Vikan


Vikan - 28.05.1964, Blaðsíða 56

Vikan - 28.05.1964, Blaðsíða 56
UNGU STÚLKUR! Þið getið brosað. Áður var það vandi, mí er það leikur að meðhöndla húðina með Lait de Traitant DEB. og Fond de Teint. Táninga andlitsmjólk, sem gerir allt i senn, hreinsar, nærir og verndar. Táninga-make up í tveimur litum, þekjandi en glansar ekki — og maskinn GRANALBA fyrir óhreina og feita húð. inni. Hún lagði bílnum milli pálmanna. Þetta var mjög nálægt staðnum þar sem hún hafði verið með Annabelle þarna um dag- inn, mundi hún, þegar þau höfðu séð stúlkuna með rauða hárið og Soames. Henni var sama, hvert hún fór og hvað hún gerði, alls staðar var eitthvað, sem minnti hana á hann. Hún varð að reyna að gleyma þessum manni. En hvernig gat hún það, á meðan hún var í Villa Florentina og meira að segja í Suður-Frakk- landi? Hún skildi aldrei, hvað hafði komið fyrir, þegar Soames hljópst á brott með Annabelle um kvöldið. Þetta var nóg til þess að gera hana brjálaða. Hún vissi bara það eitt, að hún hefði get- að kyrkt Augustus Green með ánægju við hádegisverðarborðið, og ef hann opnaði aftur munninn, mundi hún svo sannarlega gera það. Peggy sat þarna hugsi í hálf- — VIKAN 22. tbl. tíma. Skyndilega tók hún þá eftir stúlkunni í opna bílnum. Þetta var rauðhærða vinkonan hans Julian og maðurinn, sem hafði reynt að koma sér í mjúk- inn hjá henni niðri við strönd- ina, þau sátu þarna saman í bíln- um. Og þau voru í bílnum hans Mr. Pimms. Henni brá svo illi- lega, að hún mundi varla, hvernig hún átti að ræsa bílinn, en þeg- ar það tókst ók hún á fleygiferð upp hæðina. Matilda frænka og Green hlust- uðu á hana þegjandi. Og nú gat Peggy ekki á sér setið. Hún sagði alla söguna af Julian á Mart- inique gistihúsinu. — Jæja, Peggy, það er bara eitt, sagði Green. — Þú sást Soames fara inn í þennan bíl með þeirri rauðhærðu, klukkustund eftir að hann var hérna í leit að vinnu. Hvernig stóð á því, að þú kannaðist ekki við bílinn þegar Timothy Pimm kom ak- andi til okkar sama dag? — Ég hafði farið til St. Tropez með Annabelle. Ég sá hann ekki aftur fyrr en daginn eftir. Og ■— ja — mér datt bara ekki í hug að þetta væri sami bíllinn, úr því að Mr. Pimm átti hann. — Þetta er mjög skiljanlegt, geri ég ráð fyrir. Jæja, við verð- um að fá þetta á hreint. Þarna höfum við Soames, þá rauðhærðu og Mr. Pimm, og auk þess ná- ungann sem var að angra þig niðri á ströndinni. Og þú hefur alltaf haldið, að hann væri ann- ar af þeim sem réðust á ykkur á Grand Corniche. - - Mér svona datt í hug, að hávaxni maðurinn Eddie Bell, sem ekur fyrir Mr. Pimm, gæti hafa verið annar þeirra. — Og þá eru þeir allir vinir. Jæja þá, hvað er númerið hjá lögreglunni. Gendarmerie, undir Qins. Green hringdi og þegar svarað var, sagði hann: — Má ég tala við inspector Malraux. Klukkan var á mínútunni 9 um kvöldið, þegar Maleraux kom, í þetta skipti í fylgd með þrem einkennisklæddum mönn- um í stað eins. Matilda frænka var gjörsamlega miður sín, þeg- ar þeir gengu inn í setustofuna. Þau skiptust á kveðjum, og Green sagði: — Ég hefi verið að reyna að ná í ykkur síðustu tvo klukkutímana. Hvað gengur eig- inlega á? Malraux rétti upp höndina. — Monsieur, Madame, sagði hann, — eitt í einu, ef þið viljið gera svo vel. Green sagði: — Eru þau sam- an í Zúrich eða ekki? Inspector Malraux sagði, að því miður væru þau ekki þar. Þeir höfðu haft samband við vini sína í Sviss og ítalíu; Mam'selle hafði ekki verið þar á ferðinni, og held- ur ekki Soames. Hann tók upp umslagið frá Denzel, rétti Mat- ildu frænku það og bað hana að segja sér, hvort Annabelle hefði ekki skrifað utan á það; síðan sagði hann — Madam átti að vera við hinu versta búin — að bréfið og fleiri skjöl hefðu fund- ist í húsi vinar hennar, Mr. Pimm.. Matilda frænka lét fallast í stólinn og brá höndinni fyrir munninn. Malraux hélt nú sögunni áfram. Honum hafði verið ljóst, að bréfin hefðu verið sett í póst til þess að breiða yfir hvarf Mamselle, auðvitað, og þá lá beinast við að fara til Villa Marguerite. Þar höfðu þeir að- eins fundið einn þorparann — já, rauðhærða stúlku — Danielle Buffet. Þeir höfðu spurt hana margra spurninga. En hún vildi ekki segja neitt. Þeir leituðu í húsinu og fundu umslagið. Hún sagði enn að hún vissi ekki neitt. En póststimpillinn sagði auðvit- að til um það, hvert þeir ættu að halda næst. Mamselle var að finna í Tangier. Þar voru yfir- völdin þegar farin að leita við höfnina og i borginni. Gripið hafði verið til alls kyns neyðar- ráðstafana — búist var við svari innan næstu tveggja klukku- stunda. Auðvitað var búið að taka þessa Danielle til fanga. Hvað Mr. Pimm snerti, þá höfðu þeir komizt að því, að hann ásamt þremur manna sinna höfðu farið til Tangier morguninn áður, með viðkomu í Madrid. Hann var vafalaust forsprakki þorparanna, stórglæpamaður og mjög hættu- legur. Slunginn, ósvífinn og hættulegur. Verið gat, að þegar væri búið að handsama hann í Tangier, en á meðan var ekki hægt að gera annað en að spyrja stúlkuna spjörunum úr; annað var því miður ekki hægt að gera að svo komnu máli. Og svo var enn önnur saga. Carlo nokkur Castelotti hafði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.