Vikan - 02.04.1964, Síða 51
f FULLRI ALVÖRU
Frarahald af bls. 2.
oftar að útvarpa frá Alþingi en
gert er. En hvaða hugmynd hafa
landsmenn fengið af störfum Al-
þingis úr þessum umræðum?
Vægast sagt mjög slæma. Hug-
sjónir skipta ekki máli, en þing-
menn tala í æsingartón hver um
annan, karpa og naga eða hæð-
ast hver að öðrum. Margir hafa
sagt: Þetta er eins og krakkar.
Sá tónn sem þingmenn hafa tam-
ið sér í þessum umræðum um
málefni þjóðarinnar er ekki til
þess fallinn að auka á virðingu
Alþingis.
Það er auk þessa á allra vit-
orði, að flokkavaldið verður æ
sterkara. Mjög fámennir kjarn-
ar hvers stjórnmálaflokks ráða
afstöðu þingmanna innan veggja
þingsins. Þess verður sjaldnar
vart með hverju árinu að þing-
menn dirfist að standa uppi með
persónulega skoðun, sem brýtur
í bága við yfirlýsta ,,línu“ flokks-
ins. Framan af núverandi kjör-
tímabili var stundum talað um
ákveðinn þingmann, úr kjördæmi
norðanlands, sem hafði sínar
skoaðnir á hlutunum, hvað sem
flokkur hans predikaði og var
þingmaðurinn ósmeikur við að
standa upp og gera grein fyrir
skoðunum sínum. En nú heyr-
ist æ sjaldnar í honum; sjálfsagt
er þessi síðasti Móhíkani kom-
inn undir klafann eins og hinir.
Af þessum ástæðum er Alþingi
ekki keppikefli skapríkra hug-
sjónamanna. Það er þó ekki þar
með sagt, að ekki sé margt
ágætra manna á þingi. En þeir
hafa sætt sig við löggjafarsam-
komuna eins og hún er; sætt sig
við að hún hafi þá virðingu, sem
hver maður getur séð að hún
hefur.
GS.
EINANGRIÐJg
GEGN HITA
OG KULDA
Þér fáið einangrunarkostnaðinn
endurgreiddan á fáum árum
í spöruðu eldsneyti.
Það borgar sig bæði fyrir yður
sjálfa og þjóðfélagið í heild
að spara eldsneyti svo sem unnt
er, og þar að auki er hlýtt hús
(vel einangrað) mun notalegri
vistarvera en hálfkalt (illa
einangrað).
STEINULL H.F.
Lækjargötu —■ Iíafnarfirði — Simi 50975.
1
VIKAN 14. tbl. —