Vikan


Vikan - 18.06.1964, Side 2

Vikan - 18.06.1964, Side 2
Hrein frísk heilbrigð húð Það skiptir ekki máli, hvernig húð þér hafið! Það er engin húð eins. En Nivea hæfir sérhverri húð. Því Nivea-creme eða hin nýja Nivea-milk gefur húðinni allt sem hún þarfnast: Fitu, raka og hið húðskylda Euzerit. Og þess vegna getur húð yðar notið þeirra efna úr Nivea sem hún þarfnast helzt. Hún getur sjálf ákveðið það magn, sem hún þarfnast af fitu og raka. Þetta er allur leyndardómurinn við ferska, heilbrigða og Nívea-snyrta húð. r I fullri alvöru: Nútíminn er galdraöíd ÞaS er dálítið skemmtilegt, hvað margt af því, sem þjóð- sögur og ævintýri boðuðu hér áður fyrr, er komið fram. Mér dettur til dæmis i hug kerlingin, sem stakk hrífuskaftinu sínu undir drýlin á túninu i Odda og sagði: „upp í garð til Sæ- mundar,“ með þeim árangri, að iieyið þusti á púkanum heim í garð og bjargaðist þannig undan úrkomunni. Það væri i raun- inni mjög þjóðlegt, ef við hætt- um að tala um „hestöfl“ véla, en töluðum þess í stað um „púkaöfl“. Það væri í rök- réttu framhaldi af fornri trú okk- ar á notagildi púka við hey- skap, að tala um að traktorinn liafi þetta og þetta mörg púka- öfl. Já, þjóðtrúin okkar forna var elcki aðeins hugarburður. í ævin- týrum kemur það fyrir, að kon- ur gengu um vígvelli eftir dag- langa orrustu og græddu af- höggna limi á skrokka og blésu í þá lífsanda á ný. Hvort tveggja er gert nú til dags, þótt ágræðsla lima sé enn svo ung, að hún teljist til kraftaverka. Sumir áttu líka klúta, teppi eða prik, sem liöfðu þá góðu náttúru, að gott var og fljótlegt að ferðast á þeim. Það þurfti elcki annað en að snúa þessum hlutum á réttan hátt eða liafa yi'ir ákveðna þulu, til þess að komast fljótt og vel þangað sem maður vildi. Og stundum var meira að segja nóg að hafa yfir þulu. Nú fljúga menn á örskots- stund landshornanna á milli, og eru jafnlengi milli Reykjavíkur og New York, og forfeður okkar voru að paufast með lestirnar sínar frá Reykjavik austur á Kambabrún. Spádómar forfeðra okkar liafa ræzt, og hverju myndu forfeðurnir þakka flest af því, sem við nú teljum sjálf- sagt og eðlilegt, ef ekki fjöl- kynngi og púkahjálp? Það eru galdrar, hvernig Ijós kviknar, þegar ])rýst er á rofa. Það eru galdrar, hvernig matur- inn sýður, án þess nokkur logi sjáist. Það eru galdrar, hvernig fjórhjólavagninn geysist áfram, án . ])ess að nokkur sjáanlegur kraftur togi hann á eftir sér eða ýti á. Og hvað er það ann- að en fordæðuskapur að geysast í málmstykki um himinhvolf- in? Þarf ekki fjölkyngi til, að magna úr litlum kassa rödd manns, sem örugglega er i öðr- um landsfjórðungi, svo ekki sé minnzt á mynd hans? —s

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.