Vikan


Vikan - 13.05.1964, Blaðsíða 42

Vikan - 13.05.1964, Blaðsíða 42
NSU-PRINZ # SPARNEYTINN OG VANDAÐUR 5 MANNA BÍLL. • REYNSLAN HEFUR SÝNT AÐ PRINZ 4 HENTAR ÍSLENZKUM ÖRUGG VARAHLUTA- OG VEGUM OG VEÐRÁTTU VEL. VIÐGERÐARÞJÖNUSTA Argerð 1964 Kr. 125.200,00 Fálkinn h.f. Sími 18670 — Laugaveg 24 — Reykjavik ofar shakespearskum fræðum leik- aranna sem flýðu Hollywood og Broadway og hundred percent americanism til að grafa eftir hreinni tónum í sól sinni undanfargi áranna við að svíkja list sína fyrir peninga og afskræma sig með því. Og síðan gengurðu fyrir horn upp í stóran húsagarð þar sem möl hefur verið borin á flötina sem var við hina fornu höll til að gera bíla- stæði, lítill horaður maður sem hef- ur verið upphækkaður um einar tvær tommur með kaskeiti ber hönd- ina að skyggninu og segir: buona sera signore, þó þú hafir engan bíl til að leggja á stæðið sem hann gætir fram á morgun. Svo sefur hann á morgnana fram- eftir degi og sér börnin sín snöggv- ast þegar þau koma úr skólanum undir kvöldið áður en hann fer aft- ur til síns heilnæma starfs undir hlýjum himni Rómar. Hann þekkir kvikmyndastjörnurn- ar af starfi sínu en engin himintungl né stjörnumerki geimsins. Víðar dyr eru opnar og háar og niður breiðan marmarastigann renna eftir rauðum dúknum þungir bassatónar og trumban einsog sjúkt galdurmagnað hjarta ofvaxið í frumskóginum með skuggann ein- an utan um sig. En efra opnast þér stór salur með súlum og undarlegu veggja- skrauti með súrrealistískum blæ og rautt og grænt og blátt hverfiljós leikur um salinn þar sem fólksiðan vefst og faðmast og sundrast í frumstæðum æstum dansfléttum. Þetta sumar var Róm full af fólki sem var að vinna við þá frægu Kleopötru-mynd með Liz og Burton, og um helgarnar söfnuðust negra- dansararnir til Amerigo til að jafna sig eftir ómerkilegheitin í vikustarf- inu fyrir Kleopötru og veita fram dansgleði sinni og skynja lífsbrun- ann í sér með því að dansa. Og á slíku kvöldi ríktu ástríður dansins í sinni upprunalegu mynd þar sem maðurinn dansar til að segja það sem hann getur ekki sagt með orðum og öðlast fyllingu síns lífs í háttbundinni ástríðufullri sefj- un, töfrast hrynjandi sem gagntek- ur hópinn einsog fagnaðarerindi. Og negrarnir lögðu undir sig hátalarana og sungu og börðu trumburnar. Sjá fingur þeirra brúna með fölum gómunum og lófa leika á kattarskinni trumbunnar og tala hið yfir- skilvitlega frummál myrkviðarins og bera hin leyndu boð. Finna Afríku vakna og samtengja þá sem voru þaðan og kynbræður þeirta frá Bandaríkjunum og geðblærinn varð svo sterkur og seiðurinn að bleik- skinnarnir reyndu að fylgja en Evrópa batt þá viðjum bókmenn- ingar og samkvæmishefðar og þeg- ar þeir reyndu að rísa á móti upp- eldinu og hinni þreyttu menningu þá var það stirt og herpingskennt sem negranum var létt og náttúr- legt og hinir heiðnu guðir voru dauðar styttur þeim hvíta manni. IV. Þegar Kleópötruballettinn heldur heim þá koma nýir gestir en sum- ir eru hinir sömu og áður sem sækja í hið dansglaða hleypidóma- lausa andrúmsloft kringum gest- gjafann Amerigo. Ljóðskáldið Rom- ero frá Puerto Rico dansar kattfim- ur en þegar hann kemur að tala við þig þá er fas hans einsog hann væri diplómat í þjónustu Sameinuðu þjóðanna eða sendifulltrúi UNESCO en það má finna við kynni að hann ýkir diplómatískan kulda ( fasinu og aristókratíska tilburði umfram eðli, og þú hugsar að það helgist af tortryggni og beiskju hins gáfaða dökka manns sem hefur mætt hinu UN'GFRÚ YNDISFRIÐ býður yður hið landsþekkta konfekt frá. N Ó Á. HVAR ER ORKIN HANS ÞaV er alltaf saml lelkurlnn i hénnt Tnd- IsfriS okkar. Hún hefur ialiS Brklna hans Nóa elnhvers staðar i hlaðlnu og heitlr góVum verðlaunum handa teira, sem getur fundíð tirklna. TerBlannln ern' stðr kon- fektkassl, ínllur af hezta konfebU, oe. framleiðánðinn er au.ðvitaö EælgæUseerð- in N«í. NOAl fiiðasfc er ðreglð var hlaut verSIaunln: ERLA HELGADÓTTIR, Kópavogsbr. 34, Kópav. Vinninganna má vitja á skrifstofu Vikunnar. 20. tbl. 42 “ VIKAN 20. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.