Vikan - 02.04.1964, Qupperneq 37
innan vébanda herráðsins, skyldi
aldrei koma til hugar að fella grun
á vin sinn, svikarann og landráða-
manninn, Esterhazy greifa.
GLÆPAMAÐURINN „D".
Hreingerningakonan „heimska",
madamo Bastian, reyndist enn sem
fyrr drjúg við það, að afla þeim
i gagnnjósnadeildinni heimilda úr
pappírskörfunum hjá Schwarzkopp-
en ofursta, og nú kom það á dag-
inn, samkvæmt þeim, að þeir höfðu
samstarf með sér um njósnirnar,
hann og Panizzardi, hermálaráðu-
nautur við ítölsku sendisveitina í
París. Hernaðarlegir landamæra-
uppdrættir, sem horfið höfðu úr
vörzlum herráðsins, höfnuðu hjá
þessum starfsbræðrum, og Mercier
hermálaráðherra var gert viðvart.
Hann þorði þó ekki að hafazt neitt
opinberlega að í málinu, þar eð
hann óttaðist mjög að stjórnmála-
andstæðingar sínir myndu þá grípa
tækifærið til árása, en stjórn hans
átti þá í vök að verjast í franska
þinginu. Yrði það uppvíst, að mikil-
væg skjöl hefðu horfið úr skrif-
stofum herráðsins, gat það hæglega
orðið til þess að steypa stjórninni.
Mercier fór því þá leiðina, að biðja
Sandherr ofursta að herða leitina
að svikaranum í skrifstofum her-
ráðsins um allan helming; tækist
að koma upp um hann, mundi
stjórninni það svo mikill sigur, að
henni yrði ekki borið á brýn að-
gæzluleysi f þvf sambandi.
Henry majór gerði nú allt, sem
f hans valdi stóð, og dag nokkurn
komst gagnnjósnadeildin yfir bréf,
sem Schwarzkoppen hafði skrifað
Panizzardi. Fyrsta setningin var
svohljóðandi: „Meðfylgjandi tólf
hernaðarlegir uppdrættir yfir Nizza-
svæðið, sem fanturinn D fól mér
að koma til yðar". Henry þóttist
þess fullviss, að þessi bókstafur,
„D", sem þarna var settur á eftir
orðinu „fanturinn", stæði ekki f
neinu beinu sambandi við hið raun-
verulega nafn svikarans. En þó var
þetta eina vísbendingin, sem um
var að ræða. Svikarans var leit-
að í annarri skrifstofu eins og nál-
ar í heystakki, en árangurslaust.
Ekki hafðist upp á svikaranum, sem
gekk erinda Þjóðverja í skrifstofum
herráðsins.
Og þann 26. september gerðist
svo það, að Bruecker fann „border-
eauið" í þýzka sendiráðinu. Svo
vildi til, að Henri majór var fjar-
verandi í leyfi, þegar þetta gerð-
ist, og skjalið kom því milliliða-
laust í hendur yfirmanni hans,
Sandherr ofursta. Hann og nánustu
samstarfsmenn hans urðu ásáttir
um, að ekki mætti komast upp að
skjalinu hefði verið stolið, og til
þess að koma í veg fyrir það, rifu
þeir það í snepla, en límdu snepl-
ana sfðan saman, svo að allt benti
til, að það hefði fundizt í pappfrs-
körfunum. Að það hefði forizt eftir
venjulegum leiðum, eins og látið
var heita um plögg þau, sem mad-
ama Bastian færði þeim í gagn-
njósnadeildinni.
Skjalið bar það með sér, að sá
er það hafði ritað, væri annað-
hvort starfandi í skrifstofum her-
ráðsins, eða hefði greiðan aðgang
að einhverjum starfsmanni þar.
Annars var með öllu óhugsandi, að
hann hefði komizt yfir önnur eins
hernaðarleyndarmál og varðandi
nýja gerð af langdrægum fallbyss-
um, breytingar á skipulagi stór-
skotaliðsins og fyrirhugaðan hern-
aðarleiðangur til Madagaskar?
Þarna hlaut „fanturinn D" að vera
á ferðinni, áleit Sandherr majór.
Sandherr sýndi nú þeim ofurst-
unum, Fabre og D'Aboville plagg-
ið. Þeir voru honum sammála um
það, að skammt hlyti að vera síð-
an það var ritað. Það sönnuðu loka-
orðin: „Ég verð fjarverandi um hríð
sökum heræfinga".
D'Aboville áleit, að sá er skrifað
hafði, hlyti að vera f stórskota-
liðinu, en þó vel kunnugur í öðr-
um herfylkjum. „Reynsluforingi",
hrópaði hann ákafur.
Reynsluforingjar voru kallaðir
þeir ungu liðsforinyjar, sem tekn-
ir höfðu verið til einskonar próf-
unar í skrifstofum heiráðsins, feng-
in þar ýmis verkefni til að reyna
hæfni þeirra, og flutvr úr einni
skrifstofu í aðra, oft ,neð stuttu
millibili. Ofurstarnir tóku tafarlaust
að leita f spjaldskránni yfir „reynslu-
foringja" í von um að þi. r kynni
að finnast lausn á gátunni; leituðu
fyrst í ,,D"-flokknum, sam’væmt
vísbendingunni um „fantinn D".
Þegar kom að nafninu Dreyfus, arð
þeim litið hverjum á annan og \ að
leyndi sér ekki, að þeim létti óu, i-
ræðilega. Það var augljóst mál, a.^
það hlaut að vera hann — Gyð-
ingurinn . . .
Framhald í næsta blciði.
karlmannaskór
^JÍvannBergsGrœbur
VIKAN 14. tbl. — grj