Vikan - 28.05.1964, Page 19
neinum, ef þú segir mér. Ég safna
bara skelium.
— Þeir eru kallaðir flatnefiur,
sagði Bond. — Einskonar bleikir
storkar með flötu nefi. Hefurðu
nokkurn tíma séð svoleiðis fugl?
— O, þeir, svaraði hún fyrirlit-
lega. Þeir voru hér svo þúsund-
um skipti. En þú finnur ekki marga
nú orðið. Þeir hræddu þá alla burtu.
Hún settist niður í sandinn og vafði
handleggjunum um hnén, stolt af
því að vita meira en hann, og nú
viss um, að hún hafði ekkert að
óttast frá þessum manni.
Bond settist niður um metra frá
henni. Hann hallaði sér út af, sneri
sér að henni og reis upp á oln-
boga. Hann langaði til þess að
halda þessari skemmtiferðastemmn-
ingu og komast að einhverju frekar
um þessa undarlegu, fallegu stúlku.
Hann sagði blátt áfram: — Er það
satt? Hvað kom fyrir? Hver gerði
það?
Hún yppti öxlum óþolinmóð: —
Fólkið hérna. Ég veit ekki hverjir
það eru. Það er þessi Kínverji. Hann
hefur ofnæmi fyrir fuglum held ég.
Hann á dreka. Hann sendi drek-
ann á eftir fuglunum og hræddi
þá ( burtu. Drekinn brenndi upp
hreiðrin þeirra. Aður voru hér tveir
menn, sem bjuggu í nánd við fugl-
ana og litu eftir þeim. Þeir hræddu
þá líka burtu, eða drápu þá, eða
ég veit ekki hvað.
Henni virtist þetta allt með
felldu. Hún skýrði blátt áfram frá
staðreyndum og starði út á hafið.
— Bond sagði: — Þessi dreki.
Hverskonar dreki er þetta? Hefurðu
nokkurntíma séð hann?
— Já, ég hef séð hann. Hún
glennti upp augun og gretti sig
eins og hún væri að gleypa beiskt
lyf. Hún horfði beint á Bond til
þess að hann skildi hana betur.
Framhalds-
sagan
sem verið hefur metsölubók um allan
heim.
7. hluti
Sagan hefur verið kvikmynduð og kvik-
myndin verður sýnd í Tónabíói að lok-
inni birtingu.
Framhald á bls. 41.
VIKAN 22. tbl.
19