Vikan


Vikan - 18.06.1964, Page 21

Vikan - 18.06.1964, Page 21
 ... HMh ! Hll /sxgggX w * Fyrir einu ári og tveim mánuðum gerði VIKAN og birti umfangsmikið yfirlit yfir verð á húsum og íbúðum. Þá um leið reið yfir mikil alda verð- hækkana, svo verð breyttist jafnvel eitthvað frá því að greinin var skrifuð og þar til blaðið kom út. Síðan hefur þessi þróun haldið áfram. VIKAN aflaði sér upplýsinga um verðið með því að spyrja nokkra fasteignasala og bar upplýsingum þeirra alveg saman. Vafalítið mun verðið enn hafa hækkað litillega frá því þetta er skrifað. Á þessu ári hefur sá athyglisverði hlutur gerzt, að verð á ibúðum og húsum í Garðahreppi, Kópavogi og Seltjarnarnesi hefur hækkað tiltölu- lega meira en innan Reykjavíkur og má segja, að mismunur sé orðinn afar litill á verðlagi á þessum svæðum og inni í borginni. Til samanburðar hefur VIKAN gert yfirlit yfir kauphækkanir á sama tímabili og einnig hækkun lánsfjárupphæða hjá Húsnæðismálastjórn og helztu lífeyriss'róðum. Enda þótt lánsupphæðir Húsnæðismálastjórnar hafi ekki hækkað á þessu tímabili, hafa margir lífeyrissjóðanna hækkað það mikið að meðaltalshækkun af hundraði er litið eitt hærri en sem nemur hækkun á verðlaginu. Aftur á móti hafa hinar almennu launahækkanir tæplega haft undan eins og sjá má á töflunni á næstu síðu. ) í ) 3 herbergja íbúð við Birkimel Þriggja herbergja íbúð í blokk við Birkimel kostaði í april '63 580 þúsund, en nú er verðið 750 þúsund (450— 500 þús. út). Verðhækkun á 14 mánuðum 170 þúsund eða 29,3%. Fokhelt Fokheldar hæðir í nýju hverfi gengu í apríl '63 á 500 þúsund, en mundu nú verðlagðar á 600 þúsund (gjarnan allt út). Verðhækk- un 100 þúsund eða 20%. Lúxusvilla í Kópavogi Lúxusvilla í Kópavogi. Átti að kosta 1,2 millj. í apríl '63. Mundi verðlögð á 1,6 millj. nú (1 millj. eða meira út). Verðhækkun 400 þús., eða 33,3%. Meðalstórt einbýlishús á tveim hæðum í Kópavogi. Verð í apríl '63: 750 þús., verð nú: 1050 þús. (700 þús. út). Verðhækkun 300 þúsund eða 40%. Einbýlishús á tveimur hæðum í Kópavogi VIKAN 25. tbl. — 21

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.