Vikan


Vikan - 28.05.1964, Blaðsíða 37

Vikan - 28.05.1964, Blaðsíða 37
tími hjá okkur, og þessi böll hjá Armory voru sótt af allskonar fólki, ekki alltaf jafnstilltu. Við gátum samt ekki misst mann þangað í eftirlit, nema þá ein- hvern eins og Charley, en hann reyndist sannarlega fullgóður í kvöld“. „Vegna þess að hann drap mann?“ sagði Leora. „Var hann þar til þess?“ Tom Kyler klappaði á vasa sinn. „Ég ber þessa til þess að nota, ef á þarf að halda, frú Kanzler. Mér ber skylda til að vernda líf og eignir". „Ég hélt ég ætti ekki eftir að heyra nemanda minn segja, að það væri rétt í hans augum að drepa mann“. „Vertu nú sanngjörn, Leora. Vertu sanngjörn", sagði Kanzler. „Ég skil þig ekki heldur. Allt sem þú hefur látið út úr þér í kvöld“, sagði hún. „Ég ætla þá að fara“, sagði Kyler. „Já, það er víst ekki um annað fyrir þig að gera, ef þig lang- ar ekki til að hlusta á fjölskyldu- rifrildi, Tom. Góða nótt. „Góða nótt, Len. Góða nótt, frú Kanzler“, sagði Kyler og fór. „Rétt áðan sagðirðu, að þú mundir deyja, ef eitthvað kæmi fyrir mig“, sagði Kanzler. „Ger- irðu þér ljóst, að ef við hefðum ekki menn eins og Tom Kyler og Charley Paxton . . . .“ „Ó, ég hef svo oft heyrt þess- ar röksemdir. En þú, allt í einu skil ég þig alls ekki. Fyrst set- urðu þig í spor ræningjans, það var beinlínis óhugnanlegt hvernig hugur þinn vann á sama hátt og hans. Og nú ferðu að verja fullan lögregluþjón fyrir að drepa mann“. „Jæja, það getur verið að ég skilji ekki sjálfan mig heldur. En ég hef aldrei fyrr verið rænd- ur. Það hefur aldrei neinn áður beint að mér byssu og tekið vesk- ið mitt og hringinn. Slíkt kem- ur ekki fyrir á hverjum degi“. „Ég vona að það eigi aldrei eftir að endurtaka sig, ef það hefur svona áhrif á þig“. „Fyrir hvað varstu vön að flengja hann — Tom Kyler?“ „Til hvers viltu vita það?“ „Ég hef aldrei gert mér það ljóst áður, en á vissan hátt hef- ur þú Hka verið lögregluþjónn". „Farðu að hátta. Þú og þínir viðskiptavinir, lyfseðlar og mannlegt eðli“. „Nei. Ég ætla að vera dálítið lengur á fótum. Það gerir þriðji kaffibollinn. En þú þarft ekki aö vera lengur á fótum, Leora“. „Það hef ég heldur ekki hugsað mér. Viltu muna eftir að slökkva öll ljósin?“ „Já, já. Hvað skyldi hann hafa heitið?“ „Hver?“ „Ó, náunginn í kvöld, sem ekki vissi hvernig átti að bera fram nafnið mitt“. ,,Þú ættir að reyna að gleyma þessu sem fyrst“, sagði hún. „Það ætti ekki að verða erfitt. Það er ekki svo mikið sem ég hef að muna“, sagði Leonard Kanzler, borið fram með o-hljóði, í Gibbs- ville, Pa. ★ GEORG IV. Frh. af bls. 22. nóttina, löngu eftir að yfirritaður var sofnaður, var hann hótt í 20 pundum ríkari. Og Vestureyjarmað- urinn hafði gripið í þetta aftur af rælni og bætt við sig rúmum 10 pundum. Fleira er þarna skemmtilegt. Sædýrasafn, sem lokkar til sín marga skoðara, safn fornbíla, ein- hverjar þær skemmtilegustu forn- verzlanir (Antiques), sem finnast 6 nólægum breiddargróðum, og þannig mætti lengi telja. Svo er að sjólfsögðu það, sem nóttúran sjólf leggur til, svo sem upplögð bað- strönd, fallegir garðar og lands- lag — og kalt vatn, sem er ógætt til drykkjar. Hótel eru þarna ó hverju strói. Hótelið, sem við dvöldum ó, Metro- pole er eitt það bezta og glæsileg- asta, sem ég hef komið ó, og hef þó eitthvað um 25 til að miða við. Þó virðist mér eftir upplýs- ingapésum, að hótel þarna séu ekki sérstaklega dýr. Enda sagði mér Jóhann Sigurðsson, forstjóri skrif- stofu Flugfélags íslands í London, að fslendingur, sem hyggðist skreppa til Brighton sér til endur- næringar f svo sem viku tíma og dveldi svo í London í þrjó daga til verzlunar, kæmist af með tæp tíu þúsund í ferðakostnað, hótel og mat, og var þó miðað við að hann veldi sér gott hótel í Brighton, og tæki þar alla þjónustu. Hjón ættu jafnevl að sleppa með heldur minna, eða um 17—18 þúsund krón- ur. Og eitt fannst mér athyglisvert: Það er gert ráð fyrir því, að fólk vilji hafa börnin sín með, og mörg hótelanna bjóða upp á ýmsa þjón- ustu í sambandi við þau, svo sem kvöldgæzlu o.þ.h. Þeim eru ætlaðir sérstakir baðstaðir á ströndinni og ýmislegt fleira gert fyrir þau. Það er á ýmsan hátt heppilegra — fyrir utan fjármálasjónarmið — fyrir íslendinga að krækja sér í sumarauka — heppilegast í maí eða september, til þess að missa ekki hásumarið heima — á suðurströnd Englands en fara lengra suður á bóginn. Til dæmis er sólin þarna ekki sterkari en svo, að venjulegur íslendingur þolir hana daglangt, í stað þess að mega ekki nota sér hana nema smástund á degi hverj- um fyrst í stað, eins og gerist sunn- ar. Maturinn er líkari því, sem við eigum að venjast, svo óþarfi ætti að vera að fá slæmsku í magann út af matarbreytingunni. Og svo má benda á það — í gamni þó — að þarna er maður suður við Ermar- sund, með Frakkland handan við sundið, og sumir hafa ekki talið eftir sér að svamla yfir, til þess að komast í þetta samyrkjubú Amors og Bakkusar. Ég mundi hins vegar láta mér nægja að snúa upp tánum f gul- hvftum sandinum og reyna að grynna í þessari furðulegu mál- lýzku, sem sumir Suður-Englending- ar bera sér f munn. ★ VIKAN 22. tbl. — gy DAVÍD SIEFÁNSSON Heyrið skáldið lesa upp nokkur af sínum beztu kvæðum. Til eru fjórar gerðir af hljómplötum. Tvær 45 snúninga, ein 33 súninga 10 tommu og ein 33 snúninga 12 tommu, en ó hinni siðasttöldu hljómplötu eru öll kvæðin af hinum þremur. Hljómplötur Davíðs Stefánssonar halda á lofti minningunni um hið ástsæla skáld. FÓLKINN - hljómplötudeild Laugavegi 24 — Simi 18670. Á plötuumslaginu segir Steingrímur J. Þorsteinsson m.a.: „Davíð Stefánsson frá Fagraskógi er eitt af höfuðskáídum íslands. Auk þess er hann svipmikill og sérstæður upplesari. Þarf ekki að lýsa skáldlegum og seiðmögnuðum flutningi hans fyrir þeim, sem hafa i höndum þessa hljómplötu".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.