Vikan - 28.05.1964, Qupperneq 15
GIFTING EFTIR GRTHSPJOLDUM
Gifting eftir gataspjöldum.
Svissneskur bísnessmaður notar rafmagnsheila til aS undirbúa ánægjulegt og hamingjusamt
hjónaband. Ef þú vilt greiða fyrir það 7.500 krónur, þá ábyrgist hann að finna fyrir þig hinn eina
sanna og rétta eiginmann (eða konu), með gataspjalda aðferðinni. - Og það er huggun í raun-
um, að ef illa fer og hjónabandið fer samt sem áður út um þúfur, þá færðu peningana endur-
greidda.
Ógiftur, einmana maður, 47 ára
gamall óskar að kynnast stúlku
með hjónband fyrir augum. Eig-
in íbúð . . .
Efnaður kaupmaður vilt kynn-
ast stúlku. Gifting möguleg. Björt
framtíð . . .
Verksmiðjueigandi með arð-
bært fyrirtæki, vill komast í sam-
band við laglega og lífsglaða
unga stúlku. Einbýlishús, bifreið,
utanferðir. Tilboð merkt: „Hjóna-
band“, sendist . . .
Þetta er gamla og góða aðferð-
in, sem maður getur kynnst í
hvaða dagblaði sem er. En það
er ekki nema eðlilegt, að nýjar
og fullkomnari aðferðir séu
fundnar upp á þessu sviði eins
og öðrum, á þessum tímum fram-
fara og nýrra uppfinninga.
Nú getur maður fundið sér
maka með gataspjaldi!
Gömlu, góðu aðferðirnar, með
stefnumótum, símahringingum og
ástarbréfum, eru nú komnar úr
móð. Að sjálfsögðu má reyna
slíkt, en það er tímafrekt og
óörugg aðferð. Gataspjaldakerfið
er mikið fljótvirkara og örugg-
ara, segir svisslendingurinn Walt-
er Furrer.
í skrifstofunni sinni í Zúrich
hefur hann komið fyrir stóreflis
rafmagnsheila, sem vinnur nótt
og dag í þjónustu ástar og kyn-
töfra.
„Þetta geri ég til að komast
hjá óhamingjusömum hjónabönd-
um, sem svo mildð er af nú á
dögum“, segir Furrer. „Nafn fyr-
irtækisins bendir á tilgang þess.
Það heitir „Selectron“.“
Kerfið, sem Selectron vinnur
eftir, er fyrst og fremst nákvæm
sálfræðileg könnun á því fólki,
sem vill finna sér réttan maka
með aðstoð rafmagnsheilans.
Allar slíkar upplýsingar eru
svo settar í heilann, sem vinnur
úr þeim. Frá þeirri stundu eru
hin tilvonandi hamingjusömu
hjón orðin að tveim tölum. Allir
karlmenn, sem leita til rafmagns-
heilans í þessum tilgangi, mega
reikna með að þar finnist 6—9
stúlkur, sem gætu orðið hans
heittelskaða og fvrirmyndar eig-
inkona.
Það getur þó kcmið fyrir, að
stúlka við hans hæfi finnist alls
ekki meðal umsækjenda og þá
verður hann að bíða í einn eða
tvo mánuði áður en hann reynir
aftur.
Walter Furrer, sem einnig á
stóra auglýsingaskrifstofu, vinn-
ur að því öllum érum, að kynna
fyrirtæki sitt um allan heim og
gera öllum mögulegt að skipta
við það, hvar sem er í heiminum.
Að sjálfsögðu ætti það að vera
jafnauðvelt fyrir fólk í New
York, að finna tilvonandi maka
í rafmagnsheilanum, og einmana
íslendingar fá vonandi tækifæri
til að hitta sinn ektamaka í gata-
spjaldavélinni í Zúrich. Til þess
þarf aðeins að greiða gjaldið, —
7.500 krónur. — Sumum kann
að finnast þetta rc kkuð dýrt, en
munið að ábyrgð fylgir vörunni,
og ef allt endar með skilnaði,
þá fær maður sína aura til baka
aftur.
Þótt þessi svhsneska hjóna-
bandsmiðlunarstofa sé ný af nál-
inni, hefur aðsóknir. þegar verið
mikil. Það er kannske skrýtið,
en það virðist sem það séu frek-
ar karlmenn, sem vilja vera viss-
ir í sinni sök, áður en þeir fara
til prestsins með sína heittelsk-
uðu. Aldurinn á makaleiturum
er helzt á milli 23—60 ára.
René Brennwald, sem er stærð-
fræðilegur sérfræðingur við raf-
magnsheilann, segir um framtið
hans:
-— Við álítum að þessi aðferð
við að finna maka á vísindalegan
hátt, eigi mikla fvamtíð fyrir sér.
Þegar sálfræðingar hafa sam-
Framhald á bls. 49.
VIKAN ZZ. tW.
15