Vikan


Vikan - 07.05.1964, Blaðsíða 32

Vikan - 07.05.1964, Blaðsíða 32
Tízkusundbolir 1964, frá KANTERS. Fjöl- breytt úrval lita og sniða. Allar stærðir. KANTERS bolirnir eru saumaðir úr gúmmí- þráðlausum teygjuefnum: Helanca og Spandex. Falla þægilega að líkamanum, en hindra ekki frjálsar hreyfingar. Veljið það bezta - biðjið um Konter's Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ©Hrútsmcrkið (21. marz — 2». apríl): Þig dauðlangar til að breyta eitthvað tib en brest- ur kjarkinn er á herðir. Láttu þetta ekki á þig fá, því þér berast góð tækifæri og allt batnar af sjálfu sér. Þú neyðist til að fara á bak við yfirmann þinn, sökum skapbresta hans. ONautsmerkið (21. apríl — 21. mai): Óheilindi félaga þíns fá þig til að breyta ákvörðun- um þínum. Þú kynnist nýjung á sviði áhugamála þinna, sem þú verður mjög upptekinn af. Taktu þeim ráleggingum, sem þér eru gefnar, og leggðu ekki út í neitt á eigin spýtur, íyrr en þú ert 100% viss. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú verður fyrir talsverðri gagnrýni. Reyndu að hag- nýta þér hana að einhverju leyti, því jafnvel þú kemur auga á nokkur sannleikskorn þar á meðal. Kunningi þinn hefur fengið mjög gott starf eða tilboð, en þú mátt ekki láta neinn finna að þú öfundir hann. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú ættir að létta undir með persónu, sem þú þekkir vel, og er mjög einmana. Þú hefur heldur lítið fyrir stafni. Drífðu þig af stað og afgreiddu það, sem þú hefur saltað langa lengi, það verður þér mikill léttir.’Festu ekki kaup á neinum farartækjum. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): ©Þú ert ánægður með lífið og tilveruna og flest geng- ur þér í haginn. Þú skalt reyna að njóta félagsskap- ar kunningjanna, svo sem unnt er. Þú færð bréf, sem skýrir þér frá gleðitíðindum í sambandi við persónur, sem þér þykir mjög vænt um. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): ©Óvænt útgjöld munu gera þig áhyggjufullan, en þú getur huggað þig við, að þér berast bjargráð, sem bæta mikið úr fyrir þig. Þú skalt reyna að gera yfirlit yfir, hvert peningárnir þínir fara, svo þú sért ekki svona undrandi yfir blankheitum þínum. Vogarmerkið (24. septcmber — 23. októbcr): Deilumál nokkurt er reis fyrir nokkru sökum mis- skilnings, leysist nú upp og eru allir aðilar ánægðari en áður. Þú færð gott tilboð, sem getur orðið til að hressa upp á þig andlega og líkamlega. Tefldu ekki á tvær hættur. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú verður fyrir talsverðu happi þótt það færi þér kannske ekki auð. Þú eignast nýjan kunningja, sem þú skalt vera dálítið varkár gegn. Dveldu sem mest heima hjá þér og láttu fara vel um þig, það líður ekki á löngu þar til þú færð ótal verkefni. Bogamannsmerkið (23. nóvcmber — 21. desember): ©Forvitinn náungi fer í fínu taugarnar á þér, en þú kannt gott ráð og skalt nota það. Þú færð góða hugmynd um skemmtun, sem í vændum er, berðu hana undir vini þína. Þú þarft sennilega að snúast talsvert í kringum fólk, sem er þér ekki um geð. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Nú skaltu drífa þig í að koma verkum þínum í fram- MEtrJ kvæmd. Ef þú átt frumkvæðið, er ekkert líklegra, en að þú fáir að ráða tilhögun þeirra. Þú verður að eyða nokkrum tíma til að hjálpa vinum þínum. Segðu ekki neitt, sem þú getur ekki staðið við. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar); Þú lendir í sennu við einhvern innan fjölskyldunn- ar og nú skaltu ekki láta undan, því þú ert í full- um rétti. Þú hefur góðan tima til að sinna því, sem þig langar mest til. Þú verður heppinn í við- seinni part vikunnar. Fiskamerkið (20. janúar — 20. marz): Þú ert að fikra þig áfram með eitthvað nýtt. Lang- bezt er fyrir þig að leita ráða, því þú veizt, hvar þú getur fengið góða hjálp. Sennilega verðurðu fyrir einhverjum fjárútlátum í sambandi við eignir þín- mjög varkár. skiptum, ar. Vertu 32 - WKAjW 1». tbL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.