggasti staðurinn „á jörð-
inni“. Flugslys eru tiltölulega
fágætustu slysin, miðað við
farþega- og flugvélafjölda, og
alltaf er öryggið að aukast.
Slraumlínudreginn skrokkur risa-
þotunnar æðir kyrrum vængjum i
stefnu á London. Farþegarnir sitja ró-
legir og öruggir í loftþrýstitempruSum
salarkynnunum, sem eru hin glæsileg-
ustu og öllum þægindum búin. Ein-
staka verður litið út um gluggana, sem
lielzt minna á lítil kýraugu á skipssúð,
en sjá einungis hinar furðulegu, sól-
gullnu skýjamyndir. Enda ekki að
undra, því að risa]>olan flýgur í 35.000
feta hæð, hátt ofar allri ókyrrð af völd-
um loftstrauma í nánd við jörðu. Og
nú sést óljóst móta fyrir strönd Eng-
lands langt framundan, undir skýja-
þykkninu.
Áhöfnin frammi í stjórnklefanum á
nú annriki fyrir liöndum. Nú verða
piltarnir að húa allt undir „let down“
— öryggisathöfnina, sem tryggir að
þotan lendi lieilu og höldnu með far-
þegana á flugvellinum. Flugstjórinn er
að ljúka úr kaffihollanum, áður en
hann fer að einbeita sér að viðfangs-
efninu, sem bíður hans. Aðstoðarflug-
maðurinn tekur til við „skrifstofustörf-
in“ — dregur leiðarbókina upp úr tösk-
unni og flettir upp uppdrættinum sem
sýnir aðflugið að flugvellinum við
Lundúnir. Uppdráttur þessi sýnir allar
flugleiðir nákvæmlega, og þar er að
finna allar upplýsingar um rafeinda-
tæknilega aðstoð flugturnsins við flug-
stjórnina, tíðni og „bið“-svæði — fast-
— VIKAN 14. tbl.
6