Vikan


Vikan - 07.05.1964, Blaðsíða 4

Vikan - 07.05.1964, Blaðsíða 4
MSjelbourne BEATLES STRETCH N YLO N B UXU R • SVARTAR • BRONAR • ÞRÖNGAR • STERKAR Melbourne karlmannabuxur fást í Herradeild P & O Austurstræti 14 — Laugavegi 95. Einkaumboð: VESTURÁ Nú eru það sjónvarps- stjörnur... Kæri Póstur! Við erum hérna 2 stelpur sem langar mjög mikið til að fá ein- hverjar upplýsingar um sjón- varpsleikarinn Garry Locwood. Okkur langar til að vita hvort hann er giftur, hvað hann er gamall og hvar hann býr? Með fyrirfram þökk. Tvær hrifnar. ------— Hér höfum við það. Ég er í sjálfu sér ekkert á móti sjón- varpi, en kemst ekki hjá því að taka eftir því, að nú er svo að segja aldrei spurt um dægurlaga- söngvara eða kvikmyndaleikara lengur. Nú er bara spurt um sjón- varpsstjörnur, og skriftin á bréf- unum er stórgerð og barnaleg. En það er sama sagan með þetta fólk: Við getum ekki gefið upp- lýsingar um það. Þetta bréf flýt- ur bara með sem sýnishorn um sjónvarpsmenninguna. Við brjótum þagnar- heitið... Kæra Vika! Þú hefur oft gefið góð ráð við allskonar vandamálum, þess vegna leita ég til þín í vandræð- um mínum. Ég veit að þú ert engin upplýsingaþjónusta, en mig langar til að spyrja þig, hvort þú getir gefið mér upplýsingar um Loftskeytaskólann, eða hvert ég á að snúa mér í sambandi við hann. Ég veit því miður ekki hvað skólastjóri hans heitir ann- ars hefði ég skrifað til hans. Ef þú mögulega getur látið mér þetta í té, bið ég þig vinsamlega að svara mér sem fyrst í póstin- um. Birta aðeins svarið. Með kærri kveðju og fyrirfram þökk. Ein með áhuga. --------Yfirleitt látum við svona bréf alveg eiga sig, því flestum er í lófa lagið að komast milliliðaliaust að því, hvar hinir ýmsu skólar eru til húsa og skrifa þá beint til þeirra, stílað á skóla- stjóra, þótt bréfriturum sé ekki kunnugt um viðkomandi nöfn. En það spyrja svo margir um Loftskeytaskólann, að við getum ekki lengur þagað: Ilann er til húsa að Sölvhólisgötu 11, og skóla- stjóri hans er Sigurður Þorkels- son, símaverkfræðingur. Skammastín bara!... Kæra Vika! Ég er 187 cm á hæð og 84 kg alstrípaður. Fjýrjr aðeihs einu ári var ég um 90 kg á þyngd, og mér finnst, að ég sé farinn að léttast of mikið. Og það er ekki nema von. Fyr- ir rúmum tveimur árum kynnt- ist ég stúlku, sem var einbirni. Fyrir ári eignuðumst við svo barn og giftum’ okkur og búum nú í kjallaranum hjá foreldrum hennar. Og það væri svo sem allt í lagi, ef það væri ekki. En ég og litli strákurinn, við erum bara aðskotadýr í þessu sam- félagi og það er eins og að við eigum engan tilverurétt fram yfir ísskápinn eða hrærivélina —• sem ég er reyndar ekki búinn að borga upp ennþá. Það er allt- af: Gerðu þetta, gerðu hitt, gefðu stráknum að éta, skiptu á hon- um og þessháttar. En þó keyrði út yfir í dag. Ég kom heim í mat og fékk ýsu. Ég er vanur að gefa strákn- um meðan konan borðar, en í þetta skipti var konan voða elskuleg og sagðist skyldi gefa stráknum að borða. Ég fór að borða fiskinn og var ósköp ánægður. Með honum fékk ég soðin hrísgrjón en þau þykir mér góð svo ég tók mikið. Þá kom tengdamamma niður og fór að tala um hvað konan mín væri mögur og það væri ljótt af mér að éta frá henni öll hrísgrjónin, en hún yrði að gefa stráknum og maturinn hennar yrði kaldur. Svo kom hún niður með disk handa konunni fullan af brauð- súpu með rjóma og gef henni, svo hún fitnaði svolítið. Hún fór að skófla í sig grautinn en sagði mér að ná mér í súrmjólk inni í ísskáp og fá mér hana sjálfur. Ég gerði það. Eins og og mér þyk- ir brauðsúpa með rjóma góð. Ég hellti súrmjólkinni á diskinn, en þá fór strákurinn að rembast, og konan sagði mér að ná í kopp handa honum. Ég gerði það og setti hann á koppinn. Svo fór ég að éta súrmjólkina, meðan krakk- inn sat á koppnum. En þegar konan var búin með brauðsúpuna og rjómann, sagðist hún ætla að skreppa upp til mömmu og fá sér kaffisopa og ég gæti skeint krakkann. Hvað gat ég gert? Og þegar matartíminn var búinn og ég þurfti að fara, var ennþá eftir Mjóstræti 6 — Sími 21555

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.