Vikan


Vikan - 07.05.1964, Blaðsíða 9

Vikan - 07.05.1964, Blaðsíða 9
Myndin sýnir Lágafellsbyggðina, sem innan skamms verður orðin að mynuarlegasta hverfi. Nýja byggðin, sem hér er sagt frá, mun rísa hægra megin við veginn, þegar ekið er norður. Staðurinn er neðan við Lágafellstúnið, beint niður af íbúðarhúsinu, sem sést á myndinni hægra megin við kirkjuna. Borgin sfækkar og ný hverfi rfsa í Garðahreppi og Nýtt einbýlis húsa Nú heyrir brátt til undantekn- inf um, að menn geti fengið bygg- ingarlöðir á nesinu milli Elliða- árósa og Kópavogs. Og þegar þrjóta nes og láglendi, verður leitað viðfanga þar sem víðátt- urnar eru meiri og landið hærra. Nóg sýnist það vera, undanfarið í nágrenni Reykjavíkur. hverfi við Láyafell í fyrra kom stór skriður á ein- býlishúsabyggingar í Garða- ■ hreppi og í ár verður líklega byrjað að byggja í Arnamesi, auk þess sem úthlutað verður lóðum á talsvert stóru byggingar- svæði á hæðunum nálægt Árbæ. Sem ságt; sá tími er þegar kom- inn að farið er að byggja á þeim svæðum, sem fyrir skömmu voru kölluð nágrenni bæjarins. Og þá er augljóst, að byggðin þróast í tvær áttir: Annars vegar suður- úr og samanvið Hafnarfjörð en hins vegar norður með Vestur- landsvegi, allt uppí Mosfellsdal. Vikan hefur komizt á snoðir um það, að byggingafélag eitt í Reykjavík hefur keypt allstóra spildu norðanvert við túnið á Lágafelli og verður þegar í vor hafizt handa um framkvæmdir. Þarna eiga að rísa einbýlishús og verða sjö byggð til að byrja með. Þau verða öll eins; teikn- ingu hefur Kjartan Sveinsson gert og útvegaði hann Vikunni góðfúslega teikningu af þeirri hústýpu, sem hann hefur hugs- að sér að þarna verði byggð. Lóðirnar eru óvenjulega stórar á reykvískan mælikvarða; 1100 fermetrar og verulegt aðdráttar- afl mun það einnig hafa. að hita- veita er fyrirhuguð í þetta hverfi. Byggingaraðstæður eru miög hagstæðar þarna, fastur melur undir. Hverfið verður á hægri hönd við veginn, þegar ekið er norður, ca. 200 metra frá veg- inum. Útsýni er afburða fallegt til Esjunnar og út um sundin, en í suðvesfri breiðir Reykjavík úr sér. Úlfarsfell girðir að vísu nokkuð fyrir suðrið, en ekki svo að það skerði sólargang í skammdegi. Húsin. sem þarna verða byggð, verða að flatarmáli 136,12 fer- metrar. og uppfvlla þau skilyrði Húsnæðismálastjóranar um stærð. Verður það að teljast vit- urieg ákvörðun eins og ástandið er í launamálunum, enda nægir þessi stærð sem bezt fyrir flest- allar fjölskyldur: Fjögur svefn- herbergi, stofa og borðstofa sam- tals 45 fermetrar, rúmgott eld- hús með borðkrók og þvottahús með inngangi úr anddyri og bak- dyrainngangi að auki. Með hverju húsi verður og bílskúr. Þetta hverfi er aðeins byrjun- in á mikilli byggð við Lágafell, sem síðan á eftir að renna sam- an við meginbyggð borgarinnar. I sambandi við þessi nýju hverfi í nágrenni bæjarins er fróðlegt að íhuga þá breytingu, sem orð- ið hefur á viðhorfum fólks til þess að eiga heima nokkra kíló- metra frá miðborginni. Það eru ekki mörg ár síðan fólki óaði við að eiga heima inni í Laugar- nesi hvað þá Kleppsholti. En eftir því sem Reykjavík fær á sig fleiri einkenni stórborgar, breytast skoðanir fólks á þess- um hlutum. Það kemur líka til greina, að allflestir eiga nú orð- ið bíl og það breytir hreint ekki svo litlu. Hvaða máli skipta fimm kílómetrar til eða frá, þegar maður hefur bíl? Annað atriði í stórborgarþró- un segir líka til sín: Áður vildu menn búa þar sem aðeins væri fimm mínútna gangur niður í Austurstræti, en þar fyrir utan vildu þeir eiga sumarbústað til að hverfa til í tvo eða þrjá mán- uði á sumri hverju. Nú er hins vegar svo komið, að það land wim g — VIKAN 19. tbl. við Lágafell, þar sem áður var Kallað langt uppl I svelt er ekki lengur á boðstólum, sem freistar manna til sumarbústaða- bygginga að minnsta kosti hvergi í nágrenni Reykjavíkur. Þá gera menn það sama og gert er í nánd við allar stórborgir heims. Þeir byggja gott einbýlishús í frið- sælu hverfi spölkorn utan við borgina og láta það gegna hlut- verki íbúðarhúss og sumarbú- staðar í senn. Venjulega gera menn þetta með því skilyrði, að þeir fái rúmgóða lóð og þurfi ekki að búa svo sem seilingar- lengd frá næsta nágranna. Því miður hefur þessu skilyrði ekki verið fullnægt hingað til og þess vegna hafa einbýlishúsabygging- ar ekki freistað manna eins og annars hefði verið. Samt virðist vera að fæðast einhver skilning- ur á þessu og nýja íbúðahverfið við Lágafell er það fyrsta sem bendir til þess. Þeim sem eitt sinn blöskraði að búa inni í Laugarnesi, finnst nú mjög sjálfsagt og eðlilegt að byggja og búa suður í Garða- hreppi. Sama verður sjálfsagt uppi á teningnum með Lágafells- byggðina; þangað er aðeins tíu mínútna akstur frá Elliðaám, en munurinn er sá, að vegurinn er oftast mun betri og greiðfærari en Hafnarfjarðarvegurinn. WUR Þannlg verður grunnllötur húsanna: timimv VIKAN 19. tbl. — 0

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.