Vikan - 28.05.1964, Side 25
’Zt I< * / ■
Trygging. Hver maður verður að gera
það upp við sjálfan sig, hvort liann vill
tryggja sjálfan sig, eða farangur, en per-
sónulega finnst mér sjálfsagt að gera það.
Að vísu taka flugfélögin einhverja ábyrgð
gagnvart farangri á leiðinni, en hann get-
ur tapast hvar sem er, og þá er gott að
hafa hann tryggðan. Hvað viðvíkur per-
sónutryggingu, þá er allt undir því komið
hve marga einstaklinga maður hefur á
framfæri heima, og hvernig atvinnuhættir
eru o.s.frv. Ferðaskrifstofurnar útvega all-
ar tryggingar, eða tryggingarfélögin.
Lyf. Ef þú ert sjóveikur, eða flugveik-
ur, þá er bráðnauðsynlegt að fá lyf við
því — og þau eru til. Hafðu þá samband
við heimilislækninn þinn nokkru áður en
þú leggur í ferðina. Aðeins þetta litla
atriði getur munað því hvort þú hefur
ánægju af ferðinni eða ekki. Sjálfsagt er
einnig að hafa með sér töflur við höfuð-
verk, því það er ekki óalgengt að menn
fái slíka kvilla í ferðalögum, og þá er
oft ekki gott að „hlaupa í næsta apótek“,
enda eru slík lyf nefnd ýmsum nöfnum,
sem maður kann engin skil á. — Að mað-
ur nú ekki tali um nauðsynina á slíkum
pillum, ef hætta er á að maður kíki of
djúpt í glasið eitthvert kvöldið. Einhver
lyf við magaveiki er einnig gott að hafa,
því að við breytt mataræði og óreglu-
legan matartíma ,fá margir slæmt í maga.
Sjálfsagt er líka að hafa nokkra skyndi-
plástra í töskunni, þvi lítið fer fyrir þeim.
Svo verða menn að líta í eigin barm msð
það, hvað þeim er hættast við og hvar
þeir eru veikastir fyrir, — og auðvitað
hafa með sér lyf samkvæmt því.
Skuldir heima. Það getur verið fjári
óþægilegt að láta falla á sig víxla heima
á meðan maður er að dandalast einhvcrs-
staðar úti í heimi. Sama er að segja um
olíureikninga, rafmagn o.fl., og nauðsyn-
legt að ganga frá því.
Farangur. Bezt er að nota tímann alveg
frá því að maður ákveður ferðalagið, til
að skrifa niður á miða hjá sér, hvað mað-
ur ætlar að hafa með sér í farangrinum
af fötum og slíku. Svo notar maður síð-
asta daginn til að strika út aftur, það sem
er ónauðsynlegt, og kemst ekki fyrir. Ef
ferðalagið er stutt, þá er um að gera
að liafa farangurinn eins fyrirferðalítinn
og hægt er, því að það er oftast reyndin
að hann verður fyrirferðarmeiri á heim-
leiðinni, og þá er ekkert gaman að því
að þurfa að greiða stórar fjárhæðir í yfir-
vigt á farangri. Bezt er að hafa með sér
fatnað, sem hægt er að skola úr á kvöld-
að morgni. (Ryon, nylon, orlon o. fl.).
in, liengja upp og sem verður jafngott
Auðvitað eru regnkápur sjálfsagðar, og
einhver hlý föt til að skjótast í, því að
þótt maður fari til „heitu landanna" er
alls ekki víst að þar sé alltaf hlýrra en
hér heima, og allra sízt á nóttunni. Mis-
munurinn á gistihúsum þar og hér, er fyrst
og fremst sá, að þar er engin liitaveita,
og upphitun af skornum skammti. Sum-
staðar alls engin. Og svo getur ekkisens
páskahretið komið þangað ekki síður en
hingað til íslands, og þá er alls ekki vit-
laust að hafa með sér peysu til að smeygja
sér í.
skrifstofurnar um að beina ferðamönnum
til þeirra, og fá þannig fleiri viðskiptavini.
Auk þess er jafnan þægilegra að afgreiða
slíka viðskiptavini ekki síst ef þeir koma i
hópum og hægt að afgreiða marga í einu.
Pantanir eru ákveðnari og liggja fyrir með
nægum fyrirvara, hægara er að annast bréfa-
skriftir við eina ferðaskrifstofu en marga
einstaklinga, ferðaskrifstofan sér um að öll
skjöl séu i lagi og undirbýr þægilega af-
greiðslu hjá viðkomandi fyrirtæki, og svona
mætti lengi telja.
