Vikan


Vikan - 28.05.1964, Blaðsíða 40

Vikan - 28.05.1964, Blaðsíða 40
VANDERVELL VANDERVELL VANDERVELL vélalegur fyrirliggjandi í flestar gerðir bifreiða. VANDERVELL eru stærstu vélaleguframleiðendur í Evrópu, og framleiðsla þeirra er „ori- ginai“ í 15 löndum. VANDERVELL vélalegur eru 40-60% ódýrari en sambærilegar legur annarsstaðar frá. GeriS verðsamanburð, áður en þér festið kaup annarsstaðar. — Sendum í póstkröfu hvert á land sem er. þ. JÓNSSON & CO. BRAUTARHOLTI 6 - SÍMI 15362 & 19215. Þar af leiðandi ákalla flestir menn nafn Drottins, og af því mun væntanlega ieiða, að flest- aliir verSi hólpnir. — Þvi miSur er því ekki ,þannig varið, meiri hlutinn kýs heldur veg eySingarinnar, þaS er aSeins minni hiutinn sem fet- ar í fótspor Jesú. — Mér skildist, aS flestir gerðu það með því að sýna fram- angreinda mannkosti, eða með öðrum orðum „að ákalla nafn Drottins“. En sleppum því. Segðu mér lieldur, liverjir verða á rölti eftir dómsdag aðrir en Vottar Jehóva. —- Þar sem Kristur var Vottur Jehóva, og liann sagði aS við yrðum að trúa á sig, og vera eftirbreytendur sínir, til þess að öðlast eilíft líf, trúi ég því, að þeir sem komast af verði að vera Vottar Jehóva. — Og dómsdagur verður af- greiddur á einum degi eða hvað? — Hve langan tíma stríðið við Harmagedón mun' taka, ætla ég ekki að svara. En fyrstu þús- und árin eftir þetta stríð eru kölluS dagur dómsins, og það mun verða á þessu tímabili, sem paradís verður endurreist liér á jörðu. -— Sem sagt: Jörðin ris iðgræn úr djúpinu, eins og hún gerði að loknum Ragnarökum, hjá forfeðrum okkar, ásatrúarmönn- um. Hver er munurinn? — Ég veit ekki, ég er ekki svo kunnugur ásatrú. — Nei, það er ekki gott að vera að rugla sig i ríminu á allt- of mörgum fræðum. Er ekki vont að starfa liér á íslandi? íslend- ingar eru efasemdamenn, og taka ekki allt trúanlegt umsvifalaust. — Nei, það er gott að starfa hér. — Þér er vafalaust kunnugt um það, að biskupinn yfir ís- landi sendi út boöskap til lands- manna varðandi Votta Jelióva. Biskupinn bað okkur að vísa ykkur á dyr „ákveðið en kurt- eislega, ef ég man rétt. Ég minn- ist þess ekki að kirkjuleg yfir- völd hafi gefið út þess liáttar orðsendingar, sem snertu aðra sértrúarsöfnuði. Hefur þetta ekki komið sér illa? — Nei, þvert á móti, þetta hefur gert það að verkum, að margir eru spyrjandi þegar við komum. —■ Það er þá líklega vegna ljess, að íslendingar kunna þvi illa, að láta segja sér fyrir verk- um og skammta sér skoðanir. -— Okkur er yfirleitt vel tek- ið. — Þið gangið i hús. Hvað seg- ið þið, þegar fólk kemur til dyra- — Við heilsum, segjum i livaða tilgangi við erurn komin, og reynum að halda stutta ræðu. —• Upp úr biblíunni, geri ég ráð fyrir? —■ Já, upp úr biblíunni. — Mætti ég fá að heyra kjarna ræðunnar, án þess að þú lesir hana upp úr bibliunni. — Já, gjarnan. Ræðan er um nýja heiminn, sem Guð hefur gefið fyrirheit um í orði sinu. Fyrst lesum við frá Opinberun- arbókinni, hvernig Jehóva mun þerra hvcrt tár af augum mann- anna, og dauði, sorg og sjúkdóm- ar munu hverfa. Þegar við höf- um lesið þetta, sýnum við frá Daníel 2:44, hvernig þetta muni koma, að það verður þannig, að allt sem illt er mun verða hreins- að burt. AS síðustu sýnum við frá biblíunni hvað fólk verður að gera núna, til ])ess að ávinna sér líf í nýja lieiminum. Það verður að afla sér þekkingar um vilja Guðs, og einmitt nú í dag. ■— Þú talar um „hreinsanir", sem minna óþægilega á sérstak- ar athafnir nazista. Ég trúi því varla, aðv guð þurfi að grípa til svo ófullkominna meðala, sem „hreinsanir“ eru. Því getur hann ekki bætt það illa án striðs. — Þar sem þetta stríð er að- eins til þess að útrýma hinu illa, og einungis til þess, er ekki liægt að segja að þetta sé ófullkomið meðal. — En segðu mér annað; HvaS um þá, sem aldrei fá tækifæri til þess að heyra þessa ræðu ykkar, farast þeir við heims- endi? — Við trúum því, að fólk sem uppi var i fornöld, og aldrei hefur átt þess kost að læra um Guð og vilja hans, séu meðal þeirra sem Jesú talar um að muni fá upprisu í nýja heimin- um. En nú á dögum hefur fólk tækifæri til þess að taka afstöðu, þar sem boðskapurinn nær nú til 200 landa, og eyja. — En Múhameðstrúarmenn til dæmis? — Allir Múhameðstrúarmenn, sem breyta skoðun og komast til skilnings á hinni sönnu trú, hafa auðvitað von um að fá að lifa af endi þessa heims. — Svo kristnir fara yfirleytt bölvanlega út úr þessu. — Já, allir, sem kalla sig kristna, en hafa trúna einungis sem einhvern ytri hjúp, eins og kristindómurinn er í dag. — Er enginn sem tekur ykkur verulega illa? —■ Það er mjög sjaldgæft. —- En stundum er ykkur vís- að á dyr? — Það hefur komið fyrir. — Illa lizt mér á það fólk, þegar heimsendir ríður yfir. — Hvers vegna skyldum við dæma jmnnig, margir eru eins og Sál, sem varð Páll þ. e. þeir skipta um skoðun, en margir hafa orðjð fýsnum heimsins að bráð. — Jæja, og hver skapaði fýsn heimsins? VIKAN 22. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.