Vikan - 18.06.1964, Qupperneq 39
— Mér er alveg sama. Þú verð-
ur að ákveða það.
Annabelle sagði: — Jæja þá,
ég ætla að verða ég. Villikálfurinn
Mehaffey. Það hlakkaði í henni.
—• Ég ætla að sýna þeim í tvo
heimana, Henri, sagði hún. Eig-
um við ekki að verða hertoginn
og hertogaynjan og Mechlen-
stein?
-— Stórfínt, sagði Henri og
hló við. — Það verður gaman,
sagði hann, — einkum þó fyrir
mig. Sjáðu til, — hann kyssti
hana — mér hefur aldrei gef-
ist tækifæri til að daðra við stór-
hertogaynju fyrr.
Annabelle og Henri óku af
stað þetta kvöld í áttina til París-
ar, en það kom engum á óvart,
sízt af öllu Mr. Pimm. Hann vissi
það, sagði hann, við elskuna
sína, hana Matildu frænku, hann
vissi það alltaf. En þeagr Mr.
Pimm kom auga á Julian og
Peggy úti við sundlaugina, varð
honum á að andvdrpa, þetta var
hræðilegt, það var enginn eftir,
sem hann gat komið í hjónaband.
Honum varð hugsað til Bettinu
Bosworth, og allra hinna, sem
héðan í frá yrðu að sjá um sig
sjálfar án verndar hans. Nú voru
allar ráðagerðir hans komnar út
um þúfur, allar þessar dásam-
legu ráðagerðir, nú gat hann ekki
lengur vakað yfir hamingju og
framtíð ungra stúlkna. En þá leit
hann ástúðlega á Matildu frænku
og sagði við sjálfan sig, að senni-
lega væri þetta bezta lausnin.
Það var ekki hægt að ljúka ferli
sínum á ákjósanlegri hátt, þetta
var stærsta afrek hans, lokaaf-
rekið, lengra var ekki hægt að
komast. í stað þess að gifta Mat-
ildu frænku einhverjum og ein-
hverjum þá ætlaði hann nú að
ganga að eiga hana. Þetta var
hámarkið. Meira var ekki hægt
að gera.
Og nú sat hann og hugsaði
um allar stúlkurnar, eina af ann-
arri, stúlkurnar, sem hann hafði
séð fyrir eiginmanni. Þær voru
allar innilega hamingjusamar.
Dómgreind hans var alltaf
óbrigðul. Annabelle yrði líka
hamingjusöm.
Guð blessi þær allar, hugsaði
hann, og hann andaði að sér ilm-
inum frá blomunum úti í garð-
inum við Villa Florentina. Guð
geymi þær allar, blessaðar.
SÖGULOK.
FRA MfNUM BÆJAR-
DYRUM SEfl
Framhald af bls. 13.
unni er stórt borð með myndum af
pabba og mömmu ungfrú E og
O-A. Pabbi þeirra er Iaglegasti ná-
ungi, en svona okkar á milli sagt,
er ég ekki alveg viss um, að hann
sé laus við svertingiablóð. Hann
var liðsforingi í borgarastyrjöldinni
II
KLÆÐIST FÖTUM
FRÁ OKKUR
VIKAN 25. tbl. — gg