Vikan


Vikan - 13.05.1964, Blaðsíða 5

Vikan - 13.05.1964, Blaðsíða 5
Þannig er málið vaxið, að ég er í sveitarstjórn og mitt sveitar- félag þarf að standa skil á barna- lífeyri með þrem börnum sem hjón áttu hér, en þau skildu, og hún er með börnin. Faðirinn hef- ur ekkert borgað til okkar eða sveitarfélagsins og ég er alveg æstur í að láta hann ekki sleppa við greiðslu. Nú er það sem ég vil biðja þig um svar við. Ef við komum honum á Kvíabryggju fær þá sveitarfélagið kaup fyrir vinnu hans þar, og hvað eru það mörg prósent af kaupinu sem hann fær í vasapeninga, og eru einhver skilyrði sett svo hægt sé að koma manni þangað. Góða Vika mín, helzt hefði ég viljað að þú hefðir svarað mér bréflega, en ef það er ekki hægt, þá bið ég þig að birta ekki bréf- ið eða nafn mitt, nema S. J. en svara mér fljótt, því það eru ekki allir sammála um Kvía- bryggjuvist, sumir segja að það þýði ekki að senda manninn þangað því þeir vinni þar fyrir sáralítið kaup og það sé bara refsing að senda þá þangað. En ég held að það sé ekki rétt. Vertu blessuð og svaraðu nú fljótt og vel. S. J. ■—- -----Þessari fyrirspurn er fljótsvarað, S. J. — Ef maður er sendur til Kvíabryggju, þá getur viðkomandi sveitar- eða bæjar- félag um Ieið vinkað sinni kveðju til peninganna. Þeir eru að fullu og öllu tapaðir, og krafan ekki lengur til. Sannleikurinn er sá, að vist að Kvíabryggju er í rauninni nokkurskonar vöndur á skuld- seiga barnsfeður, — vöndur, sem fyrir löngu er búinn að borga sitt stofnfé með rentu og rentu- rentum, og því færri, sem þang- að fara, því meiri liagnað gefur staðurinn, svipað og vöndurinn, sem stillt er upp úti í horni til varnaðar. Hingað til hefur það verið svo, að aðeins Reykjavík hefur haft heimild til að senda menn á þenn- an stað, en nú mun öðrum sveita- félögum þetta heimilt — með samþykki Dómsmálaráðuneytis- ins. Þess vegna mundir þú þurfa að skrifa þangað fyrst og fá þar hcimildina, áður en þú getur meira aðhafzt — en mundu að þá er krafan farin fyrir bí. Beatles... Kæra Vika! Þú sem ert oft svo sniðug, gat- urðu ekki birt viðtal og helzt myndir af The Beatles. Helzt vildi ég fá Ringó Starr, hann er svo agalega sætur. Gauja. --------Alveg sjálfsagt að verða við þessari bón þinni, Gauja mín. Blaðamaðurinn var sendur í dag til Bretlands og ef hann ekki finnur Ringó Starr þar, þá fer hann bara til Ameríku. Hann er viss með að rekast á hann þar. Er það annars nokkuð fleira, sem við getum gert fyrir þig? Ekki fyrr en 18 ára ... Ung stúlka skrifar og spyr hve gömul hún þurfi að vera til að geta gift sig og farið að heiman án leyfis foreldra sinna. Hún segist hafa verið með strák nokkuð lengi og þau vilji giftast og flytja þaðan að heiman, en foreldrarnir banni það. ------- -— Svarið ætti að vera á allra vitorði, en það er að stúlk- ur þurfa að vera orðnar 18 ára til þess að geta tekið slíka ákvörðun sjálfar í trássi við for- eldra sína. Sumum finnst þetta kannske dálítið hart, að stúlkur geti ekki gift sig hvenær sem þeim dettur í hug, bara ef búið er að ferma þær. En þetta fyrir- komulag hefur gefizt nokkuð vel hingað til, þótt undarlegt megi teljast, og vonandi verður því ekki breytt í bili. Það er nefni- lega álitið að fullorðið fólk hafi örlítið meira vit á þessu, en óþroskaðir unglingar, — og hafa þar að auki reynslu að baki sér. Ef þú ert óánægð með þetta, þá skaltu bara athuga, að karl- menn þurfa að vera þrem árum eldri, eða 21 árs, áður en þeir geta gift sig án leyfis foreldra. Margur kann að halda að þessi mismunur sé vegna þess að karl- menn þroskizt síðar en kvenfólk, en þar kemur fleira til. Þeir verða jafnan að sjá fyrir fjöl- skyldunni og taka á sig meiri þjóðfélagslegar byrðar en kven- fólkið. Sem sagt, — þú getur ekkert gert fyrr en þú ert 18 ára. BÚMÐARBANKI ÍSLANDS AU STU RSTRÆTI 5 - SÍMI 21200 Opið kl. 10—12 og 13—16. Laugardaga kl. 10—12. AUSTURBÆJARÚTIBÚ - LAUGAVEGI 114 Opið kl. 10-12, 13-15 og 17-18,30. Laugardaga kl. 10—12,30. Sparnaður er upphaf auðs Gefið börnum yðar hina vinsælu SPARIBAUKA OKKAR Búnaflarbanki íslands REYKJAVÍK - AKUREYRI - BLÖNDUÓSI - EGILSSTÖÐUM - HELLU MIÐBÆJARÚTIBÚ - LAUGAVEGI 3 Opið kl. 13—18,30. Laugardaga kl. 10—12,30. VESTURBÆJARÚTIBÚ - VESTURGÖTU 52 Opið kl. 13—18,30. Laugardaga kl. 10—12,30. VIKAN 19. tbl. — g
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.