Vikan - 02.04.1964, Page 46
Hrein
frísk
heilbrigð
húð
Heilbrigí húS f 4
Finnsf yðor það ekki vera aihyglisverf, að Nivea skull
vera iafn vinsœit og nýfízkulegt og fyrir 50 órum.
Þ6 uppgctvuðu visindameon Ezurit, sem gerðl það mögu*
legt, að nœra húðina með filu og raka.
Fegrunarsérfræðingar segja í dag: Nivea gefur
olis ekki verið betrd, hvort sem um er að rœða Nlvea*
creme eða hina nýiu Nivea-milk. Og reynsla
hinna mörgu milljóna sem nota
Nivea sýnir það daglega: Sá, sem snyrtir húð
sfna reglulega með Nivea, heldur hennl hreinn?/ ferskrl
og heilbrigðrl.
og næstum í gólfið. Hún var rjóð
og hárið úfið. Hún var ofurlítið
móð. Hann sleit af henni sjónir
og snaraðist út.
Hún náði honum uppi í gilinu.
— Þú getur ekki hætt svona,
sagði hún. Það var ekki fullyrðing.
Það var frekjuleg bón.
— Hættu að elta mig, sagði hann
hranalega.
— Ég vil fá þig og þú vilt fá
mig.
— Það er lýgi.
— Var ekki gott að kyssa mig?
— Haltu kjafti.
— Nei.
Hann leitaði að einhverju að
segja, sem gæti hrakið hana burt.
Hann fann ekkert nógu krassandi.
Hann sparn fæti við steini, og
kónguló, sem tekið hafði sér nátt-
stað undir steininum, hljóp hrædd
og róðvilt í hringi ! steinfarinu.
Hann beygði sig niður og tók kóngu-
lóna upp. Það var gott að finna
hana sprikla og vita að maður
hafði kjark til að láta á móti sér.
Hann sneri sér snöggt í hálfhring
og kastaði kóngulónni á stúlkuna.
Hún var enn rjóðari en áður og
starði beint í augu hans. Hún tók
ekki eftir kóngulónni.
— Ég skal vera góð við þig,
sagði hún. — Betri en þú hefur
nokurn tíma reynt áður. Ég vissi
það strax og ég sá þig, að ég
vildi fá þig. Og ég skal. Ég leyfði
þér að sofa í nótt og í dag af því
ég vissi, að þú varst þreyttur. En
þú ert ekki þreyttur núna. Ég vil
fá þig núna — í nótt, og bara
þessa einu nótt — og þú skalt
aldrei geta gleymt því — og —
Kóngulóin var ráðvillt í loðinni
peysunni. Hún átti f erfðileikum
með að fóta sig. Hún hafði lent
utan til vinstra megin, þar sem
vöffin strengdust yfir brjóstin.
Smám saman tókst henni að losa
sig og fá fótfestu og gekk hikandi
aftur á herðablaðið. Hann kenndi
í brjósti um stúlkuna. Hann gekk
að henni, tók báðum höndum um
andlit hennar og kyssti hana. Fast.
Kóngulóin sneri við á herðablaðinu
og komst fram á geirvörtuna. Svo
sleppti hann stúlkunni snögglega.
Kógnlóin sneri við og lagði af stað
aftur á herðablaðið.
— Má ég pissa út af fyrir mig?
spurði hann. — Svo kem ég niður
í bíl, þegar ég er búinn.
Hún leit á hann með vantrú.
Hann brosti. Hún var falleg. Svo
brosti hún líka.
— Allt í lagi, vinur.
— Farðu þá niður í bíl.
— Ég þarf líka.
— Farðu þá hérna úpp í brekk-
una. Ég fer hinum megin.
Hún veifaði um leið og hún
lagði af stað upp á bakkann norð-
an við gilið. Hann fór upp að sunn-
anverðu og beið.
Þegar hann var viss um, að hún
grunaði hann ekki um græzku, tók
hann á rás. Hann þaut yfir flöt-
ina í dalnum, milli tjalda, yfir stög,
og inn í kjarrið sunnanvert við dal-
inn. Hann ruddist gegn um það,
yfir lækjarfarveginn og upp í skóg-
inn norðan við Valahnjúk. Þar valdi
hann sér þétt kjarr og skreið langt
inn undir það. Þar lagðist hann
endilangur og vafði um sig úlp-
unni. Nú var hann laus. Á morgun
eftir hádegi yrði lagt af stað heim.
Þrátt fyrir hve vel hann svaf
um daginn, féll hann í blund, strax
og hjartað hætti að berjast. Hann
dreymdi, að hann var að þrykkja
af i prentsmiðjunni, hvern málm-
glitrandi spaltann eftir annan, og
það var enginn fyrir honum. Kon- i
an hans sat við setjaravélina og
setti honum örlagalínur, þær voru
hreinar og skærar. Sonur hans tók
við próförkunum jafnótt og hann
þrykkti af. Þetta var góður draum-
ur.
Hann var sofandi og vissi ekki
af, þegar stúlkan þræddi nokkurn
veginn slóð hans í áttina frá daln-
um. Kóngulóin var enn á peysu
hennar. Þegar stúlkan kom að
fremstu trjánum í þykkninu sem
var svefnstaður hans, missti hún
af slóðinni. Hún staldraði við til
að svipast um. Hún var ráðvillt.
Hvert hafði hann farið? Að lokum
sneri hún við í uppgjöf og fór sömu
leið og hún hafði komið. Um leið
og hún sneri sér, rak hún sig á
grein, og kóngulóin missti fótfest-
una og datt. Hún hljóp eins hratt
og hún gat frá fótataki stúlkunnar,
inn í kjarrið. Hún ruddist milli strá-
anna, eins og hann hafði áður
ruðzt milli trjánna, unz hún kom
að loðnum kantinum á úlpuhettu
hans. Hér hlaut að vera gott að
hvílast.
Hún lagði á brattann og skreið
inn í hettuna. ★
LEYNDARDÓMAR
TURNSINS
Framhald af bls. 21.
farið beina leið upp í turninn.
Öll ferðin og uppástungan um
að sýna henni humargildrumar
—■ allt hafði verið liður í þeirri
djöfullegu, en auðframkvæman-
legu ráðagerð, að stytta henni
aldur. Rifin og rykug föt hans
og plásturinn á enninu höfðu
verið síðasti þátturinn — sá, sem
átti að gera sjálfan hann að
hetju. En þetta hafði misheppn-
azt. Samt var tilefnið ennþá fyrir
hendi. . .
Hugsunin um það kom henni
til að standa snöggt á fætur. Hún
varð að komast héðan. Hún varð
að komast burt úr turninum og
burt úr húsinu, áður en nokk-
ur kæmist á snoðir um vitneskju
hennar. Alan Chard hafði komið
í veg fyrir tilræði Pauls einu
sinni. Það var ekki hægt að búast
við að hann kæmi henni aftur
til hjálpar, ef hann fengi ekki að
vita hvernig í öllu lá.
— Alan, hvíslaði hún. — Ég
verð að hitta þig.
Án þess að hún vissi hvernig,