Vikan - 28.05.1964, Qupperneq 40
VANDERVELL VANDERVELL
VANDERVELL vélalegur fyrirliggjandi í flestar gerðir bifreiða.
VANDERVELL eru stærstu vélaleguframleiðendur í Evrópu, og framleiðsla þeirra er „ori-
ginai“ í 15 löndum.
VANDERVELL vélalegur eru 40-60% ódýrari en sambærilegar legur annarsstaðar frá.
GeriS verðsamanburð, áður en þér festið kaup annarsstaðar. — Sendum í póstkröfu hvert á land sem er.
þ. JÓNSSON & CO. BRAUTARHOLTI 6 - SÍMI 15362 & 19215.
Þar af leiðandi ákalla flestir
menn nafn Drottins, og af því
mun væntanlega ieiða, að flest-
aliir verSi hólpnir.
— Þvi miSur er því ekki
,þannig varið, meiri hlutinn kýs
heldur veg eySingarinnar, þaS
er aSeins minni hiutinn sem fet-
ar í fótspor Jesú.
— Mér skildist, aS flestir
gerðu það með því að sýna fram-
angreinda mannkosti, eða með
öðrum orðum „að ákalla nafn
Drottins“. En sleppum því.
Segðu mér lieldur, liverjir verða
á rölti eftir dómsdag aðrir en
Vottar Jehóva.
—- Þar sem Kristur var Vottur
Jehóva, og liann sagði aS við
yrðum að trúa á sig, og vera
eftirbreytendur sínir, til þess
að öðlast eilíft líf, trúi ég því,
að þeir sem komast af verði að
vera Vottar Jehóva.
— Og dómsdagur verður af-
greiddur á einum degi eða hvað?
— Hve langan tíma stríðið
við Harmagedón mun' taka, ætla
ég ekki að svara. En fyrstu þús-
und árin eftir þetta stríð eru
kölluS dagur dómsins, og það
mun verða á þessu tímabili, sem
paradís verður endurreist liér
á jörðu.
-— Sem sagt: Jörðin ris iðgræn
úr djúpinu, eins og hún gerði
að loknum Ragnarökum, hjá
forfeðrum okkar, ásatrúarmönn-
um. Hver er munurinn?
— Ég veit ekki, ég er ekki svo
kunnugur ásatrú.
— Nei, það er ekki gott að
vera að rugla sig i ríminu á allt-
of mörgum fræðum. Er ekki vont
að starfa liér á íslandi? íslend-
ingar eru efasemdamenn, og taka
ekki allt trúanlegt umsvifalaust.
— Nei, það er gott að starfa
hér.
— Þér er vafalaust kunnugt
um það, að biskupinn yfir ís-
landi sendi út boöskap til lands-
manna varðandi Votta Jelióva.
Biskupinn bað okkur að vísa
ykkur á dyr „ákveðið en kurt-
eislega, ef ég man rétt. Ég minn-
ist þess ekki að kirkjuleg yfir-
völd hafi gefið út þess liáttar
orðsendingar, sem snertu aðra
sértrúarsöfnuði. Hefur þetta ekki
komið sér illa?
— Nei, þvert á móti, þetta
hefur gert það að verkum, að
margir eru spyrjandi þegar við
komum.
—■ Það er þá líklega vegna
ljess, að íslendingar kunna þvi
illa, að láta segja sér fyrir verk-
um og skammta sér skoðanir.
-— Okkur er yfirleitt vel tek-
ið.
— Þið gangið i hús. Hvað seg-
ið þið, þegar fólk kemur til dyra-
— Við heilsum, segjum i
livaða tilgangi við erurn komin,
og reynum að halda stutta ræðu.
—• Upp úr biblíunni, geri ég
ráð fyrir?
—■ Já, upp úr biblíunni.
— Mætti ég fá að heyra kjarna
ræðunnar, án þess að þú lesir
hana upp úr bibliunni.
— Já, gjarnan. Ræðan er um
nýja heiminn, sem Guð hefur
gefið fyrirheit um í orði sinu.
Fyrst lesum við frá Opinberun-
arbókinni, hvernig Jehóva mun
þerra hvcrt tár af augum mann-
anna, og dauði, sorg og sjúkdóm-
ar munu hverfa. Þegar við höf-
um lesið þetta, sýnum við frá
Daníel 2:44, hvernig þetta muni
koma, að það verður þannig, að
allt sem illt er mun verða hreins-
að burt. AS síðustu sýnum við
frá biblíunni hvað fólk verður
að gera núna, til ])ess að ávinna
sér líf í nýja lieiminum. Það
verður að afla sér þekkingar um
vilja Guðs, og einmitt nú í dag.
■— Þú talar um „hreinsanir",
sem minna óþægilega á sérstak-
ar athafnir nazista. Ég trúi því
varla, aðv guð þurfi að grípa til
svo ófullkominna meðala, sem
„hreinsanir“ eru. Því getur hann
ekki bætt það illa án striðs.
— Þar sem þetta stríð er að-
eins til þess að útrýma hinu illa,
og einungis til þess, er ekki liægt
að segja að þetta sé ófullkomið
meðal.
— En segðu mér annað; HvaS
um þá, sem aldrei fá tækifæri
til þess að heyra þessa ræðu
ykkar, farast þeir við heims-
endi?
— Við trúum því, að fólk sem
uppi var i fornöld, og aldrei
hefur átt þess kost að læra um
Guð og vilja hans, séu meðal
þeirra sem Jesú talar um að
muni fá upprisu í nýja heimin-
um. En nú á dögum hefur fólk
tækifæri til þess að taka afstöðu,
þar sem boðskapurinn nær nú til
200 landa, og eyja.
— En Múhameðstrúarmenn til
dæmis?
— Allir Múhameðstrúarmenn,
sem breyta skoðun og komast til
skilnings á hinni sönnu trú, hafa
auðvitað von um að fá að lifa
af endi þessa heims.
— Svo kristnir fara yfirleytt
bölvanlega út úr þessu.
— Já, allir, sem kalla sig
kristna, en hafa trúna einungis
sem einhvern ytri hjúp, eins og
kristindómurinn er í dag.
— Er enginn sem tekur ykkur
verulega illa?
—■ Það er mjög sjaldgæft.
—- En stundum er ykkur vís-
að á dyr?
— Það hefur komið fyrir.
— Illa lizt mér á það fólk,
þegar heimsendir ríður yfir.
— Hvers vegna skyldum við
dæma jmnnig, margir eru eins og
Sál, sem varð Páll þ. e. þeir
skipta um skoðun, en margir
hafa orðjð fýsnum heimsins að
bráð.
— Jæja, og hver skapaði fýsn
heimsins?
VIKAN 22. tbl.