Sömu þjónustu fær ferðamaðurinn, öll
hans skilríki verða í lagi við hrottför, hann
losnar við ýmislegt snatt og undirbúning,
fyrir öllu er séð á hverjum stað þar sem
hann kemur, og ferðin verður jafnframt
ódýrari.
Fyrir alla fyrirliöfnina, umsjónina, skiþu-
lagninguna, ábyrgðina, reynsluna og aðra
þjónustu, fær skrifstofan svo sina greiðslu
---------------------------------------------J.
frá fyrirtækjunum.
Enginn skyldi halda að þetta sé eitt af
okkar sérstæðu íslenzku fyrirbrigðum, að
ferðaskrifstofur blómgist vel, þvi þær eru á
öðru hvoru götuhorni í helztu ferðamanna-
löndunum, og alls staðar virðist vera jafn-
mikið að gera. Fólk kann þar að meta þessa
þjónustu og notar sér hana í yztu æsar,
sem og sjálfsagt er.
Allar okkar ferðaskrifstofur gefa nú út
skrautlegar ferðaáætlanir fyrir sumarið, og
hjóða upp á geysifjölbreytt úrval fcrða um
allan heim, við verði, sem maður hlýtur að
álíta mjög hóflegt, miðað við það live „start-
gjaldið“ er hátt fyrir okkur, sem þurfum
ávallt að byrja á því að fara langar leiðir
til meginlandsins, áður en komið er út í
aðalumferðina þar. Það vekur raunar furðu,
hvað lílið léggst ofan á sjálft flugfargjaldið
héðan og á áfangasiað, j.ifnvel þó dvalist
sé þar í 14 daga. Til dæmis um það má nefna
Nokkur ráð
Það er leyfilegt að hafa með sér 2,500
krónur íslenzkar til útlanda — og sjálfsagt
að hafa eitthvað með sér, þó ekki sé nema
til að kaupa sér kaffiholla hérna á flugvell-
inum, borga hílinn og svoleiðis. -— En sv.o
hafa þau ólíkindi skeð í fjármálaheiminum,
að íslenzka krónan cr tekin gild i sumurn
hönkum erlendis, og hægt er að skipta lienni
þar í „alvörupeninga". Að vísu er það eitt-
hvað minna, sem maður fær þar fyrir
krónuna, en það er ekki svo mikill munur
að það geti ekki horgað sig, ef maður er i
„hönk“. Víðast hvar er dregið frá um 10%
í kostnað. Þetta eykur möguleika á eyðslufé
erlendis um rúm 10 sterlingspund, og alla-
vega er það sæmilegur varasjóður ef illa fer.
Múl. Þótt gaman sé að koma til framandi
landa, þá er það hálf ánægjan að geta talað
við íbúana, pantað það sem mann langar
í á veitingahúsum, skammað bilstjóra, skil-
ið leikhúsmál, verzlað án þess að hafa túlk
o. m. fl. Þessvegna cr alltaf hetra að fara
til þeirra landa, þar sem maður getur gert
sig skiljanlegan á einhvern hátt. Að vísu
er þetta ekki nauðsynlegt i hópferðum, þar
sem túlkar eru jafnan með, en samt þægi-
legt. Ef þannig er, þá er agætt ráð að undir-
húa sig dálítið í ferðina með þvi að fá
nokkra tíina i málinu á góðum málaskóla,
kaupa sér glósubók eða slíkt, til þess að
geta hjargað sér um nauðsynlegustu hluti.
ferðir til Mallorca, með dvöl þar i 15 daga,
sem kostar aðeins kr. 13,075, en farseðill
fram og til baka með flugvél til Madrid, sem
er svipuð fjarlægð, kostar kr. 13.941. í þessu
tilfelli cr ódýrara að dvclja 15 daga á Mall-
orca i góðu yfirlæti, lieldur en að fara fram
og til haka til Madrid án nokkurrar viðkomu
þar. Og ef dvalist er lengur á Mallorca,
minkar kostnaðurinn hlutfallslega, því að
vikudvöl þar á staðnum á góðu hóteli kost-
ar aðeins í kring uni 1750 krónur á mann-
inn. — Það er dýrara að lifa hérna lieima!
Annars cr það skrýtið, að þegar maður
fer yfir verð sem gefið er upp fyrir hinar
ýmsu ferðir, kemur i Ijós að i flestum til-
fellum kostar ferðin um þúsund krónur fyrir
manninn á dag, livert sem farið er. Til
dæmis má nefna 21 dags ferð til Iíaupmanna-
hafnar, Gautahorgar, Stokkliólms, Leningrad,
Helsinki og Ósló, sem kostar kr. 21,751 —
ferð til Lundúna, Parísar, Róm, Feneyja
VIKAN 22. 4bL — 25