Vikan - 02.04.1964, Síða 15
•O Þetta hús er í senn moderne og formin deilast fagurlega milli
Ijósra flata og dökkra og láréttu línurnar takast skemmtilega á
við þær lóSréttu. Inngangurinn kemur á niiðja bakhliS, en þegar
inn er komiS verður svefnherbsrgjagangur á vinstri hönd, eldhús
á hægri hönd, en gengiS beint inn í stofu. Þetta fyrirkomulag hefur
rutt sér mikið til rúms og sést í mismunandi útgáfum í fjölmörgum
teikningum.
ÞaS eru fjögur herbergi í þessu húsi fyrir utan stofurnar. Þær eru
hér sýndar meS vængjahurSum á miili, en þar mætti ef vildi vera
alveg opið. Athyglisvert er það, að arinninn er að utanverðu. Því
mætti líka breyta, eða þá aS hafa annan, sem vissi inn í stofuna,
en viS sama reykháf. Það er lítið búr í þessu húsi, stórt þvotta-
hús með kyndingartækjum að auki, en engin er geymslan sjáan-
leg. Sjálfsagt á hún að vera í bílskúrnum.
Enn ein útgáfa af vinkil-
gerðinni. Þetta hús er ein-
göngu á einni hæð, eftir
Holger Tangaa Hansen.
Inni í vinklinum er að
miklu leyti gler; þar verða
tvö sólrík herbergi, borð-
stofa og stofa. Þetta er
meðalstórt einbýlishús
með þrem svefnherbergj-
um og einu að auki með
forstofuinngangi. Það
gæti verið vinnuherbergi
eða gestaherbergi. Úr for-
stofunni er hægt að
ganga gegnum þvottahús-
ið og inn í eldhúsið, en
það er líka bakdyrainn-
gangur. Svefnherbergja-
gangurinn opnast úr borð-
stofunni, en eldhúsið á
æskilegan hátt nærri
miðju hússins. Það er auð-
vitað smekksatriði, hvort
rennihurð er höfð á milli
stofu og borðstofu eins
og hér er sýnt.
inngangur
Fyrir nokkrum árum hefði 147 fermetra einbýlishús þótt stórt, en nú telst það
rétt í meðallagi. Hér er eitt af þeirri stærð, teiknað af Johan Christensen og
Sön. Þetta hús er skrautblómið meða! þessara húsa, byggt í vinkil og lausnin
bæði einföld og snjöll. Samt minnumst við þess ekki að hafa séð grunnplanið
skipuiagt á þennan hátt fyrr. Stofan kemur inn í vinkilinn og þar er að sjálf-
sögðu ætlast til að sé fagur blómagarður og sem mest gler í útveggjum stof-
unnar. Borðstofan er svo stór, að auðvelt væri að taka af enda hennar fyrir
vinnuherbergi ef þurfa þætti.
Á hinn ytra kant vinkilsins er raðað öðrum megin svefnherbergjum, en hægra
megin við forstofuna er eins og sjá má eldhús með borðkrók, rúmgott þvotta-
hús, kynding og geymsla, sem að vísu er lítil. Fyrir þá sem hafa ýmugust á
alltof miklum útveggjum er þetta hús lausnin. Þarna er sérstakt baðherbergi
fyrir hjónaherbergið og annað (sturtubað) fyrir hin herbergin. Það fyrirkomu-
lag tíðkast sjaldan hér, en má auðvitað breyta því og hagræða eftir vild.
VIKAN 14. tbl.
15