Vikan


Vikan - 18.06.1964, Blaðsíða 6

Vikan - 18.06.1964, Blaðsíða 6
i VEX VÖRURNAR Vex er óvenju gott þvottaefni íýmsan vandmedfarinn þvott. Vex þvottalögurinn er áhrifaríkt þvottaefni sem fer vel meb hendumar. Vex handsápumar hafa þrennskonar ilm. Veljið ilmefni viðyðar hœfi. E F N A VERK S M I Ð J A N uwmu Takk fyrir blómin Ég hafði gesti hjá mér fyrir nokkru, og daginn eftir fékk ég send blóm sem þakklætisvott. Nú veit ég ekki hvort ég á að hringja og þakka fyrir blómin, eða láta það eiga sig. Iivað segir þú, Póst- ur minn? Þórunn Þ. —• •— — f guðanna bænum láttu þetta gott heita, því annars gengur þakklætið á milli ykkar endalaust. Þetta er fallegur vani að senda blóm, og ekki til þess ætlazt að sérstaklega sé þakkað fyrir þau í síma, með bréfi eða svoleiðis. En það væri ekki úr vegi að þú minntist á biómin, næst þegar þið sjáist, og talir um hve falleg þau hafi verið eða eitthvað svoleiðis. Þá veit við- komandi að minnsta kosti að þau hafa komizt til skila. konu minni og læknar hennar ekkert feimnir við að útskrifa hana berklaveikan öryrkja inn í þetta hús, þótt hvorki sé það í tízkuklæðum eða gallalaust fremur en önnur mannanna vérk. Og þá getið þér séð, hr rit- stjóri, að meira þarf en stolna mynd til að víkja þessu heimili til hliðar. En þar sem ég tel að blaði yðar hafi orðið all hrapa- lega á í messunni, að gera heimili mitt að hneykslunarhellu Blesu- grófar getur það aðeins gert gott úr þessu aftur, ef það losaði mig við Póla-grínið, sem svo til hef- ur verið hengt utan á limgirð- ingar mínar, til síðari ára. Og þá trúi ég illa, að yður þyki ekki bletturinn fallegur sem ég bý á og hús mitt falla vel að umhverfi sínu. Með kveðju, Óskar í Garðstungu. Leyfi til birtingar Hr. ritstjóri Vikunnar. Ég vil vekja athygli yðar á því, að í blaði yðar er flaggað með stolna mynd af heimili mínu, Garðstungu, Blesugróf, og það dregið í dilk, með Póla-menningu þessa bæjar. Mér er sannast að segja, nóg boðið, og veit ekki hverju slíkur málflutningur þjónar, nema ef vera skyldi árás- arseggjunum, sem réðust vopn- aðir á okkur hjónin í fyrra sum- ar við hirðingu lóðarinnar. Að vísu er hús mitt enginn milljónakofi, en það fylgir því það stór og vel hirtur garður, girtur limgirðingu á alla vegu, að heimilið getur engan veginn haft á sér neinn verbúða- eða Pólabrag. Annars get ég verið yður sam- mála um smáhýsahverfi, hvort heldur sem það er Blesugróf eða skipulagðir milljónakofar með smálóðir í kring, sem hverfa í kofaþyrpinguna. Það verkar eins og örgustu fátækrahverfi eða jafnvel öskuhaugar. Einstöku hús þurfa stórar og vel hirtar lóðir til að njóta sín, enda hægt um vik, landrými nóg hér á landi. En svo ég snúi mér aftur að mínu heimili, þá höfum við hjón- in byggt það sjálf, án íhlutunar annarra eða aðstoðar, í óræktuðu og ónumdu landi. Er búinn að búa þar í 23 ár með heilsulausri —--------Það er misskilningur, Óskar, að leyfi þurfi til að taka mynd af húsi að utanverðu. Það væri ekkert smáræðis fyrirtæki til dæmis að taka loftmynd af Reykjavík, ef leyfi þyrfti frá hverjum húseiganda. Jafnvel þótt maður byggi sérkennilegasta hús borgarinnar á kletti uppi í Blesugróf, verður maður að sætta sig við það, að hver sem er geti tekið mynd af því og birt, án þess að til komi leyfi. Skammastín bara Ég ætla hvorki að titla þig með „kæra Vika“ eða þvíumlíkt af þeirri ástæðu að mér þykir ekkert vænt um þig. Ég á kannski ekki að vera skipta mér af þessu, hálfgerður bauni, en ég get ekki orða bundist yfir bölv- aðri ókurteisinni í ykkur. Getið þið aldrei svarað bréfum sak- lausra lesenda af einhverju viti. Þið þykist vera svo hátt hafin yfir þessi dönsku vinnukonublöð. En þið eruð bara ekki yfir neitt hafnir meðan þið getið ekki svarað lesendum sómasamlega. Og hættið öllu þessu stagli um hvað þið fáið mörg bréf af þessu og hinu taginu. Og hvað með sjónvarpsmenninguna, ætli hún sé betri þarna niðri á Vikunni, annars er mér ókunnugt um þá hluti. Annars veit ég eitt með vissu og það er það, að brýn þörf er að skipta um mannskap þarna 6 VIKAN 25. tbl

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.