Vikan - 02.04.1964, Side 45
WjpjPM
Éiiniimím
~~ -
BIFREIÐA- & VARAHLUTAVERZLUN
BMW 700 LS Luxus
Er dásamlegur smábíll, 4-5 manna, sem fer sérstaklega
vel á vegi, jafnt á slæmum vegum og í halla. Stýring létt
og örugg. Mótorinn er aftur í og gengur jafnt og örugg-
lega. Gírskifting 4 gírar alsamhæfðir. Einn ódýrasti og bezti
bíll sinnar stærðar.
BMW 1500 - Nýr bíll með öll-
um beztu eiginleikum og þæg-
indum Luxus-bíla.
Mc Pherson’s fjöðrum, óháð fjöðrun á öll-
um hjólum. Diskahemlar að framan. Tele-
skope-demparar. 4 gírar alsamhæfðir. Há-
markshraði á 3. gír 115 km og 4. gír 150
km. Alltaf öruggur í öllum veðrum og á
öllum tímum.
KRISTINN GUÐNASON H/F
KLAPPARSTÍG 25-27 - SÍMAR 21965, 22675
EINKAUMBOÐ FYRIR:
BAYERISCHE MOTOR WERKE AG - MVNCHEN
Örugg varahluta-
þjónusta
aS hafa bílpróf.
— Ég læt dótið hennar inn hjá
þér.
— Vadd í rassgat.
Hann lét dótið inn í Reóinn og
settist svo inn í Fordinn. Það var
að verða rökkvað, og birtan var
rauð. Hann startaði og naut þess
að heyra gangþýðan mótorinn taka
við sér. Hann tók af stað í öðrum
á háadrifinu og ók hægt niður
brautina.
Hliðið var lokað. Hann nam stað-
ar og ætlaði að fara út að opna.
— Ég skal opna, sagði stúlkan,
og það var söngur í röddinni.
Honum brá svo að hann drap
á bílnum með kúpplingunni. Hún
hló um leið og hún snaraðist út.
Hann horfði á hana, grannvaxna
og limafagra, meðan hún opnaði
hliðið. I leiðslu setti hann aftur í
gang og ók í gegn. Svo beið hann,
meðan hún lokaði og kom aftur
inn.
Hún var hætt að hlæia og sett-
ist í framsætið við hliðina á hon-
um.
— Það er fallegt uppi á Vala-
hnjúk, sagði hún.
Þögn.
— Ég sá þig ekki þar.
— Nei.
— Af hverju fórstu með pokann
minn?
— Ég ætla að sofa frammi á
Aurum.
— Get ég ekki líka sofið þar?
— Þær buðu þér að vera í tjald-
inu hjá sér.
— Ég get ekki sofið þar.
— Af hverju ekki?
— Þá er eins og þú viljir mig
ekki.
— Eins og?
— Þau vita, að ég svaf ( bílnum
hjá þér í nótt.
— Og hvað?
— Og ég sagði þeim, að ég
hefði verið með þér í dag.
— Hvar?
— Upp í Hamraskógi.
— Af hverju?
— Þú varst þar.
— Hvernig veiztu það?
— Ég fann þig þar.
— Fannstu mig?
— Þú varst sofandi.
— Af hverju vaktirðu mig þá
ekki?
— Þá hefði ég orðið að vera
kyrr þar.
- Nú.
— Og ég er hrædd við kóngu-
lær.
Hann setti aftur í gír og ók hægt
í hring frammi á eyrinni. Svo lagði
hann aftur af stað upp í Húsadal.
— Hvert ætlarðu?
— Upp í Húsadal.
— Til hvers?
— Svo þú getir fengið pokann
þinn.
— Heldurðu, að mér þurfi að
verða kalt?
— Það hugsa ég.
— Og þú gætir ekki hugsað þér
að hlýja mér?
— Nei.
— En ég gæti kannski hlýjað
okkur.
— Mér er ekki kalt.
Hún opnaði hliðið aftur og þau
óku þegjandi aftur upp á melinn.
Hann fór og sótti dótið hennar yfir
í Reóinn. Toggi var hvergi sjáan-
legur. Hann bakkaði Fordinum
alveg upp í mynnið á gilinu norð-
an við Húsadalinn. An þess að
segja nokkuð fór hann í aftasta
sætið og lagðist ofan á pokann.
Stúlkan kom á eftir og settist fyrir
framan hann.
— Ertu hræddur við mig?
— Já.
— Hvað heldur þú að ég geri?
— Ég veit það ekki.
— Og þorirðu ekki?
— Nei.
Hún beygði sig niður að hon-
um og kyssti hann. Varir hennar
voru þéttar og góðar og það var
gott bragð af henni. Hann leyfði
henni að kyssa sig. Kossar hennar
hrísluðust um hann og hann fann
hann myndi þora. Hann tók utan
um hana með annarri hendi en
með hinni um annað brjóst hennar.
Hún hafði gott bak að halda um
en hann fann ekki brjóstið fyrir
brjóstahaldaranum. Eri hann vissi
að það var gott.
Hún hnikaði sér til að neðan
án þess að hætta að kyssa hann
og lagðist til hálfs ofan á hann.
Hann fann í henni beinin og fyll-
ingu líkamans, þar sem ekki voru
bein. Hann færði höndina, sem hélt
utan um stúlkuna og tók lófafylli
sína af rasskinn og kreisti fast.
Hún kveinkaði sér ekki en þrýsti
lífbeininu fast að honum.
Allt í einu stóð hann upp með
rykk. Stúlkan féll ofan af honum
VIKAN 14. t!)l.
45