Vikan - 02.04.1964, Side 48
athuga hvaðan kötturinn kæmi,
og þá hafði hún séð mjóu sylluna
undir glugganum. Til hægri,
rétt þar hjá, var flatt þakið yfir
veröndinni, sem byggð hafði ver-
ið við upprunalega húsið. Hún
hafði séð, að það var auðvelt fyr-
ir köttinn að stökkva þar á milli,
en yrði það jafn auðvelt fyrir
hana sjálfa?
Hún varð að hætta á það. Paul
mundi ekki hafa gætur á glugg-
anum hennar. Hann gæti ekki
vitað að hún væri fim og liðug
eftir margra ára þjálfun í dansi.
Hann mundi ekki búast við því,
að kona gæti komizt út um þenn-
an glugga. Og þar sem hann gat
ekki haft augun alls staðar, var
miklu líklegra, að hann sæti
fyrir henni frammi í ganginum
eða í forstofunni á fyrstu hæð.
Hún opnaði gluggann varlega
og gægðist út. Hún heyrði ekk-
ert nema sjávarniðinn og þyt
vindsins í trjákrónunum. Hún
fann hjá sér vasaljós og lýsti
með því út á jörðina neðan við
gluggann. Það eina sem hún sá,
var kötturinn, sem kom gang-
andi yfir grasflötina og horfði
beint í ljósið.
Hún hafði séð nóg. Hún lagði
vasaljósið á gluggakistuna, þann-
ig að ljósið lýsti niður, og svo
kastaði hún skóm og handtösku
niður í garðinn. Hún heyrði þeg-
ar það datt í mjúkt blómabeðið
fyrir neðan gluggann, og henni
datt í hug, að þótt hún tapaði
öllu sem hún ætti með því að
skilja það eftir í herberginu,
hefði hún þó bjargað með sér
innihaldi handtöskunnar.
Það reyndist auðvelt að kom-
ast niður á sylluna. Hún stóð
kyrr litla stund og þrýsti sér að
veggnum. Svo lét hún sig renna
fram yfir, og eins og fimleika-
maður kom hún léttilega niður
á þak verandarinnar. Þar lá hún
í hnipri og hlustaði. Stuttu
seinna skreið hún út að brún-
inni og hoppaði niður í grasið.
Inni í herberginu bak við læst-
ar dyr hafði hún verið tiltölu-
lega róleg. En nú greip hana
mikil óþolinmæði og fát, og
henni fannst hún ekki finna
skóna og töskuna nógu fljótt.
Hún stefndi á bílskúrinn, en
áður en hún beygði fyrir hús-
hornið, fannst henni hún heyra
fótatak. Hún hljóp inn á milli
trjánna, sem stóðu þétt við inn-
keyrsluna. Þar gat hún falið sig.
Það var hægt að fela sig bak við
tré og losna þannig við þann,
sem veitti manni eftirför. Þar
sem hún lá þarna í felum, sýnd-
ist henni hún sjá skugga hreyf-
ast bak við eitt tréð. Hún hlust-
aði, en heyrði ekkert fótatak leng-
ur. Kannski hafði það verið
ímyndun. En skugginn . . .
En svona gat þetta ekki geng-
ið lengur. Hún gat ekki beðið
hér. Það var verra en uppi á
herberginu, miklu verra. Hún
varð að hætta á að hlaupa, þótt
svo gæti farið, að hann næði
henni.
Þegar hún kom út fyrir trén,
fann hún að hún hljóp á mjúkri
jörð. Það hlaut að vera graslengj-
an, sem lá meðfram innkeyrsl-
unni. Það er ekki hægt að heyra
fótatak í grasi, hugsaði hún með-
an hún hljóp. Haltu þig á grasinu
og farðu ekki út í gegnum hliðið.
Ekkert var á milli garðsins og
götunnar annað en limgirðing.
Hún brauzt í gegnum hana og
tók ekki einu sinni eftir því,
að fótleggir hennar urðu allir
rispaðir. Nú var hún komin út á
veginn og hljóp eins og fætur
toguðu í átt að Wichwood Creek.
Hún vissi ekki hvort Paul elti
hana eða ekki. Hún einbeitti sér
aðeins að því að hlaupa sem
hraðast. Æðaslátturinn var svo
þungur í höfði hennar, að hann
yfirgnæfði allt annað.
Marian ætlaði varla að trúa
því, þegar hún sá húsaþyrping-
una og ljósin í gluggunum. Þetta
voru húsin í Wichwood Creek.
Hér gat hún hitt andlega heil-
brigt og venjulegt fólk, hér
mundi hún hitta vini! Hún fann
að hún var farin að gráta af
gleði meðan hún hljóp upp stíg-
inn að húsi Alan Chard — hús-
inu, sem lá alveg við smábáta-
höfnina. Hann verður að hjálpa
mér, hugsaði hún.
ÞESSI KERTI
SVÍKJA EKKI
FÁST VÍÐA
Blossi s.f.
Laugaveg 176 - Simt 23285.
Hún var svo áköf, að henni
var ekki nóg að hringja dyra-
bjöllunni, heldur varð hún að
banka á dyrnar líka og það var
með naumindum að hún gat hald-
ið sér frá að berja með báðum
hnefum af öllu afli.
Hún hélt fingrinum stanzlaust
á dyrabjöllunni, og þegar hurð-
in opnaðist, var hún rétt dottin
inn fyrir þröskuldinn.
-— Alan! Ég . . .
En það var kona, sem stóð í
dyrunum. Lítil og veikbyggð
fullorðin kona, sem rýndi út í
myrkrið. Þetta var ráðskona
Alans.
— Hvað viljið þér? Hver eruð
þér?
— Er herra Chard við? Ég
verð að fá að tala við hann. Það
er mjög áríðandi. Gerið það fyr-
ir mig!
Konan sagði ólundarlega: —-
Þér verðið að tala hærra. Ég
heyri illa.
Marian stundi. — Herra Chard.
Hún var of móð til að geta talað
hátt, en konan vissi hvað hún
átti við.
— Hann er úti. Hann kemur
ekki fyrr en seint í kvöld.
Hún var þegar hálfbúin að
loka hurðinni. Marian starði á
hana og henni fannst nú sem öll
von væri úti. Það þýddi ekki að
fara að skýra þetta fyrir henni.
Þar að auki var það ólíklegt að
þessi kona mundi trúa henni,
þótt hún segði henni upp alla
N OTIÐ ÁVALLT
POWER COIL
TYPE P A
6 VOLT OG 12 VOLT
og tryggið jafnan
og öruggan
gang vélarinnar
Blossi s.f.
Laugaveg 176 - Sími 23285.
hennar Florence frænku kom
hoppandi inn um gluggann. Hún
hafði farið fram úr til þess að
MELROSES
TEA
— VIKAN 14. tbl.