Vikan - 28.05.1964, Qupperneq 10
Biskupinn hefur beðið landsfólkið að vísa þeim á dyr, en
þeir hafa haldið áfram þrátt fyrir það; bankað á dyr manna
og beðið þá að hugleiða það, að heimsendir sé í nánd. Um það
eru Vottar Jehova ekki í neinum vafa og nefna því til sönnun-
ar ýmis rök, sem mér og ýmsum öðrum finnst ærið haldlítil.
En hvað um það; þcir eru sælir í sinni trú og sínu hlutverki.
Einn þeirra varð á vegi minum á dögunum, Kjell Geelnard,
ungur maður af sænsku bergi brotinn. Ég ræddi við hannn fyrir
forvitnissakir um þau mál, sem eru Vottunum efst i huga og
það fór eins og mig grunaði, að við vorum ekki alltaf sammála.
Ég sagði: — Þið Vottar Jehova stefnið auðvitað að þvi að út-
breiða kreddur ykkar um allan heim. Heimsvaldasinnar ekki
satt?
— Nei, við Vottar Jehóva, munum aldrei innleiða neitt nýtt
heimsskipulag, og allra sízt með því að snúa öllum til trúar
okkar. Við trúum að Guð sjálfur muni framkvæma þetta nú á
meðan okkar kynslóð er uppi með því að taka í taumana, og
hreinsa jörðina af öllu því sem illt er. En við trúum samt að
stór hópur af fólki, sem hlýðnast Jehóva, hinum sanna Guði,
muni komast af, þegar hann hreinsar jörðina.
—- Hreinsar jörðina? Sér er nú hver vizkan. Það er engu lik-
ara en jörðin hafi orðið einhverskonar óræktar afkimi hjá
drottni, sem hann sökum anna hafi ekki liaft tíma tií' að sinna.
Og svo kemur hann einn góðan veðurdag og „hreinsar“. I>að er
væntanlega heimsendir, eða hvað?
•—- Já við trúum því, að þessi vondi núverandi heimur, muni
verða að engu gerður af Guði, nú á okkar timum.
— Það er eins og mig minni, að einliverjir liafi boðað heims-
endi áður. í mínu ungdæmi rámar mig í karl, sem kallaður var
Mangi rjómapóstur. Hann gekk um og boðaði heimsendi. Ég
held að hann hafi verið aðventisti. Meira að segja er mér ekki
grunlaust um, að fjöldi manns liafi boðað nálægan heimsendi
á öllum öldum. Er það ekki rétt?
— Jú, það er rétt, en samt sem áður er það dálítið ölíku
saman að jafna. Mismunurinn er að við byggjum ekki boðskap
um tíma endalokanna á draumum, stjörnuspám, eðá opinberun-
um, sem einhverjir meðal Vottanna Iiafi haft. Ástæðan til þess
að við erum að kunngera um tíma endalokanna er aftur á móti
að við sjáum að spádómar Biblíunnar um tíma endalokanna eru
að uppfyllast nú á okkar dögum frá árinu 1914.
Hann fór ofan i tösku og tók upp biblíu og sagði:
— Einu sinni spurðu lærisveinarnir Jesú: „Seg þú oss hve-
nær mun þetta verða, og hvert er tákn konni þinnar, og enda
veraldar?“ Svarið sem við finnum í Matt. 24 sýnir, að þegar tími
endalokanna kæmi, ættum við að sjá það á táknum sem mundu
koma fram i heiminum, og Jesú hafði sagt fyrirfram.
— Mætti ég fá að heyra um eitthvað af þessum táknum?
— í bibliunni er hægt að finna um 39 mismunandi tákn fyrir
atburði, sem mundu eiga sér stað í heiininum þegar að timi
endalokanna kæmi. Þar á meðal er röð atburða og tákna;
t. d. heimsstyrjöld, hungursneyð, jarðskjálftar, og Jesú sagði
einnig að það muni verða trúarleg sundrung á hinum slðustu
dögum, og að falskenningar mundu afvegaleiða marga.
— Getur verið að Vottar Jehóva séu falsspámenn, leiðandi
saklaust fólk uppi á íslandi í villu?
— Þótt ég mundi svara þessu játandi eða neitandi, mundi það
ekki koma að neinu gagni. Það er ekki ég sem dæmi um hvað
er rétt eða rangt, og ekki einu sinni biskupinn yfir íslandi,
heldur aðeins biblían. Ef einhver vill fá svar við spurningunni
er bezt að leita til biblíunnar, og sjá hvort trú okkar- er í sam-
ræmi við hana, eða ekki.
—- Ég efast stórlega um að allir yrðu sammála um það, að
ykkar trú sé í samræmi við biblíuna. Það virðist vera afar teygj-
anleg bók. Nú jæja, þú varst búinn að telja upp heimsstyrjöld,
hungursneyð og jarðskjálfta sem eitthvað sérstök fyrirbrigði
okkar tíma. Áttu eitthvað fleira í pokahorninu, sem mælir með
heimsendi?
— Já, Jesú lauk upptalningu sinni á táknunum, með þvi að
segja: „Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, unz þetta allt
kemur fram.“ Jesús sýndi að sú kynslóð, sem mundi sjá jiessi
hérumbil 39 tákn koma fram, mundi einnig sjá endi þessa vonda
heims. Táknin hafa komið fram.
— Núna þessa dagana?
— Já nú á okkar kynslóð, sérstaklega frá árinu 1914.
— Ég verð að játa, að mér finnst eitthvað vanta í þessi rök.
— Það getur verið, vegna þess, að ég hef ekki talið upp svo
mörg af þeÍM táknum sem biblían talar um, en til þess að rök-
styðja þetta betur, vildi ég gjarna telja nokkur i viðbót. Auk
þess sem ég hef sagt, þá er sagt fyrir um kærleiksleysi, ofsóknir
móti hinum kristnu, að þeir mundu verða hataðir alls staðar
í þetta sinn óhiýðnuðumst viS boSi biskups og
vísuðum Vottinum ekki á dyr, en báSum hann
þess í stað að segja okkur eitthvað um heims-
endi eins og Vottar iehova ímynda sér aS hann
beri að. Hann var fús til þess, það er einmitt
hans daglega starf að segja fólki frá enda-
lokum heimsins. Viðtal eftir Gísla Siðurðsson.
i heiminum, margir mundu falla frá trúnni, og líka er talað um
ótta vi# framtíðinni, og að fólk mundi vera eigingjarnt, fíkið
i peninga, raupsamt, hrokafullt, lastmælendur, foreldrum ó-
hlýðið, vanþakklátt, og guðlaust, og unglingaafbrot mundu
magnast, o. s. frv.
— Þú verður að fyrirgefa, minn kæri Kjell, en þetta sannar
mér ekki neitt. Ég veit ekki belur en að þetta hafi yfirleitt allt
saman verið til, síðustu tuttugu aldirnar. Munurinn cr einungis
sá, að kristnir menn eru ekki ofsóttir lengur, að pestir og sjúk-
dómar eru hreinn liégómi lijá þvi, sem áður var. Og má ég
spyrja; Hvenær hafa unglingar ekki lent á glapstigum, hvenær
hafa kristnir menn ekki verið hataðir af alls konar þjóðflokkum
um allan heim, hvenær hafa ekki verið stríð og á hvaða öldum
Iiefur ekki verið hungursneyð. Mér er nær að halda, að þetta
eigi sízt af öllu við okkar kynslóð af öllum þeim, sem gengnar
eru síðan á dögum Krists.
— Þar sem þú nú hefur gert grein fyrir þinni skoðun, vildi
ég nii mega segja, að ég er ekki á sama máli. Mér virðist, að
spenningur og ástandið í heiminum sýni greinilega að við lifum
riú á þessum tima sem Jesú benti á í spádómum sínum. Þar að
auki vil ég segja að ofsókn á móti hinum kristnu er alls ekki
óþekkt nú á okkar tímum. í Rússlandi, og mörgum einræðis-
ríkjum hafa Vottar Jehóva að minnsta kosti orðið fyrir bitrum
ofsóknum, einmitt vegna trúar sinnar. Og það að við getum
talað um sjúkdóma sem hreinan liégóma, hvers vegna er þá svo
mikill skortur á læknum? Nei ég held að margir sjúkdómar
skapi alvarleg vandamál á okkar tímum. Og ef Jesú talaði ekki
um okkar tima, hvað þá um það sem biblian segir um heims-
styrjöld?
— Jú, ég efast ekki um, að þú veizt hvað stendur i biblíunni,
er það eitthvað nýtt, að þjóð berjist við þjóð: Segðu mér
JQ — VIKAN 22. tbl.